Halla bíður með hamingjuóskir til Trumps

Ólíkt for­vera hennar á for­seta­stóli hyggst Halla Tóm­as­dóttir ekki senda Donald Trump heilla­óskir strax eftir kjör hans til for­seta Banda­ríkj­anna.

Halla bíður með hamingjuóskir til Trumps
Halla Tóm­as­dóttir Fer aðra leið en for­veri hennar þegar við­kemur Donald Trump. Mynd: Golli

Ólíkt for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra Íslands hefur for­set­inn, Halla Tóm­as­dóttir, enn ekki sent Donald Trump heilla­óskir eftir að hann fór með sigur af hólmi í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá for­seta­emb­ætt­inu hyggst hún bíða með ham­ingju­óskir fram á næsta ár.

Viðbrögð Höllu við kjöri Trumps eru frá­vik frá við­brögðum for­vera hennar, Guðna Th. Jóhann­es­sonar, sem óskaði Donald Trump til ham­ingju með kjör hans strax 9. nóv­em­ber 2016, dag­inn eftir að hann var kos­inn for­seti fyrra sinnið.

„Forseti Íslands mun senda verð­andi for­seta Banda­ríkj­anna heilla­óskir í bréf­formi fyrir hönd íslensku þjóð­ar­innar þegar hann verður form­lega settur inn í emb­ætti í jan­úar,“ segir í svari frá skrif­stofu for­seta Íslands við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. Þar kemur einnig fram að for­set­inn hafi ekki átt nein sam­skipti „við Donald Trump í tengslum við kjör hans“. Trump verður settur inn sem for­seti 20. jan­úar næst­kom­andi.

Bæði Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra þegar óskað Trump til ham­ingju, eins og margir þjóð­ar­leið­togar, og lýst yfir til­hlökkun yfir sam­starfi með honum og stjórn hans. „Banda­ríkin eru sterkasta banda­lags­ríki Íslands og stærsta ein­staka við­skipta­land. Ég hlakka til að vinna með Trump-stjórn­inni að því að þróa lengra okkar langvar­andi sam­band sem vina og banda­manna,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra á X.

Í heilla­óskum sínum við fyrra kjör Trumps not­aði Guðni Th. Jóhann­es­son, þáver­andi for­seti, tæki­færið til að minna Trump á gild­is­mat þjóð­anna. „Enda þótt Banda­ríkin væru eitt stærsta lýð­ræð­is­ríki ver­aldar en Ísland eitt hið minnsta deildu þjóð­irnar mörgum mik­il­vægum gildum; við styðjum ein­huga frelsi til hugs­ana og tján­ingar, jafn­rétti kynj­anna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð lit­ar­hafti eða trú,“ sagði hann.

Forsetar á Bessa­stöðumHalla Tóm­as­dóttir og Volody­myr Selenskí á Bessa­stöðum 29. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Aðeins eru tíu dagar frá því að Halla tók á móti Volody­myr Selenskí Úkra­ínu­for­seta á Bessa­stöðum, en Donald Trump hefur boðað frá­hvarf frá stuðn­ingi við Úkraínu, lýst Selenskí sem „mesta sölu­manni heims“, státað af góðu sam­bandi við Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta og boðað að hann geti endað Úkra­ínu­stríðið á einum sól­ar­hring, sem er að lík­indum ein­göngu mögu­legt með mik­illi eft­ir­gjöf við Rússa, einna helst á land­svæðum Úkraínu.

Halla hefur búið í Banda­ríkj­unum stóran hluta ævinna. Bæði var hún skiptinemi í banda­rískum mennta­skóla og svo starf­aði hún fyrir stór­fyr­ir­tækin Mars og Pepsi Cola eftir útskrift úr MBA-námi á 10. ára­tugnum.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • K Hulda Guðmundsdóttir skrifaði
    Ágætt hjá forseta Íslands að bíða með þennan beiska kaleik
    2
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    En ætlar Halla að stöðva xD mafíuna í starfsstjórn að gefa leyfi í náttúruauðlindir okkar? Byrjunin er Hvalur hvað svo? Þetta er starfsstjórn og allar stjórnmálalegar ákvarðanir eiga að bíða næstu ríkisstjórnar.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár