Farið er yfir fræði­bækur er varða lýð­ræðið, kosn­ingar og efna­hags­stjórn­mála. Mynd: Golli

Af stjórnmálaástandi – úr jólabókaflóðum

Fræði­bækur og rit almenns efnis er víð­feðmur flokkur bæði í Bóka­tíð­indum og á sviði bók­mennta­verð­launa. Hér eru teknar til yfir­lits­legrar grein­ingar nokkrar sér­valdar bækur sem mætti draga saman undir flokk almennra fræð­andi bóka á sviði stjórn­mála og lýð­ræðis sem settar eru í laus­legt sam­hengi fleirri bóka af sviðum efna­hag­spóli­tíkur.

Leitin að sann­leik­anum og íslensk stjórn­mála­fræði eftir Svan Krist­jáns­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor birt­ist fyrst í TMM – Tímariti Máls og menn­ingar, árið 2018, og kom aftur út í greina­safni hans fyrr í ár. Þar rifjar Svanur upp hverjar meg­in­á­herslur fyrsta kenn­ara hans í stjórn­mála­fræði hálfri öld áður voru: „Lýðræðið er alls staðar við­kvæmt. Öfgaöfl ógna lýð­ræð­inu. Við verðum ætíð að standa vörð um mann­rétt­indi allra. Annars er stutt í van­þróun lýð­ræðis – jafn­vel hrun lýð­ræðis og rétt­ar­ríkis“. Theodore Mitau, kenn­ari Svans, sem hafði þessar áherslur, í Banda­ríkj­unum árið 1968, var fæddur 1920 og flúði Berlín fjórtán ára gam­all, því hann var gyð­ingur en fjöl­skyldan hans öll fórst síðan í hel­för­inni. Þessar áherslur virð­ast eiga vel við enn í dag. Því er mik­il­vægt að út komi vand­aðar bækur sem fjalla um lýð­ræðið og stjórn­mál.  

Spuni, vitlíki og söguskrif

Ein af stóru ógn­unum sem steðjar að lýð­ræð­inu nú um stundir …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár