Filippus Arabi: Ný og kristin Róm úti í eyðimörkinni?

Árið 244 varð hinn svo­nefndi Filippus Arabi keis­ari Rómar á miklum róstu­tímum. Hann náði að koma undir sig fót­unum en kann líka að hafa átt sér leynd­ar­mál.

Filippus Arabi: Ný og kristin Róm úti í eyðimörkinni?
Filippus Arabi í fullum her­klæðum. Myndin er unnin af gervi­greind eftir styttu og her­for­ingja­myndum.

Árið 244 útnefndu her­deildir Róma­veldis í Mesópótamíu nýjan keis­ara í stað hins korn­unga Gordíanusar 3. sem lét þar lífið. Nýi keis­ar­inn var fer­tugur arab­ískur her­deild­ar­for­ingi að nafni Filippus. Ýmsa grun­aði að hann hefði látið myrða Gordíanus til að kom­ast sjálfur í valda­stól­inn en það er alveg óvíst; gæti þó verið satt.

Hitt er óum­deilt að strax og Filippus hafði verið kall­aður til keis­ara af her­deild­unum lagði hann af stað til Róma­borgar til að leita stuðn­ings öld­unga­ráðs­ins þar við valda­töku sína.

Og það var brýnt erindi.

Hafnir yfir lög

Miklar róstur höfðu verið í heims­veld­inu í mörg ár og fæstir keis­arar sátu nema örfá ár og sumir bara nokkra mán­uði – þá var þeim steypt af stóli af öðrum valda­poturum og ekki síst her­for­ingjum sem vildu kom­ast að.

Mikið var í húfi. Róm­ar­keis­arar voru í raun ein­ráðir og yfir öll lög hafnir. Öld­unga­ráðið sem hafði ráðið ferð rík­is­ins á lýð­veld­is­tím­anum var nú fyrst og fremst upp á punt; stimp­ilpúði í emb­ætt­is­manna­kerf­inu fyrir keisar­ann.

Við mjög við­kvæmar aðstæður gat stuðn­ingur ráðs­ins þó skipt máli. Þar sátu þrátt fyrir allt flestir rík­ustu karlar rík­is­ins.

Mátti búast við uppreisnum

Því var það sem Fil­ippusi lá svo á að kom­ast strax til Rómar. Hann gaf upp á bát­inn allar til­raunir Gordíanusar til að vinna Mesópótamíu af Persum og afhenti Sjapúr 1. Per­sa­kóngi meira að segja Armeníu líka. Það ríki hafði verið stöðugt bit­bein Rómverja og Persa um aldir.

Og enn er ekki allt talið því Filippus borg­aði Persum að auki 500 þús­und den­ara í gulli fyrir að semja um frið og var það geypihá upp­hæð. Seinna varð alsiða að Róm­verjar borg­uðu fjendum sínum sjóði gulls fyrir að láta landa­mærin í friði en árið 244 var það enn óal­gengt og þótti nið­ur­læg­ing fyrir hið mikla her­veldi að grípa til þess ráðs.

Því mátti Filippus búast við and­stöðu og jafn­vel upp­reisnum gegn sér.

Hann skildi því Priscus bróður sinn eftir sem hæst­ráð­anda í aust­ur­hluta rík­is­ins og reið sem hrað­ast til Rómar.

Tvö keisaraefni

Heim­ildir eru til um að öld­unga­ráðið hafi þegar verið búið að skipa arf­taka Gordíanusar og það tvo frekar en einn, því sá fyrri, heim­spek­ing­ur­inn Marcus, dó skyndi­lega áður en hann gat svo mikið sem sest í hásætið. Sá seinni, Severus Hostil­í­anus, veikt­ist líka skyndi­lega og það svo illa að hann svipti sig umsvifa­laust lífi frekar en takast sjúkur á við keis­ara­emb­ættið. 

Hvort þessi tvö skamm­lífu keis­ara­efni voru yfir­leitt til er ekki gott að segja. Hitt er víst að þegar Filippus Arabi náði til Rómar, þá tókst honum að tryggja sér svo afdrátt­ar­lausan stuðn­ing höfð­ingj­anna í ráð­inu að hann taldi sig öruggan. Það má sjá af fyrstu ráð­stöf­unum hans sem keis­ari eftir að til Rómar kom. Þá skip­aði hann sex ára son sinn sem krón­prins og útnefndi konu sína, Marciu Otasiliu Severu, sem keis­ara­ynju eða ágústu.

Eiginkonan var skörungur

Það var ekki sjálf­gefið að kona keis­ar­ans fengi þá nafn­bót en Filippus og Marcia virð­ast hafa verið sam­rýmd hjón og hún var traustur félagi hans í sókn­inni eftir æðstu met­orðum. Marcia var ekki arab­ísk eins og hann heldur af rót­grónum valda- og emb­ætt­is­manna­ættum í Róm. Sumir trúa því að Marcia hafi í raun att manni sínum út á met­orða­braut­ina. Arab­ískur her­for­ingi hefði ann­ars varla farið að stíga þau skref sem Filippus hafði nú gert.

Víst má vera að Marcia hafi verið skör­ungur og metn­að­ar­full en það er þó jafn­ljóst að Filippus var ekk­ert smeykur við að vekja athygli á upp­runa sínum og virð­ist hafa verið afar stoltur af arab­ískum upp­runa sínum. Hann lét ekki bara taka hinn arab­íska föður sinn í guða­tölu – en það var nær eins­dæmi að sú tign væri veitt öðrum en keis­urum – heldur fyr­ir­skip­aði hann nú að fæð­ing­ar­borg hans, Sjaba, í skatt­land­inu Arabiu Petreu skyldi byggð upp og stór­aukin.

Byggingameistarar ráku upp stór augu

Þegar hann hélt af stað til Rómar skildi hann eftir plön og teikn­ingar um nýtt skipu­lag Sjaba og metnað hans fyrir hönd fæð­ing­ar­borg­ar­innar skorti sann­ar­lega ekki. 

Sjaba hafði verið fámennur smá­bær, nán­ast þorp, en nú lét Filippus svo um mælt að hann ætl­aði að breyta henni í stór­borg sem ætti að jafn­ast á við Rómaborg sjálfa! Bygg­inga­meist­arar og verka­menn sem sendir voru út í hrjóstruga storð­ina á mörkum eyði­merkunnar hafa vafa­lítið rekið upp stór augu er þeir heyrðu það en orð keis­ar­ans voru lög.

Þegar var því haf­ist handa um að reisa marg­vís­leg mann­virki í sam­ræmi við reita­skipu­lag dæmi­gerðar róm­verskrar borgar. Þarna á svæð­inu má enn sjá ljóm­andi snot­urt sex­hyrnt must­eri og einnig helgi­stað af gerð­inni kab­yle, sem ætl­aður var til að votta virð­ingu heima­g­uðum og/eða Róm­ar­keis­urum í guða­tölu.

Hlaðið undir heimaborgina

Einnig var í snatri reistur sig­ur­bogi, ein­falt úti­leik­hús, mynd­ar­leg stjórn­sýslu­bygg­ing (basi­líka) og önnur til heið­urs Fil­ippusi og svo nátt­úr­lega bað­hús. Þau spruttu upp hvar­vetna þar sem Róm­verjar stöldr­uðu við. Þá var leitað að upp­sprettum í nágrenn­inu og und­ir­bún­ingur haf­inn við að leiða vatns­leiðslu (aquaduct) til hinnar nýju Fil­ippopólis.

Filippus hugð­ist ekki aðeins reisa stór­borg í Sjaba heldur vildi líka ýta mjög undir Bosra, sem var höf­uð­borg róm­verska skatt­lands­ins Arabiu Petreu, tæpa 50 kíló­metra frá hinni nýju Fil­ippopólis. Þar hrinti hann af stað leikum til heið­urs bæði Róm­ar­keis­urum og Dúsjara, sem virð­ist hafa verið meg­in­guð Arabanna þar um slóðir. Helgi­staðir til­eink­aðir honum hafa fund­ist all­víða, til dæmis í Napólí en þar lögðu að skip sem fluttu varn­ing frá Arabíu.

Deilt um guðdóminn

Í Bosra virð­ist raunar hafa verið einkar blóm­legt trú­ar­líf. Þar var stór sýna­góga Gyðinga og þar fædd­ist og hélt lengi til einn helsti spek­ingur Gyðinga um þær mundir, Shimon ben Lakish, en hann var stiga­maður og gladíator áður en hann lagð­ist í þunga þanka Gyð­ing­dóms­ins. Og kristnir menn voru líka nokkuð fjöl­mennir í Bosra. Í keis­ara­tíð Fil­ippusar Araba voru haldnar þar tvær mik­il­vægar ráð­stefnur kirkju­feðra – en kór­rétt kenn­ing krist­in­dóms­ins var þá enn í mótun.

Beryllus biskup í Bosra vildi ekki fall­ast á það trú­arat­riði að Jesúa frá Nasaret hefði verið til sem guð­leg vera áður en hann fædd­ist af Maríu. Hann taldi líka að þegar hver maður and­að­ist dæi sál hans um leið, þótt Guð gæti svo end­ur­lífgað hana á efsta degi ef hann svo kysi. Origen og fleiri kirkju­feður sett­ust að Beryllus bisk­upi á ráð­stefn­unum tveim og hann við­ur­kenndi að lokum að skoð­anir hans væru hrein­asta villu­trú.

Kristnir menn sárafáir

Vera má að Filippus keis­ari hafi átt ein­hvern þátt í að ráð­stefn­urnar tvær um þessi blæ­brigði krist­in­dóms­ins voru haldnar í Bosra árin 246 og 247. Það er nefni­lega sagt að hann hafi verið krist­inn og reyndar Marcia kona hans líka.

Þótt heim­ildir um það séu ekki óyggj­andi væri það ansi merki­legt ef svo væri. Yfir­leitt er talið að fyrsti kristni keis­ar­inn hafi verið Kon­stant­ínus mikli sem gekk til orr­ustu undir kross­ins merki árið 313, eða 70 árum eftir að Filippus varð keis­ari.

Um árið 240 var krist­in­dóm­ur­inn vissu­lega í sókn í Róma­veldi en þó til­heyrðu aðeins 2–3 pró­sent íbúa kirkj­unni. Má til sam­an­burðar geta þess að nú um stundir til­heyra um 3,5 pró­sent Íslend­inga kaþ­ólsku kirkj­unni. Ekkert sér­stakt benti til þess að sá kvistur út af Gyð­ing­dómnum sem kristnin var myndi innan aldar verða útbreiddasta trú í rík­inu og síðan í ver­öld víðri.

„Keis­ara­tíð Fil­ippusar hefði getað skipt mjög miklu máli í sögu krist­in­dóms­ins“

Ofsóknir gegn kristnum mönnum?

Og kristnir menn sættu alls ekki stöð­ugum ofsóknum yfir­valda þótt ofsókna yrði vissu­lega vart með margra ára­tuga milli­bili og oft­ast í mjög tak­mörk­uðum stíl. Á tímum Fil­ippusar voru 30 ár síðan Septimus Severus hafði síð­ast beitt sér fyrir ofsóknum gegn kristnum mönnum og eru „ofsóknir“ þó eig­in­lega ofmælt í því sam­bandi.

Það er því ekki víst að Filippus og Marcia hefðu talið sig þurfa að fara í felur með að þau væru farin að aðhyll­ast kenn­ingar krist­in­dóms­ins.

En raunar er til sú kenn­ing að keis­ara­tíð Fil­ippusar hefði getað skipt mjög miklu máli í sögu krist­in­dóms­ins, hefði raunar getað valdið ger­bylt­ingu, ef hann hefði ekki dáið einmitt þegar hann dó. En frá því segir í næstu grein en þá förum við þó fyrst með Fil­ippusi Araba í ein­hverja mestu og glæsi­leg­ustu afmæl­is­veislu sög­unnar. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár