Sigríður segir að dómnefndin sé framlenging af henni

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra undrað­ist að umsækj­andi með 1 í ein­kunn fyrir menntun hafi verið val­inn - en valdi sjálf umsækj­anda með 0 í ein­kunn. Sigríður svar­aði fyrir lög­brot sitt við skipun dóm­ara á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í dag.

Sigríður segir að dómnefndin sé framlenging af henni
Sigríður Andersen Hafði efa­semdir um hlut­lægt mat hæf­is­nefndar um val umsækj­enda um dóm­ara­stöður, en segir hana vera fram­leng­ingu af henni sem ráð­herra. Mynd: Alþingi

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra svar­aði fyrir ákvörðun sína um skipun dóm­ara við Lands­rétt, sem dæmd var lög­brot fyrir Hæsta­rétti í síð­asta mán­uði, á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í morgun.

Sigríður segir að ábyrgðin á mál­inu sé Alþingis, sem sam­þykkti til­lögur hennar um að velja fjóra dóm­ara aðra en þá sem sér­stök nefnd um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara valdi í fimmtán stöður dóm­ara við Lands­rétt.

Þá sagði Sigríður að lög­bundin dóm­nefnd, sem fer yfir hæfni umsækj­enda um dóm­ara­stöður, sé í raun ekki óháð og sé fram­leng­ing af dóms­mála­ráð­herra. Þar af leið­andi geti gagn­rýni á inn­grip hennar í skipun dóm­ara ekki byggt á því að hún hafi rofið sjálf­stæði dóm­stól­anna. Þó séu slíkar nefndir „góðra gjalda verðar“ og „nauð­syn­legar“.

„Stundum er talað um að svona nefndir séu óháðar, en þær eru hluti af fram­kvæmda­vald­inu,“ sagði Sigríður. „Þær eiga að vera ráð­herra til aðstoðar, enda eru svona nefndir einn armur og fram­leng­ing af ráð­herra.“

„Enda eru svona nefndir einn armur og fram­leng­ing af ráð­herra“

Í lögum um dóm­stóla er því hins vegar lýst að „dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara“ sé skipuð af mörgum aðilum: „Einn nefnd­ar­manna skal til­nefndur af Hæsta­rétti og skal hann vera for­maður nefnd­ar­innar. Einn nefnd­ar­manna skal til­nefndur af Lands­rétti. Dóm­stóla­sýslan til­nefnir þriðja nefnd­ar­mann­inn og skal hann ekki vera starf­andi dóm­ari en Lög­manna­fé­lags Íslands þann fjórða. Fimmti nefnd­ar­mað­ur­inn skal kos­inn af Alþingi.“ 

Þá hefur nefndin aðsetur hjá dóm­stóla­sýsl­unni, lögum sam­kvæmt. 

Síðar sagði Sigríður að það væri erfitt að við lýði væri sjálf­stæð hæfn­is­nefnd sem heyrði ekki undir neinn.

Valdi sjálf dómara með 0 í einkunn

Sigríður lýsti á fund­inum efa­semdum um mat dóm­nefnd­ar­innar um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­stöður. Þar á meðal taldi hún und­ar­legt, að umsækj­andi sem fékk ein­kunn­ina 1 í menntun, hefði verið met­inn meðal þeirra hæf­ustu. 

Sigríður valdi hins vegar að skipa umsækj­anda dóm­ara, sem hafði ein­kunn­ina 3 í menntun og var met­inn 30. hæf­asti af 33. Sami umsækj­andi hafði hins vegar ein­kunn­ina 0 í lög­manns­reynslu og stjórn­sýslu, og 1 í stjórnun. Menntun- og fram­halds­menntun var metin með 5% vægi í heild­ar­mati dóm­nefndar, en lög­manns­reynsla 20%. 

Við­kom­andi umsækj­andi, Jón Finn­björns­son, er eig­in­maður fyrr­ver­andi sam­starfs­konu Sigríðar til margra ára á lög­manns­stof­unni Lex.

„Ég var mjög hugsi yfir þessu excel-skjali og þessu gríð­ar­lega hlut­læga mati sem nefndin hafði lagt til grund­vallar. Sem greini­lega hefur ekki alltaf verið í störfum nefnd­ar­innar,“ sagði Sigríður. Þá sagði hún að hún hefði geta breytt ein­fald­lega tölum í hæf­is­mat­inu og þannig riðlað til röðun dóm­nefndar, það væri millj­arður mögu­legra nið­ur­staðna. „Ég nefni það að ein­stak­lingur, tal­inn fimmt­ándi hæf­asti af nefnd­inni, var með ein­kunn 0,025 hærri en ein­stak­ling­ur­inn í sext­ánda sæti. Þetta fannst mér strax blasa við að væri því­líkur lít­ill munur að gæti ekki gefið til­efni til að mað­ur­inn í fimmt­ánda sæti að hann væri það mikið hæf­ari en sá sext­ándi.“

Sigríður hefur verið gagn­rýnd fyrir að skipa eig­in­konu Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í Lands­rétt, þótt hún væri ekki metin meðal fimmtán hæf­ustu. Fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar tók Brynjar þá ákvörðun að víkja úr efsta sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi og veita Sigríði odd­vita­sætið á sinn kostnað.

„Óheimilt að skipa mann sem dómnefnd hefur ekki talið hæfastan“

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í morgun að það hefði verið ljóst að Alþingi hefði ekki sam­þykkt lista hæfn­is­nefndar ef hann hefði verið lagður fram óbreyttur.

Sigríður sagði í morgun að fyrir hefði legið að „óbreyttur listi hefði valdið hérna ein­hverju fjaðrafoki“. Þá sagði hún að hún hefði ákveðið að bregða út frá vali hæf­is­nefndar til þess að það „væri skemmti­legur bragur“ á fyrstu skipun dóm­ara í Lands­rétt og að hún yrði „án mik­illar geðs­hrær­ingar.“

Í lögum um dóm­stóla er hins vegar gert ráð fyrir því að ráð­herra skipi þá sem dóm­nefnd velur hæf­asta. „Óheimilt er að skipa í dóm­ara­emb­ætti mann sem dóm­nefnd hefur ekki talið hæf­astan meðal umsækj­enda, hvort heldur einn eða sam­hliða öðrum.“

Í lög­unum er síðan heim­ild til þess að víkja frá mat­inu, ef Alþingi sam­þykkir það. „Frá þessu má þó víkja ef Alþingi sam­þykkir til­lögu ráð­herra um heim­ild til að skipa í emb­ættið annan nafn­greindan umsækj­anda sem full­nægir að mati dóm­nefndar öllum skil­yrðum til að hljóta skipun í emb­ættið.“

Segist hafa axlað ábyrgð í kosningum

Sigríður sat fyrir svörum hjá nefnd­inni vegna þess að Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að hún  hefði brotið stjórn­sýslu­lög þegar hún ákvað að fylgja ekki nið­ur­stöðum hæfn­is­nefndar um skipun dóm­ara í Lands­rétt.

„Hæsti­réttur er bara ósam­mála mér“

Sigríður hefur vísað til þess að hún hafi verið kjörin á Alþingi, eftir að hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að hún hefði brotið lög við skipan dóm­ara. Hins vegar hefur hún vísað til þess að efn­is­lega sé dómur Hæsta­réttar öðru­vísi en dómur hér­aðs­dóms, einna helst í því til­liti að Hæsti­réttur taldi ekki sömu ann­marka á mati dóm­nefnd­ar­innar og hér­aðs­dómur hafði vísað til, en Sigríður vís­aði til þess eftir dóm hér­aðs­dóms að mat dóm­nefnd­ar­innar væri óvandað. Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, benti Sigríði einnig á að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefði sagt fyrir kosn­ingar, á fundi í Verzlunarskóla Íslands, að ábyrgð Sigríðar lægi ekki ljós fyrir, þar sem Hæsti­réttur hefði ekki úrskurðað í mál­inu.

„Hæsti­réttur er bara ósam­mála mér í því að þetta hafi verið gert og það er ekk­ert óeðli­legt að um það sé deilt,“ sagði Sigríður um nið­ur­stöðu Hæsta­réttar að hún hefði ekki upp­fyllt rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga þegar hún kaus að víkja frá mati dóm­nefndar um hæfni umsækj­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár