Áfengisflétta Smáríkisins: Vínið keypt á Íslandi og aldrei flutt úr landi

Smáríkið flækti sölu á áfengi hér á landi með erlendum og inn­lendum kenni­tölum til þess að kom­ast hjá lögum um áfeng­is­sölu. Áfengið yfir­gaf aldrei landið, heldur end­aði í höndum neyt­enda, oft sam­dæg­urs.

Áfengisflétta Smáríkisins: Vínið keypt á Íslandi og aldrei flutt úr landi
Smáríkið Hér má sjá áfeng­is­aug­lýs­ingu Smá­rík­is­ins.

Dóms­nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­ness, þar sem fram­kvæmda­stjóri Smá­rík­is­ins var fund­inn sekur um að brjóta gegn einka­leyfi ÁTVR á sölu áfengis, varpar ljósi á flókna fléttu Kjútís ehf. við að kom­ast fram hjá áfeng­is­lögum hér á landi. Þó var nið­ur­staðan ein­föld; áfengið sem Íslend­ingar pönt­uðu hjá Smá­rík­inu í skjóli reglu­kerfis EES er keypt hér á landi og fer aldrei frá Íslandi og er að auki afhent sam­dæg­urs. Því var fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins dæmdur og sektaður fyrir að brjóta gegn einka­leyfi ÁTVR sem má ein­ungis selja áfengi hér á landi í smá­sölu. 

For­svars­maður Smá­rík­is­ins, Vil­hjálmur Forberg Ólafsson, var dæmdur í Hér­aðs­dómi Reykja­ness til þess að greiða hund­rað þús­und krónur í sekt fyrir að brjóta á einka­leyfi ÁTVR til þess að selja áfengi hér á landi þegar Smáríkið seldi hvítvíns­belju í maí árið 2024. Dómur Hér­aðs­dóms Reykja­ness var afdrátt­ar­laus varð­andi smá­sölu áfengis hér á landi.

Kjútís og ITC

Vil­hjálmur var fram­kvæmda­stjóri og …

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Er ekki eitthvað fáránlegt að evrópusambandið geti útbúið reglur sem við þurfum að fara eftir og stangast á við áfengislögin okkar og markmið þeirra?
    0
    • Þorkell Egilsson skrifaði
      Jú algjörlega ef það væri raunin, en það er ekki raunin. ESB og EES eru ekki sami hluturinn.
      1
    • Arnar Sigurðsson skrifaði
      Jú skoðum einmitt markmið og svo lagabókstafinn. Það væri fáránlegt ef ESB gæti útbúið slíkar reglur en meginmarkmið áfengislaga er að ,,vinna gegn misnotkun áfengis" Sala til unglinga myndi þar vega þyngst og þar sem ÁTVR er eini endurseljandi áfengis hér á landi sem stundar slíkt ætti að sjálfsögðu að loka þeim útsölustöðum. Áfengislögin hinsvegar voru sett fyrir daga netsins og fyrirbyggja alls ekki netverslun eins og fram kom í lögfræðiáliti sem ÁTVR lét vinna 2014.
      -1
    • Óskar Þór Árnason skrifaði
      Þetta hentar sjálfstæðisflokknum end sett á í stjórnartíð hans
      2
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Fáránlegt (á báða bóga)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár