Mynd: Heiða Helgadóttir

Fatlaður maður var vistaður í kvennafangelsi

Ólafur Haf­steinn Ein­ars­son var, í lok níunda ára­tugs­ins, vistaður í opnu kvenna­fang­elsi á Suð­ur­landi þar sem fangar sem höfðu meðal ann­ars framið mann­dráp afplán­uðu dóma sína. Þar upp­lifði hann nið­ur­læg­ingu og harð­ræði, og leið eins og hann væri fangi. Ólafi leið svo illa að hann strauk úr fang­els­inu og gekk til Reykja­víkur, en hann er lög­blindur. Hann kallar eftir rann­sókn Alþingis á vist­heim­ilum sem voru starf­rækt á þessum tíma.

Á jarð­hæð í blokk í Kópavogi tekur Ólafur Haf­steinn Ein­ars­son á móti blaða­manni Stund­ar­innar. Heimili hans er ekki ólíkt öðrum heim­ilum jafn­aldra hans; gamlar myndir hanga á veggj­unum, bækur sitja í bóka­skápum og veg­legt tölvu­borð fyllir upp holið. Ólafur flutti hingað árið 2011, sem væri ekki í frá­sögur fær­andi ef þetta væri ekki hans fyrsta íbúð.

Ólafur ólst upp á tíma þar sem fatl­aðir ein­stak­lingar voru gjarnan stofn­ana­væddir og skoðun þeirra á því hvar og hvernig þeir vilja búa virt að vettugi. „Ég var búinn að berj­ast lengi fyrir því að fá íbúð og vera ég sjálfur,“ segir hann blaða­manni, en Ólafur hefur lengi þurft að kljást við forn­eskju­legt kerfi til að fá sínu fram­gengt.

„Það þarf ekki bara að rann­saka stað­ina sem ég var á, það þarf að rann­saka þá alla.“ 

Hann hefur verið vistaður á ung­linga­heim­ili, sjúkra­húsi, sam­býli og í kvenna­fang­elsi, en það er einmitt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár