Þýddi hættulegustu unglingabók Norðurlanda

Ung­linga­bókin Ekkert hefur verið þýdd á íslensku. Bókin er háheim­speki­leg og var bönnuð í dönskum og frönskum skólum um ára­bil. Níhil­ismi er drifafl sög­unnar og þörfin fyrir að finna merk­ingu í líf­inu.

Þýddi hættulegustu unglingabók Norðurlanda
Ólafur Haukur Sím­on­ar­son er þjóð­þekktur rit­höf­undur. Hann þýddi dönsku ung­linga­bók­ina Ekkert sem hefur valdið nokk­urri úlfúð vegna efn­istaka. Mynd: Golli
Bók

Ekkert

Höfundur Janne Teller
Nýhöfn
172 blaðsíður
Gefðu umsögn

Danska ung­linga­bókin „Ekkert“ (Intet á frum­mál­inu) eftir Janne Teller vakti hörð við­brögð fyrst þegar hún kom út árið 2000. Bókin virð­ist lát­laus skáld­saga um hóp tólf ára barna í smá­bænum Tæringu í Danmörku. Bekkj­ar­fé­lagi barn­anna gengur út úr skóla­stof­unni einn dag­inn með hættu­lega hug­mynda­fræði að vopni og lýsir því yfir að ekk­ert skipti máli. Ein­stak­lingur eyðir fjölda ára í það eitt að vaska upp þegar lífs­hlaupið er dregið saman, svo deyrðu. Jörðin hefur verið til í 4,5 millj­arða ára. Hvernig nennið þið þessu? Þannig predikar barnið eins og lífs­leiður níhilisti. Ekkert hefur merk­ingu, full­yrðir dreng­ur­inn; setn­ing sem er lúm­sk­ari en margur heldur.

Fágæt lestrarupplifun

Skóla­börnin ákveða að sanna fyrir bekkj­ar­fé­laga sínum að ýmis­legt hafi merk­ingu og koma sér saman um eitt­hvað sem kall­ast „þýð­ing­ar­hrúga“. Fljótt leita áleitnar spurn­ingar á börnin, sem velja það sem hefur mesta þýð­ingu fyrir næsta bekkj­ar­fé­laga. Ýmislegt fer í hrúg­una, allt frá trú­ar­sann­fær­ingu yfir …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár