Stöndugt Hval­veiðar hafa ekki skilað Hval hf. neinum hagn­aði en það hafa fjár­fest­ingar í öðrum og óskildum fyr­ir­tækjum hins vegar gert. Engu að síðar hefur fyr­ir­tækið dregið rúm­lega eitt þús­und lang­reyðar á land í Hval­firði, þar sem hval­irnir hafa verið flens­aðir undir berum himni. Mynd: Golli

Hvalveiðar í mínus – fjárfestingar í plús

Hvalur hf. mun ekki senda skip til veiða á kom­andi ver­tíð þrátt fyrir að hafa tryggt sér hval­veiði­leyfi sem aldrei rennur út. Óhag­stæður mark­aður, segir for­stjór­inn, en árs­reikn­ingar fyr­ir­tæk­is­ins sýna að veið­arnar hafa verið reknar með miklu tapi frá því að þær hófust að nýju árið 2006.

Eftir að hafa fengið hval­veiði­leyfi sem aldrei rennur út hefur verið tekin ákvörðun um að Hvalur hf. haldi ekki til veiða á kom­andi ver­tíð. Verð á hvala­af­urðum í Japan, eina mark­aðs­svæði fyr­ir­tæk­is­ins, hefur lækkað svo mikið að Kristján Loftsson, for­stjóri og aðal­eig­andi Hvals hf., telur ekki lengur for­svar­an­legt að stunda veið­arnar. 

„Staðan verður tek­in aft­ur á nýju ári,“ sagði hann við Morg­un­blaðið. Hvalur mun því halda áfram að beina sjónum sínum að þeirri starf­semi sem hefur fært eig­endum tug­millj­arða hagnað á und­an­förnum árum. 

Frá því að hval­veiðar voru heim­il­aðar eftir langt hlé árið 2006 hefur fyr­ir­tækið hagn­ast um 33,4 millj­arða króna. Það er þó ekki til­komið vegna veiða, þótt fyr­ir­tækið sjálft sé kennt við þessi spen­dýr og hafi í ára­tugi haldið úti nokkrum hval­veiði­skipum, sem öll heita Hvalur, og rekið hval­stöð í Hval­firði allan þann tíma. 

Tekj­urnar eru að langstærstu leyti fengnar með fjár­fest­inga­starf­semi í fyr­ir­tækjum …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár