Fyrsti dagur aðalmeðferðar: „Mig grunaði strax að þetta væri Alfreð“

Einn þeirra sem kom fyrstur á vett­vang eftir lát hjón­anna í Nes­kaup­stað í ágúst síð­ast­liðnum var mágur hins ákærða. Hann sagði við aðal­með­ferð máls­ins að sig hefði strax hafa grunað Alfreð Erling um verkn­að­inn.

Fyrsti dagur aðalmeðferðar: „Mig grunaði strax að þetta væri Alfreð“
Aðal­með­ferð hófst í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun. Mynd: Golli

„Mig grun­aði strax að þetta væri Alfreð,“ segir mágur ákærða sem er vitni í máli gegn Alfreð Erling Þórð­ar­syni sem er ákærður fyrir að hafa orðið eldri hjónum að bana í Nes­kaup­stað í ágúst síð­ast­liðnum. Orðin lét hann falla í aðal­með­ferð máls­ins sem hófst í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun. Maðurinn var einn af þeim fyrstu til að koma að hjón­unum látnum ásamt föður sínum.

Faðir mágs­ins var góður vinur hjón­anna, sem hétu Björg­vin Ólafur Sveins­on og Rósa G. Bene­dikts­dótt­ir, og var vanur að fara til þeirra í morg­un­kaffi á hverjum degi. „Ég fór í hádeg­is­mat til mömmu og pabba [22. ágúst]. Þar fór faðir minn að lýsa yfir áhyggjum af því að hann næði ekki í þau,“ sagði mágur Alfreðs Inga fyrir dómnum í dag. 

Bróðir Björgvins kom að honum og Rósu látnum

Feðgarnir höfðu því sam­band við bróður Björg­vins. Hann var með lykla að heim­ili hjón­anna og fór á stað­inn að athuga málið.

Hann fór inn í húsið, kall­aði eftir bróður sínum og mág­konu og leit inn í nokkur her­bergi. „Svo tók ég eftir því að baðið var lokað og opn­aði það nátt­úru­lega. Þá sá ég bróður minn liggj­andi á gólf­inu þar og mág­kona mín fyrir aftan hurð­ina. Ég bara fraus og var alveg í sjokki,“ sagði hann fyrir dómnum. 

Mágurinn segir að þeir feðgar hafi strax farið nið­ur­eftir þegar þeir fengu sím­tal frá bróður hins látna. „Hann hringir strax í okkur, ég heyri að það er eitt­hvað mikið að. Við hlaupum frá mat­ar­borð­inu í bíl og ég hringi strax á Neyð­ar­lín­una á leið­inni.“

Þegar á Strand­göt­una, þar sem heim­ili hjón­anna er, var komið fór mágur ákærða inn í íbúð­ina þar sem hann sá Björgvin lát­inn á bað­her­berg­is­gólf­inu. 

„Það er allt klístrað í blóði á gólf­unum, á bað­inu er mikið blóð. Ég sé ekki Rósu fyrr en í seinna skiptið þegar ég kem inn.“ Eftir að hafa tekið lífs­mörk Björg­vins til­kynnti mág­ur­inn full­trúa Neyð­ar­lín­unnar að hann væri lát­inn og hann teldi að um morð væri að ræða. 

Sá Alfreð ganga hjá daginn áður

Mágurinn segir að sig hafi strax grunað að mágur sinn kæmi mál­inu eitt­hvað við og hafi tjáð við­bragðs­að­ilum það. Spurður af hverju hann hafi dregið þá ályktun sagð­ist hann hafa séð Alfreð ganga fram­hjá húsi hans, sem er tveimur húsum frá húsi hjón­anna, um kvöld­mat­ar­leytið dag­inn áður.

Hann sagði í vitn­is­burði lög­reglu á fyrra stigi máls­ins að hann hefði haft áhyggjur af því að Alfreð myndi gera eitt­hvað. Spurður nánar út í það sagði mág­ur­inn að hann ótt­að­ist slys eða eitt­hvað slæmt, en áður hafði kviknað í húsi Alfreðs. Fréttir frá fjöl­skyld­unni um geð­rænt ástand hans hafi ýtt undir slíkar hugs­anir.

Alfreð virð­ist ekki hafa átt í miklum sam­skiptum við Björgvin og Rósu en nokkur vitni minnt­ust á það að hann hefði komið til þeirra í áranna rás til að fá að borða. Það hefði þó dregið úr því á síð­ari tímum. „Hann kom þegar hann var svangur,“ sagði bróðir Björg­vins fyrir dómnum. 

Dynkir heyrðust í næstu íbúð

Þrjú ung­menni, sem voru stödd í íbúð í sama húsi og hjónin, lýstu upp­lifun sinni af umræddu kvöldi fyrir dómnum. Eitt þeirra sagði að hann hefði séð Alfreð Erling labba óhindrað inn í hús hjón­anna þegar þau keyrðu fram­hjá hús­inu um kvöld­mat­ar­leytið. Þá heyrðu þau öll dynki koma frá íbúð­inni við hlið­ina á stuttu síðar, en það var óvenju­legt að nokkuð heyrð­ist á milli.

„[Við förum] að heyra dynki og umgang hinum megin við vegg­inn og mig langar að segja að þetta hafi staðið yfir í svona fimm til sjö mín­útur,“ sagði eitt ung­mennið. Þau hefðu haldið að það væri verið að færa eld­hús­stóla eða önnur hús­gögn en hljóðin voru þó nógu óvenju­leg til að þau stopp­uðu hljóðin í sjón­varp­inu til að heyra betur hvað væri að ger­ast.

„Þá ákveða strák­arnir að þeir ætl­uðu að fara yfir og kíkja – bara for­vitn­ast.“ Þar sáu þeir mann sem stóð bak­við úti­dyra­hurð­ina en voru ekki vissir hvort um Alfreð væri að ræða. Þeir sneru til baka í íbúð sína. 

Upptekinn af djöflum við handtökuna

Hafþór skýrði frá því að honum hefði verið kunn­ugt um and­legt ástand mágs síns en þeir hafi ekki verið nánir. Alfreð Erling hefði til dæmis verið lagður inn á geð­deild fyrir norðan, þaðan sem hann hefði strokið. „Hann var að sýna kærust­unni minni [systur Alfreðs] myndir þar sem hann sá alls konar verur og púka í. Sem var í raun­inni bara krass sem við sáum.“

Önnur vitni nefndu áhuga Alfreðs Erlings á púkum og djöflum við aðal­með­ferð­ina. „Ég hef ekki átt mörg svona sam­töl við venju­legt fólk. Hann tal­aði um guð og djöf­ul­inn,“ sagði lög­reglu­þjónn sem sat við hlið Alfreðs í lög­reglu­bíl eftir hand­töku hans í Reykja­vík dag­inn eftir morðin.

„Hann var mjög rólegur, sam­vinnu­þýður. Hann sagð­ist hafa verið á leið­inni að Hall­gríms­kirkju, að vinna verk fyrir annað hvort Guð eða djöf­ul­inn. Sagðist ætla að kveikja á krossi fyrir framan Hall­gríms­kirkju,“ sagði lög­reglan sem tók eftir blóð­slettum á skóm og buxna­skálm Alfreðs. 

Alfreð hafi verið reiður vegna meintrar nauðgunar sonar hjónanna

Versl­un­ar­eig­andi í Nes­kaup­stað vitn­aði fyrir dómnum í gegnum fjar­fund­ar­búnað. Hann sagði að Alfreð hefði komið oft í búð­ina til sín í byrjun ára­tug­ar­ins en látið af því síðar meir því hann hefði farið að skulda honum pen­inga.

„Við spjöll­uðum oft. Hann segir mér frá því að hann hafi verið sak­aður um nauðgun. Næst þegar hann kom þá var búið að hreinsa hann af þess­ari nauðgun, en það hefði verið [...] sonur hjón­anna sem var ger­and­inn,“ sagði versl­un­ar­eig­and­inn. 

Alfreð hefði greini­lega verið reiður út í son­inn, sem hafði verið mik­ill vinur hans. „Einhvern tíma kemur hann og segir að mamma [manns­ins] hefði hreinsað hann [son sinn] af öllum sökum um þessa nauðgun. Veitt honum fjar­vist­ar­sönnun. Hann var reiður út í hana út af því. Það var í mars held ég, 2021. Nauðg­unin átti að vera haustið 2020.“

Versl­un­ar­eig­and­inn nefndi að á þeim tíma hefði Alfreð verið nokkuð stöð­ugur and­lega en upp úr 2021 hefði ástand hans farið að versna.

Versl­un­ar­eig­and­inn sagði að hann hefði oft selt Alfreð striga og máln­ingu til að hann gæti málað. „Hann var alltaf að mála. Þær [mynd­irnar] voru alltaf pínu abstrakt, dálítið af drottni og guðum og slíku.“ Versl­un­ar­eig­and­inn heyrði þó frá þriðja aðila að Alfreð hefði kveikt í öllum mynd­unum, að því er virt­ist vegna þess að hann sá eitt­hvað í þeim. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár