Hvað gerðist á hinum fyrstu páskum: Alþýðubylting eða uppgangur nýlenduveldis?

Á páskum höfðu Gyðingar hinir fornu í heiðri flótta sinn undan kúgun. Eða hvað?

<span>Hvað gerðist á hinum fyrstu páskum:</span> Alþýðubylting eða uppgangur nýlenduveldis?
Þótt frá­sögn höf­undar Móse­bókar af flótt­anum frá Egifta­landi hafi gengið í ber­högg við sig­ur­glaðar frá­sagnir um herkónga stór­velda, þá gat hann ekki stillt sig um að láta Móse útrýma heilum her í lokin með hjálp Rauða hafs­ins.

Ég hjó höf­uðin af óvinum mínum og stafl­aði þeim í súlu fyrir utan borg­ar­hlið þeirra. Þá sem eftir lifðu fláði ég. Húðir þeirra lét ég negla á borg­ar­múr­ana … Ég drap 200.150 óvini, unga og gamla, karla og konur. Ég stafl­aði líkum þeirra í hauga …Ég brenndi borgir þeirra til grunna … Ég hjó af þeim hendur og fætur … Ég skar af þeim nef, eyru og fingur … Ég hneppti tug­þús­undir þeirra í þræl­dóm, þeir stynja undir oki mínu …“

Rómaðir fyrir grimmd

Þessum þokka­legu afreks­verkum lýstu kon­ungar Assyríu hinnar fornu á hendur sér, þeir sem fóru um Mið-Aust­ur­lönd með eldi og sverði tæpum þús­und árum fyrir upp­haf tíma­tals okkar. Assyría var í upp­sveitum Mesópótamíu eða Íraks en kon­ungar á borð við Assúrbanípal, Tígla­þpíleser og Senna­keríb lögðu undir sig heil­mikil svæði allt frá Egifta­landi til Anatólíu og þar á meðal Palest­ínu.

Assyr­íu­menn voru róm­aðir fyrir grimmd …

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    Alltaf sama sagan. Öflugari her = morð og hriðjuverk oft stutt með trúarbrögðum.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er hrollvekjandi að hugsa til þessa staðreynda, ekki það að sannfæringarkrafturinn á hverjum tíma í flestum samfélögum er ofar venjulegum skilningi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár