Litir og blóm aðventunnar

Elísabet Ómars­dóttir er inn­an­húss­arki­tekt sem búsett er í París. Hún deilir hér til­lögu að lita­pal­lettu fyrir hátíð­arnar og blómum sem veita hlýju á þessum dimma tíma.

Litir og blóm aðventunnar

Aðventu­lita­pal­lettan getur von­andi veitt ykkur inn­blástur, sett tón­inn fyrir árs­tíð­ina og skapað hátíð­legt and­rúms­loft, til dæmis þegar kemur að skreyt­ingum, inn­pökkun eða föndri. Þó að hefð­bundnir jóla­litir séu allt um kring í des­em­ber þá er um að gera að setja sinn per­sónu­lega smekk og stíl á heim­ilið og velja þá liti sem maður heill­ast af þegar kemur að því að skreyta heim­ilið, jóla­tréð eða mat­ar­borðið.

Inn­blást­ur­inn að lita­pal­lett­unni kemur frá hátíð­ar­matnum, jóla­skrauti og jóla­ljósum.

Lita­pal­lettan inni­heldur djúp­rauðan, sem við tengjum oft við hlýju, ást, gleði og teng­ist oft jóla­svein­inum og jóla­skrauti. Fallegan greni­grænan, sem táknar nátt­úr­una og end­ur­nýjun eins og sígræn fura eða nor­manns­þinur. Kastan­íu­hnetur, sem er hlýr og jarð­bund­inn litur og minnir mig á nota­leg­heit og nátt­úr­una. Kremaðan ljós­tóna blæ sem virkar vel sem grunn­litur og minnir á jóla­stjörnu. Til að bæta smá tvisti við pal­lett­una þá kemur silfr­aður alltaf sterkur inn, en sá litur táknar eitt­hvað tært og vetr­ar­feg­urð sem við sjáum í snjó og ís. 

Þegar þú velur þína jóla­lita­pal­lettu skaltu hugsa um þinn heild­ar­stíl, and­rúms­loftið sem þú vilt skapa og hvort þú vilt hafa jafn­vægi á milli þess sem er hefð­bundið og nútíma­legt. Hvort sem það er klass­ískt rautt, grænt útlit eða ein­hver nýtísku­legri litur þá mun lita­val þitt setja stemn­ing­una og lífga upp á hátíð­ar­yf­ir­bragð heim­il­is­ins. Það er hægt að blanda saman alla­vega lita­pal­lettum og bæta svo við ýmsum áferðum, eins og gull, silfur og flauel.

Blóm og kransar 

Blóm lífga svo sann­ar­lega upp á heim­ilið og sér­stak­lega þegar dag­arnir eru styttri, frost og snjór úti. Á þessum árs­tíma finnst mér fersk blóm í fal­legum vasa gera mikið fyrir mig og heim­ilið. 

Holly er eitt af mínum upp­á­halds­blómum til að hafa í vasa í des­em­ber, fal­leg rauð ber með brak­andi ferskum grænum lauf­blöðum. Jóla­stjarna er ómissandi á mörgum heim­ilum og er án efa þekktasta jóla­plantan og vin­sæll kostur til að skreyta með á aðvent­unni.

Jólakrans er algeng hefð í mörgum löndum sem skreyt­ing á vegg, hurð eða arni. Krans­arnir gefa alltaf auk­inn sjarma á heim­ilum fólks. Það er líka frá­bær hefð að hitt­ast með vina­hópnum og búa til fal­legan krans saman. 

Lita­pal­lettan er oft rauð, græn, gyllt og hvít, sem end­ur­speglar þessa klass­ísku hátíð­ar­liti. Það eru auð­vitað enda­lausir mögu­leikar í boði að töfra fram fal­legan krans, það er hægt að nota rauð ber, köngla, þurrkuð blóm eða eucalyptus-lauf til að setja þinn per­sónu­lega stíl á krans­inn og bæta svo við ein­hverjum borða í heill­andi jóla­lit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár