Tryggvi Þór og Friðjón könnuðu aðstæður til raforkuframleiðslu í Dölunum fyrir GAMMA

Teymi frá fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu GAMMA og franskir sam­starfs­menn þeirra fund­uðu með sveit­ar­stjórn Dala­byggðar í gær út af raf­magns­fram­leiðslu í sveit­inni. Skoðuðu jarðir í byggð­ar­lag­inu í heim­sókn sinni. Vilja byggja vind­orku­verk á Dönu­stöðum.

Tryggvi Þór og Friðjón könnuðu aðstæður til raforkuframleiðslu í Dölunum fyrir GAMMA
Frá Alþingi í orku­mál Tryggvi Þór Her­berts­son var þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árunum 2009 til 2013 en starfar nú fyrir sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið GAMMA, meðal ann­ars að verk­efn­inu í Dölunum.

Tryggvi Þór Her­berts­son, ráð­gjafi fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins GAMMA og fyrr­ver­andi þing­maður og efna­hags­ráð­gjafi rík­is­stjórnar Geirs H. Haarde, fór um sveitir Dala­byggðar í gær og skoð­aði aðstæður og fund­aði með sveit­ar­stjórn­inni út af áhuga fyr­ir­tæk­is­ins á raf­magns­fram­leiðslu með vind­orku í sveit­inni. Með í för var franskt sam­starfs­fyr­ir­tæki GAMMA, orku­fyr­ir­tæki sem ekki liggur fyrir hvað heitir. Þetta segir Sveinn Pálsson, sveit­ar­stjóri í Dala­byggð, aðspurður um funda­höldin með GAMMA. 

Tryggvi Þór, sem var einnig for­stjóri fjár­fest­ing­ar­banka Milestone sem kall­að­ist Askar Capital, er annar af starfs­mönnum GAMMA sem var með í heim­sókn­inni  en hinn er Friðjón Þórð­ar­son sem meðal ann­ars starf­aði hjá verð­bréfa­fyr­ir­tæk­inu Virðingu á árum áður.  Friðjón stýrir verk­efn­inu sam­kvæmt Sveini.

Heim­ildir Stund­ar­innar herma að GAMMA hafi auga­stað á jörð­inni Dönu­stöðum í Dölum, sem er eyð­jörð sem liggur að jörð­inni Lamb­eyrum. Dönu­staðir eru í eigu ætt­ingja  Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Faðir þing­manns­ins, Daði Ein­ars­son, á rúm­lega tveggja pró­senta hlut í …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Vindorka á Íslandi

Hvalfjörðurinn endi ekki sem „ruslahaugur alls konar tilrauna“
SkýringVindorka á Íslandi

Hval­fjörð­ur­inn endi ekki sem „rusla­haugur alls konar til­rauna“

Raf­elds­neyt­is­verk­smiðjur eru sögu­lega orku­frekar. Þær eru líka fyr­ir­ferð­ar­miklar og með tengdum mann­virkjum á borð við bryggjur og virkj­anir yrði rask af þeim mikið. „Má ekki ákveða á ein­hverjum tíma­punkti að nóg sé komið?“ spyr kona í Hval­firði sem myndi sjá 60 metra háan kyndil raf­elds­neyt­is­verk­smiðju á Grund­ar­tanga frá jörð­inni sinni.
Risar á ferð: Flöskuhálsar kalla á breytingar á vegum
SkýringVindorka á Íslandi

Risar á ferð: Flösku­hálsar kalla á breyt­ingar á vegum

80 metra langir vind­myllu­spaðar eru lengstu íhlut­irnir sem munu fara um íslenska vega­kerfið ef af bygg­ingu vind­orku­vera verður hér á landi. Þessir for­dæma­lausu þunga­flutn­ingar kalla á styrk­ingar á brúm og vegum, breyt­ingar á vega­mótum og alls konar til­fær­ingar aðrar. Flytja yrði inn sér­staka flutn­inga­bíla til verks­ins og loka vegum fyrir annarri umferð enda ekki dag­legt brauð að aka með fyr­ir­bæri á pari við hæð Hall­gríms­kirkju­turns um þjóð­vegi lands­ins.
„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“
ViðtalVindorka á Íslandi

„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“

Í sjö ár hefur Steinunn M. Sig­ur­björns­dóttir háð margar orr­ustur í bar­áttu sinni gegn vind­myllum sem til stendur að reisa allt umhverfis sveit­ina hennar. Hún hefur tapað þeim öllum. „Ég er ekki búin að ákveða hvort ég hlekki mig við jarð­ýt­urnar, það fer eftir því hvað ég verð orðin gömul,” segir hún glettn­is­lega. En þó með votti af alvöru. Hún ætli að minnsta kosti ekki að sitja hjá og „horfa á þetta ger­ast”.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár