Loforð og peningar takast á við náttúruvernd á Ströndum

Kanadískt orku­fyrirtæki hefur boðað marg­víslegar umbætur á lífi fólks á Ströndum, ef það fær að virkja í Hvalá, en segist ekki vilja semja um það fyrirfram. Í skertum innviðum og lágri opinberri fjár­festingu verða samfélögin líklegri til að fórna náttúru gegn vilyrði einka­fyrirtækja um bætta innviði.

Ófeigsfjörður
Ófeigs­fjörður Þar sem veg­ur­inn endar. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Þær umbætur sem fengið hafa marga íbúa og sveitar­stjórnar­menn í Árnes­hreppi til að styðja virkjun Hvalár eru ekki samnings­bundnar og þurfa margar hverjar ekki að tengjast virkjuninni.

Gagn­rýnendur virkjunarinnar eru vantrúaðir á loforð tengd virkjuninni og orku­fyrirtækið HS Orka, sem stendur að virkjuninni, vill ekki gera samning um það fyrirfram. „Það þarf ekki,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku.

Íbúar í Árnes­hreppi binda sumir hverjir miklar væntingar við virkjunina. Þeir vona að virkjuninni fylgi bættar vega­samgöngur, þriggja fasa rafmagn og ljósleiðara­tenging með háhraða interneti. Að auki hefur verið rætt um að HS Orka fjármagni hitaveitu og svo klæðningu á skólahúsi grunn­skólans.

Bættar vega­samgöngur eru hins vegar ekki tengdar virkjuninni, ef frá er talinn vegur úr Trékyllisvík í Ófeigs­fjörð. Þriggja fasa rafmagn er nú þegar í vinnslu á vegum Orkubús Vestfjarða, og óljóst er hvernig ljósleiðara­væðing mun eiga sér stað, þótt ljós­leiðari færist nær með virkjun. 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár