Baðstaður veldur klofningi í Önundarfirði

Halla Signý Kristjáns­dóttir, fyrrum þingmaður, segir baðstað við Holts­fjöru munu hafa áhrif á fuglalíf og friðsæld svæðisins. Baðlón séu falleg en dýr: „Er það sem okkur vantar, alls staðar?“ Framkvæmdar­aðili segir að baðstaðurinn verði lítill og að tillit hafi verið tekið til athugasemda í umsagnar­ferli.

Fyrirhugaður baðstaður
Fyr­ir­hug­aður bað­staður Samkvæmt til­lögu mun bað­stað­ur­inn rísa á landi Þóru­staða í Önund­ar­firði.

alla Signý Kristjáns­dóttir, fyrr­verandi þingmaður Framsóknar­flokks, segir stað­setningu fyrir­hugaðs baðstaðar í Önundar­firði „skelfi­lega og skaðlega“.

Halla Signý gerir meðal annars athuga­semdir við hugmyndina vegna fuglalífs á svæðinu eins og margir fleiri aðilar hafa gert í umsagnar­ferli verk­efnisins. Hverfis­ráðs Önundar­fjarðar hefur hins vegar fagnað hugmyndinni, svo framarlega sem umhverfi staðarins verði áfram óbreytt útivistar­svæði, enda bjóði verkefnið upp á meiri afþreyingu fyrir ferðamenn og heimamenn.

Baðstaðurinn yrði kallaður Hvíti­sandur og á að rísa í Holts­fjöru í Önundar­firði í landi Þórustaða. Þar er nú flugbraut á vegum Isavia, í miðju æðarfugla­varpi, sem ekki er lengur í notkun. „Í dag er Holts­fjara vinsæl til útivistar en þar eru hvítir sandar í stór­brotnu umhverfi,“ segir í upplýsingum um tillöguna á Skipulags­gátt.

„Áætlað er að nýta núverandi aðkomuveg að Holts­bryggju sem aðkomu að baðstaðnum og nýta gömlu malbikuðu flug­brautina fyrir aðkomu og bílastæði. Núverandi vegaslóði frá flug­brautarenda niður í gamla sandnámu í Holts­fjöru verði nýttur sem aðkoma gesta frá bíla­stæðinu að böðunum. Sjálf böðin eru áformuð í gamalli sandnámu sem þarna er í fjörunni.“

Fyr­ir­huguð stað­setn­ing bað­lónsBaðlónið yrði við Holts­bryggju þar sem hvítur sandur prýðir Holts­fjöru.

Í tillög­unni kemur fram að mannvirki vegna baðanna verði að mestu leyti bundin við svæði sem nú þegar hefur verið raskað vegna flug­vallarins og námunnar. Ekki er til deili­skipulag fyrir svæðið og breyta þarf aðal­skipulagi Ísafjarðar­bæjar til þess að breytingarnar verði að veruleika. „Þá er áfram miðað við að almenningur hafi aðgang að fjörunni og þar verði opin sturtu­aðstaða fyrir öll sem vilja baða sig í sjónum, hér eftir sem áður, án þess að fara í böðin.“

Heildar­kostnaður við framkvæmdina verður 1,5 milljarður króna og mun reksturinn skapa 20 ársverk, að því fram kemur í umfjöllun Bæjarins besta.

Spyr hvort baðlón þurfi alls staðar

Halla Signý hefur búið í Holti í Önundar­firði, steinsnar frá Holts­fjöru, og er verkefna­stjóri hjá Fræðslu­miðstöð Vestfjarða. Uppruna­lega er hún frá Brekku á Ingaldssandi yst í firðinum.

Hún skrifar grein í héraðs­miðilinn Bæjarins besta þar sem hún mótmælir hugmyndinni. „Nú er svo komið að það þarf að vera baðlón hringinn í kringum landið, helst svo mörg að ferðamenn nái ekki að láta hárið þorna á milli lóna,“ skrifar Halla Signý. „Gott og vel, baðlón eru ágætis viðbót, mörg falleg, þrifaleg og bjóða upp á góða en auðvitað dýra þjónustu en við þurfum að spyrja okkur, er það sem okkur vantar, alls staðar?“

Halla Signý Krist­jáns­dóttirFyrr­ver­andi þing­maður segir svæðið eiga sér merka sögu.

Hún bendir á líflegt fugla- og dýralíf á svæðinu og það að líklega megi telja um 4000 hreiður á þeim sex jörðum sem æðar­ræktinni er sinnt við fjörðinn. Æðarvörp séu friðlýst þrjá mánuði á ári. „Áætlað baðlón kúrir fyrir miðju svæði þar sem fjórar jarðir sinna æðarrækt,“ skrifar Halla Signý. „90% af æðardúni sem nýttur er í heiminum kemur frá Íslandi enda hefur æðar­fuglinn notið friðar hér frá árinu 1786 og alfriðaður á Íslandi frá árinu 1847. Fuglinn hefur notið mikillar virðingar hér á landi frá upphafi byggðar.“

Þá skrifar hún að Gull­ströndin, eins og ströndin við Holts­fjöru er stundum kölluð, eigi sér merka sögu. „Gull­ströndin er, fyrir fólkið í firðinum, ímynd kyrrðar og fegurðar, hvernig ætlum við að verðmeta það? Við það mat er hægt að líta til frið­landsins Horn­stranda. Líklega er enginn sem vill ganga til baka með þá ákvörðun að nýta og njóta þeirra eins og þær eru, því í nátt­úrunni sjálfri er auðurinn fólginn. Hún yrði ekki mögnuð upp þótt þar risi milljarða afþreying því fólkið er að sækja í nákvæmlega það sem þar er að finna. Sama á við um Holts­fjöruna.“

„Glimrandi og dýr afþreying en því miður er stað­setningin skelfileg, já og skaðleg“

Loks segir hún að heildar­myndin hafi ekki verið skoðuð og ekki allar breytur teknar inn í myndina. „Hugmyndin að baðlóni er komin á blað, á meðan hún var í háloftunum, var þetta falleg bygging, ágæt hugmynd, glimrandi og dýr afþreying en því miður er stað­setningin skelfileg, já og skaðleg.“

Tillit tekið til athugasemda

Runólfur Ágústsson, framkvæmda­stjóri Hvíta­sands ehf. sem stendur að verk­efninu, segir í svari við grein Höllu Signýjar að ekki sé um baðlón að ræða, eins og þingmaður fyrr­verandi lýsti verk­efninu. Til standi að á svæðinu verði „gufuböð, heitur pottur og setlaug sem starf­rækja á yfir sumar­tímann og er á stærð við þokkalegt einbýlishús að grunn­fleti,“ skrifar Runólfur.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Gróðavon ræður ferðinni sem endranær. Ömurlegt.
    0
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Mér skilst að spóa fari fækkandi á Íslandi. Það kemur fram í greininni að hann verpi á svæðinu. Það verður vonandi tekið tillit til þess við þessa framkvæmd þannig að hún bitni ekki á spóanum, eða öðrum fuglum.
    2
  • KKJ
    Katrin Kinga Jósefsdóttir skrifaði
    Ótrúleg skammsýni, hversu oft getur þjóðin sagað greinina sem hún situr sjálf á ? Fjaran verður aldrei eins aftur og ef heimurinn á sér yfir höfuð einhverja framtíð þá hvernig verður hún hjá komandi kynslóðum sem erfa munu landið ?
    3
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Æðarvarp er oft ekki búið, fyrr en um miðjan júlí. En þótt varpið sé búið, eru kollurnar með litla unga lengur, við landið áður en þær fara dýpra.Ef af þessu verður, á þá að opna staðinn frá og með 15.júlí?
    2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Náttúruvernd hefur ekki vafist fyrir þessum fyrrum þingmanni þegar reisa á virkjanir eða koma upp laxeldi. Eini gallinn við þessa baðströnd er að hún er ekki nógu stór í sniðum.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið undanfarið ár