Birta bréfið sem veitir Róberti óflekkað mannorð

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur afhent Stund­inni bréfið sem veitir Róberti Downey upp­reist æru. Undir það skrifa Ólöf Nordal og Ragn­hildur Hjalta­dóttir og for­set­inn „fellst á til­lög­una“. Bjarni Bene­dikts­son gaf fyrir rúmum sex vikum til kynna að hann hefði tekið við mál­inu af Ólöfu en leið­rétti það ekki fyrr en í gær.

Birta bréfið sem veitir Róberti óflekkað mannorð
Robert Downey, dæmdur barn­a­níð­ingur Bjarni Bene­dikts­son var ítrekað beð­inn um rök­styðja hvers vegna hann hefði veitt Roberti Downey upp­reist æru. Í leið­rétti hann þann mis­skiln­ing að hann hefði átt aðkomu að mál­inu. Í bréfi sem Stundin fékk afhent frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu kemur fram að Ólöf Nordal hafi skrifað til­lög­una um að veita Roberti Downey upp­reist æru.

Ólöf Nordal heitin, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, afgreiddi umsókn Roberts Downey um upp­reist æru. Bréfið sem sent var til stað­fest­ingar for­seta Íslands var und­ir­ritað af Ólöfu og Ragn­hildi Hjalta­dóttur ráðu­neyt­is­stjóra inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Áður var talið að Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hefði skrifað undir bréfið en í sam­tali við RÚV sagð­ist hann hafa tekið við mál­inu þegar hann starf­aði sem dóms­mála­ráð­herra í fjar­veru Ólafar Nordal. Þá sagði hann: „Nei, ég tók við nið­ur­stöðu úr ráðu­neyt­inu sem hafði fengið sína hefð­bundnu með­ferð.“

Í gær leið­rétti Bjarni loks þann skiln­ing í færslu á Facebook. Þar segi Bjarni meðal ann­ars: „Stað­reynd máls­ins er sú að ég gegndi ekki emb­ætti fyrir inn­an­rík­is­ráð­herra þegar þessi mál voru til lykta leidd í ráðu­neyt­inu. Ekki heldur þegar þau fóru fyrir rík­is­stjórn eða voru lögð fyrir for­seta Íslands til stað­fest­ingar. Það sætir því furðu að kallað sé eftir því að ég svari fyrir þá ákvörðun. Enn und­ar­legra er að sjá skrif um að ég forð­ist umræðu um málið.“

Tilagan sem send var til for­seta ÍslandsUndir bréfið skrifa Ólöf Nordal og Ragn­hildur Hjalta­dóttir ráðu­neyt­is­stjóri.

Leiðrétti ekki misskilninginn í sex vikur

Þann 16. júní tók RÚV við­talið við Bjarna þar sem hann gaf til kynna að hafa átt aðkomu á mál­inu, með því að hafa tekið við því. Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir Nínu Rúnar Bergs­dóttur, einnar stúlkunnar sem Robert Downey braut á, seg­ist vera orð­inn svo­lítið ringlaður á þessu máli.

„Við erum auð­vitað ánægð með að for­sæt­is­ráð­herra geri sér loks­ins það ómak að svara okkur og fjöl­miðlum en erum á sama tíma frekar ringluð. Þann 16. júní sagði hann í við­tali við RÚV að hann hafi tekið við nið­ur­stöðu í ráðu­neyt­inu sem hafi fengið sína hefð­bundnu með­ferð og hall­ist frekar að því að í þessu til­felli sem öðrum eigi fólk að fá annað tæki­færi í líf­inu. Nú segir hann að hann hafi ekki gegnt emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra þegar þessi mál voru til lykta leidd né þegar þau fóru fyrir rík­is­stjórn og finn­ist hug­takið upp­reist æru koma spánskt fyrir sjónir svo mik­il­vægt sé að hraða breyt­ingum á reglu­gerð­inni. Við erum eig­in­lega alveg jafn mikið í lausu lofti sem áður.“

Þá reyndi dóttir Bergs, Nína Rún Bergs­dóttir, ítrekað að fá svör frá Bjarna við spurn­ingum sínum. Í tvígang tagg­aði hún í færslur á Facebook og von­að­ist eftir svörum. Hann hefur ekki sýnt nein við­brögð eftir að ég tagg­aði hann í tveimur facebook færslum. Ég var nú ekki að búast við því þar sem hann hefur nú þegar sýnt að hann snýr baki við öllu sem honum finnst óþægi­legt, eins og kyn­ferð­is­of­beldi,“ sagði hún í sam­tali við DV.

Auk þess að þegja þunnu hljóði um málið úti­lok­aði Bjarni vara­þing­mann Pírata, Snæbjörn Brynjars­son, frá Twitter-reikn­ingi sínum vegna máls­ins. Snæbjörn velti því fyir sér af hverju Bjarni hefði ekki verið spurður hvað lá að baki þess­ari ákvörðun og tagg­aði Bjarna í færsl­una. Viðbrögð Bjarna voru að úti­loka hann og banna hann frá síðu Bjarna á Twitter.

Í gær birt­ist síðan leið­ari í Frétta­blað­inu þar sem Magnús Guð­munds­son sagði að málið virt­ist vera vanda­mál fyrir rík­is­valdið og Bjarna Bene­dikts­son, „sem sat á ráð­herra­stóli og skrif­aði upp á að Robert Downey, mað­ur­inn sem braut svo gróf­lega gegn þessum stúlkum, fengi upp­reist æru. Bjarni virð­ist ætla að hafa íslenska hátt­inn á og bíða af sér storm­inn og vona að radd­irnar þagni.“

Leið­ar­inn varð til þess að Bjarni svar­aði loks fyrir málið með Facebook-færslu. Í færsl­unni seg­ist hann ekki hafa átt neina aðkomu að þeirri ákvörðun að veita Robert Downey upp­reist æru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu