Baráttan fyrir því „dýrmætasta og fallegasta“

Baráttan fyrir því „dýrmætasta og fallegasta“

Barátta fyrir verndun útsýn­is­ins úr Laug­ar­nesi yfir í Viðey hefur leitt saman þær Þuríði Sig­urð­ar­dóttur og Stein­unni Jóhann­es­dóttur sem telja okkur sem nú lifum ekki hafa leyfi til þess að eyði­leggja þá fögru sjón­ása sem Reyk­vík­ingar hafa getað notið um aldir. „Þetta er lít­ill blettur sem við þurfum að slást um algjör­lega upp á líf og dauða,“ segir Steinunn.

Þuríður Sig­urð­ar­dóttir og Steinunn Jóhann­es­dóttir hafa kynnst á síð­ustu árum, í gegnum bar­áttu fyrir verndun Laug­ar­nestanga og því að útsýn­inu þaðan og út til Viðeyjar verði ekki spillt. Heim­ildin ræddi við þær báðar um teng­ingu þeirra við svæðið og af hverju þeim þykir nauð­syn­legt að verja bæði tíma sínum og orku í að ná eyrum fólks um mik­il­vægi þess að ekki verði ráð­ist í upp­bygg­ingu sem spilli sjón­ásum af úti­vist­ar­svæð­inu á tang­anum.

Þuríður hefur ramma taug til Laug­ar­ness­ins. Þar er hún nefni­lega fædd og upp­alin, en á ekk­ert þar í dag nema góðar minn­ingar. Hún er búsett í Garðabæ en kemur reglu­lega í Laug­ar­nesið til að fara í fjör­una. „Ég tel að það sé svo mik­il­vægt að fólk sem býr í borg eigi mögu­leika á griða­stað sem Laug­ar­nes­fjaran er,“ segir Þuríður …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár