Holdsveikir glíma enn við fordóma í Eþíópíu

Þúsundir veikj­ast árlega af holds­veiki í Eþíópíu þrátt fyrir opin­bera útrým­ingu sjúk­dóms­ins árið 1999. Sjúk­lingar glíma við félags­lega útskúfun, en með­ferð og fræðsla eru að skila árangri. Nýlegur nið­ur­skurður á alþjóð­legri þró­un­ar­aðd­stoð USAID ógnar fram­förum.

Holdsveikir glíma enn við fordóma í Eþíópíu
Vefa Sjúk­lingar með holds­veiki vefa hefð­bundið eþíópískt gabi-bómull­ar­efni við hand­verks­stöð á Alert sér­hæfða spít­al­anum í Addis Ababa. Enn grein­ast 2.500 holds­veikismit á hverju ári. Mynd: Amanuel Sileshi / AFP

Tilahun Wale missti ekki aðeins hægri fót­inn vegna holds­veiki – sjúk­dóms sem enn hrjáir þús­undir í Eþíópíu – heldur missti hann einnig fjöl­skyld­una sína.

„Fjöl­skyldan mín yfir­gaf mig. Þau lok­uðu á núm­erið mitt og neit­uðu að tala við mig,“ segir Tilahun, 46 ára bóndi í Oromia-hér­aði, fjöl­menn­asta svæði Eþíópíu. Hann smit­að­ist af holds­veiki fyrir um tíu árum.

Eþíópía, sem er ríki með um 130 millj­ónir íbúa í Norð­austur-Afríku, lýsti holds­veiki opin­ber­lega útrým­dri sem lýð­heilsu­vanda árið 1999, þegar til­fellum fækk­aði og fóru niður fyrir að vera eitt á hverja 10.000 íbúa.

Samt eru um það bil 2.500 ný smit skráð þar á ári hverju, sam­kvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, WHO, sem telur holds­veiki vera einn af þeim hita­belt­is­sjúk­dómum sem of lítið hefur verið sinnt.

Í Eþíópíu, þar sem trú­ar­brögð gegna stóru hlut­verki í sam­fé­lag­inu, er holds­veiki oft talin refs­ing frá guði.

Sjúk­dóm­ur­inn stafar af bakt­er­í­unni …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár