Djúpt í gróðursælum frumskógi Austur-Indónesíu sendir Bokum, sem tilheyrir einu síðasta veiðimanna- og safnarasamfélögum landsins, skýr skilaboð til nikkelnámumanna sem ógna heimkynnum hans: „Þetta er okkar land.“
Hann tilheyrir Hongana Manyawa-frumbyggjaþjóðinni, sem telur um 3.000 einstaklinga sem hafa haft takmörkuð samskipti við umheiminn, auk um 500 sem hafna allri snertingu við nútímann.
„Ég er hræddur við að þeir haldi áfram að eyðileggja skóginn“
Heimili þeirra á Halmahera-eyju var áður ósnortin náttúruparadís, en sá veruleiki breytist nú hratt með stækkun stærstu nikkelnámu heims. Indónesía nýtir nú gríðarlegar nikkelbirgðir sínar til framleiðslu á allt frá ryðfríu stáli til rafbíla.
„Ég er hræddur við að þeir haldi áfram að eyðileggja skóginn,“ segir Bokum við AFP í litlu rjóðri í miðri Halmahera. „Við höfum enga hugmynd um hvernig við lifum af án heimkynna okkar og fæðunnar þaðan.“
Aðstæður Hongana Manyawa – Skógarfólksins – vöktu athygli innan Indónesíu á síðasta ári þegar myndbandi var …
Athugasemdir