Segir formann fjárlaganefndar hafa beitt þrýstingi: Kæmi „mjög illa út persónulega fyrir mig“ að leggjast gegn tillögu ráðherra

Björn Þor­steins­son, fyrr­ver­andi rektor Land­bún­að­ar­há­skól­ans, seg­ist hafa fengið óþægi­legt sím­tal frá Haraldi Bene­dikts­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­manni fjár­laga­nefndar. Haraldur seg­ist ekki hafa haft í neinum hót­unum.

Segir formann fjárlaganefndar hafa beitt þrýstingi: Kæmi „mjög illa út persónulega fyrir mig“ að leggjast gegn tillögu ráðherra

Björn Þor­steins­son, fyrr­ver­andi rektor Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands, segir að Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, hafi hringt og varað sig við því að leggj­ast gegn til­lögu ráð­herra um val á settum rektor til eins árs þegar málið var til umfjöll­unar í háskóla­ráði skól­ans.

Eins og DV greindi frá á dög­unum vakti ráðn­ing­ar­ferlið furðu innan skól­ans; kvartað var til umboðs­manns Alþingis vegna máls­ins og orðrómur uppi um póli­tískt inn­grip.

Stundin hafði sam­band við Björn Þor­steins­son, fyrr­ver­andi rektor skól­ans sem var for­maður háskóla­ráðs þegar dr. Sæmundur Sveins­son var settur tíma­bundið í stöðu rekt­ors án þess að hafa und­ir­geng­ist form­legt hæfn­is­mat. 

„Haraldur hringdi í mig og mælt­ist ein­dregið til þess að ég legð­ist ekki gegn til­lögu ráð­herra í þessum efnum. Hann orð­aði það sem svo, að ef ég setti mig upp á móti til­lög­unni þá gæti það komið „mjög illa út per­sónu­lega fyrir mig“,“ segir Björn í sam­tali við Stundina. 

Haraldur vísar þessu á bug en við­ur­kennir að hafa átt í sam­skiptum við Björn vegna máls­ins. „Ég kann­ast við að hafa átt sam­skipti við Björn í tengslum við val á rektor. Við ræddum saman um stöð­una sem var komin upp,“ segir Haraldur sem kann­ast þó ekki við að hafa þrýst á Björn með þeim hætti sem lýst hefur verið. 

Fulltrúi ráðherra vildi Sæmund

Kristján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, setti dr. Sæ­mund Sveins­soní stöðu rekt­ors Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands þann 1. októ­ber síð­ast­lið­inn. Eins og DV greindi frá í byrjun mán­aðar hafði starfið áður verið aug­lýst og þrír umsækj­endur verið metnir hæfir. Aðeins einn þeirra var tal­inn búa yfir nægri stjórn­un­ar­reynslu en hann reynd­ist ekki geta tekið við starf­inu.

Sirrý Hall­gríms­dóttir

Háskóla­ráð Land­bún­að­ar­há­skól­ans brást við þessu með því að útbúa lista í sam­starfi við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið yfir hugs­an­leg rekt­orsefni. Var þá stefnt að því að fá ein­hvern sem væri ótengdur ýmsum ágrein­ings­málum sem höfðu skekið skól­ann mán­uð­ina og árin á undan. 

Að því er fram kemur í fund­ar­gerð háskóla­ráðs frá 7. sept­em­ber stakk full­trúi ráð­herra í háskóla­ráð­inu, Sigríður Hall­gríms­dóttir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­kona Illuga Gunn­ars­sonar, betur þekkt sem pistla­höf­und­ur­inn Sirrý – upp á því að Sæmundur Sveins­son fengi stöð­una. 

Haraldur hringdi í Björn

Björn segir í sam­tali við Stundina að fyrir fund­inn hafi full­trúi ráð­herra nefnt Sæmund við sig. Björn hafi þá bent á að ef til stæði að fá inn­an­húss­mann til að gegna starf­inu væri ef til vill heppi­leg­ast að leita til ein­hvers sem hefði stjórn­un­ar­reynslu. 

„Í kjöl­far þessa hringdi Haraldur Bene­dikts­son í mig og mælt­ist ein­dregið til þess að ég legð­ist ekki gegn til­lögu ráð­herra um settan rektor. Hann sagði að ef ég gerði það þá gæti það komið mjög illa út fyrir mig per­sónu­lega.“ 

Björn vill taka fram að Haraldur hafi oft verið sér hjálp­legur og átt þátt í að tek­ist hafi að rétta fjár­hag skól­ans af meðan hann var rektor. Honum hafi þó orðið veru­lega brugðið þegar Haraldur lét þessi orð falla.

„Ég átta mig ekki á því hvað hann meinti, hvað það væri sem gæti komið mér illa per­sónu­lega, og hafði ekki geð í mér að spyrja hann.“

Mál eiginkonu hans var til meðferðar

Eftir þetta ákvað Björn að halda sig til hlés á fund­inum. Mál eig­in­konu hans, Önnu Guðrúnar Þór­halls­dóttur, pró­fess­ors við skól­ann, hefði verið til skoð­unar í kjöl­far tölvu­pósts sem hún sendi sam­starfs­mönnum sínum um vorið og var unnið að því á þessum tíma, í sam­starfi við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið, að finna ad hoc-rektor til að taka ákvörðun um við­brögð við mál­inu í ljósi van­hæfis Björns. Að þessu leyti var Björn, frá­far­andi rektor og pró­fessor við skól­ann, í óþægi­legri stöðu. 

„Ég ákvað að hafa mig ekki í frammi á fund­inum. Aðrir háskóla­ráðs­menn báru ekki fram neinar mót­bárur, svo Sæmundur var kall­aður í við­tal. Ég treysti því auð­vitað að stjórn­sýsla ráðu­neyt­is­ins í máli Önnu yrði í lagi, að staðið yrði við það sem áður stóð til, að settur yrði ad hoc-rektor til að fjalla um málið.“

Eins og Stundin greindi frá í morgun til­kynnti Sæmundur Sveins­son Önnu Guðrúnu pró­fessor í síð­ustu viku að hann hefði í hyggju að segja henni upp störfum. Anna hafði ekki fengið áminn­ingu og hefur gegnt pró­fess­ors­stöðu við skól­ann í 25 ár.

Ástæða upp­sagn­ar­innar er tölvu­póstur hennar til sam­starfs­manna þar sem hún gagn­rýndi hvernig staðið var að ráð­stefnu um land­græðslu og lofts­lags­mál í Hörpu síð­asta vor. Komst siða­nefnd skól­ans að þeirri nið­ur­stöðu að til­tekin ummæli í tölvu­póst­inum fælu í sér ómak­legar aðdrótt­anir og brot á siða­reglum skól­ans. Sæmundur, sem nú er rektor, sat í und­ir­bún­ings­nefnd fyrir ráð­stefn­una sem Anna Guðrún gagn­rýndi og kom að skipu­lagn­ingu hennar. 

„Ég hélt að það væri sam­hljómur um að það yrði íþyngj­andi og óheppi­legt fyrir Sæmund að taka á máli Önnu Guðrúnar, meðal ann­ars í ljósi aðkomu hans að und­ir­bún­ingi ráð­stefn­unnar sem hún gagn­rýndi,“ segir Björn sem ræddi við Kristján Þór Júl­í­us­son ráð­herra um málið þann 27. sept­em­ber. Hann seg­ist hafa skilið Kristján sem svo að hann væri sam­mála sér og að áfram yrði unnið að því að fá ad hoc-rektor, sem stæði utan ágrein­ings­mál­anna í skól­anum, til að taka ákvörðun í mál­inu. Nú í síð­ustu viku til­kynnti hins vegar Sæmundur Sveins­son rektor um fyr­ir­hug­aða upp­sögn Önnu Guðrúnar og veitti henni 14 daga frest til að neyta and­mæla­réttar síns. 

„Eftir á að hyggja, þegar ég velti fyrir mér orðum Haraldar, þá veit ég ekki hvað það er sem hefði getað komið mér „per­sónu­lega verr“ heldur en einmitt það sem nú hefur verið gert gagn­vart eig­in­konu minni.“

Kannast við samskipti en ekki þrýsting eða hótanir

Stundin hafði sam­band við Harald Bene­dikts­son og spurði hvort hann kann­að­ist við að hafa beitt Björn þrýst­ingi þegar val á settum rektor var til umfjöll­unar í háskóla­ráði Land­bún­að­ar­há­skól­ans.

„Nei, ég get ekki stundað neinar slíkar hót­anir. Og hvers vegna ætti ég að gera það?“ sagði hann. Aðspurður hvort hann hefði átt í sam­skiptum við Björn vegna vals á rektor sagði hann: „Jú, ég kann­ast við að hafa átt sam­skipti við Björn í tengslum við val á rektor. Við ræddum saman um stöð­una sem var komin upp. Ég hef talað við hann og hann hefur leitað til mín. En ég hef enga þannig stöðu í þessu máli að geta farið að beita þrýst­ingi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár