„Það er hægt að vera mjög töff ung gella og skrifa ljóð“

Anna Rós Árna­dóttir, Birgitta Björg Guð­mars­dóttir og Þórdís Dröfn Andr­és­dóttir eiga það sam­merkt að vera ungar konur með ljóða­bækur sem hafa vakið athygli nú í ár. Allar gengu þær líka í Mennta­skól­ann við Hamra­hlíð, sem hafði mikil áhrif á skálda­feril þeirra. Umfjöll­un­ar­efni ljóða þeirra eru þó gíf­ur­lega ólík.

„Það er hægt að vera mjög töff ung gella og skrifa ljóð“

Anna Rós Árna­dóttir, Birgitta Björg Guð­mars­dóttir og Þórdís Dröfn Andr­és­dóttir eru ungar skáld­konur sem allar hafa vakið athygli fyrir ljóða­bækur sínar sem komu út í ár. Fleira eiga þær sam­eig­in­legt, en allar hafa þær skrifað frá unga aldri og árin í Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð hafði einnig mikil áhrif á skálda­feril þeirra. Umfjöll­un­ar­efni ljóða þeirra eru gíf­ur­lega ólík en blaða­maður fór á stúf­ana og komst meðal ann­ars að því hvað veitir þeim inn­blástur og hvað er á döf­inni hjá þessum efni­legu ungskáldum.

Ljóða­bálk­ur­inn Draugam­andar­ínur eftir Birgittu Björgu Guð­mars­dóttur fjallar um athöfn­ina að borða mandar­ínur. Hún leiðir les­endur í gegnum ferlið, allt frá því að hýðið er tekið af, mat­ur­inn tíndur upp í munn og að lokum kyngt. 

Í verk­inu leikur Birgitta sér með hlið­stæð­urnar milli orð­anna sem notuð eru um ávexti og orðin sem notuð eru yfir lík­amann. Þar má nefna börk og heila­börk, kjöt og ald­in­kjöt, húð og …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár