Framleiða snjó í fyrsta sinn í borginni

Í Ártúns­brekkunni hefur snjó­byssa fyllt skíða­brekkur af snjó og lífi. „Þetta er fyrsti vet­ur­inn sem við erum að prófa þetta innan borg­ar­markanna,“ segir Heimir Stef­áns­son starfs­maður mið­stöðvar um úti­vist og úti­nám hjá Reykja­vík­ur­borg.

Framleiða snjó í fyrsta sinn í borginni
Loksins Á slag­inu klukkan fimm á mið­viku­dag var skíða­lyftan í Ártúns­brekku form­lega opnuð þrátt fyrir almennt snjó­leysi á land­inu. Mynd: Golli

Nýtt skíðaár byrj­aði brös­ug­lega á land­inu. Öll skíða­svæði lands­ins nema á Aust­ur­landi voru lokuð vegna snjó­leysis fyrstu viku árs­ins. Þrátt fyrir að kalt loft léki um land­ann var lítil sem engin snjó­koma í kort­unum. Tilkoma nýrrar snjó­byssu hefur þó breytt lands­lag­inu í Ártúns­brekku og stóðu starfs­menn mið­stöðvar um úti­vist og úti­nám hjá Reykja­vík­ur­borg (MÚÚ) þar vaktir til að und­ir­búa opnun skíða­brekkunnar. „Þetta er fyrsti vet­ur­inn sem við erum að prófa þetta innan borg­ar­markanna. Þeir hafa verið að nota svip­aðar snjó­byssur í Blá­fjöllum með góðum árangri,“ segir Heimir Stef­áns­son, starfs­maður MÚÚ, þar sem hann stillir af snjó­frussandi blásar­ann við efsta stólpa skíða­lyft­unnar.

Vindáttin hjálpar til 

„Snjó­byssan var í gangi alla síð­ustu helgi, fékk smá pásu sunnu­dags­nótt­ina en er búin að vera í gangi síðan þá,“ sagði Heimir þegar Heim­ildin kíkti í heim­sókn í lok fyrstu viku jan­úar. Hann taldi þá að snjó­dýptin í skíða­brekkunni væri orðin um 40 til …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár