Fatlaður maður sækist eftir réttlæti eftir vistun í fangelsi

Ólafur Haf­steinn Ein­ars­son, lög­blindur maður, var vistaður í lok níunda ára­tug­ar­ins í opnu kvenna­fang­elsi á Suð­ur­landi þar sem hann upp­lifði nið­ur­læg­ingu og harð­ræði og leið eins og hann væri fangi. Hann hefur óskað eftir fundi með dóms­mála­ráð­herra vegna vist­unar full­orð­ins fatl­aðs fólks á vist­heim­ilum.

Fatlaður maður sækist eftir réttlæti eftir vistun í fangelsi
Ólafur Haf­steinn Ein­ars­son Var vistaður á sama stað og refsi­fangar, vegna þess að hann var með fötlun. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ólafur Haf­steinn Ein­ars­son hefur ásamt Öryrkja­banda­lagi Íslands og Lands­sam­tök­unum Þroska­hjálp óskað eftir fundi með dóms­mála­ráð­herra til að hefja rann­sókn á vistun fatl­aðra barna og full­orð­ins fatl­aðs fólks á vist­heim­ilum. Núver­andi lög um rann­sókn á vist­heim­ilum og sann­girn­is­bótum ná aðeins utan um vistun barna, en vist­heim­ila­nefnd hefur tví­vegis lagt til að verk­lag­inu yrði breytt til að einnig sé hægt að skoða mál full­orð­inna.

Ólafur er öryrki með sam­setta fötlun, en hann er lög­blindur, floga­veikur og með væga þroska­hömlun. Hann hefur verið vistaður á ung­linga­heim­ili, sjúkra­húsi, sam­býli og í kvenna­fang­elsi, en í við­tali í Stund­inni í októ­ber síð­ast­liðnum lýsti hann því í smá­at­riðum hvernig komið var fram við hann í kvenna­fang­els­inu Bitru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár