„Tengingin á milli auðsins og valdsins skýrari“

Ríkasti maður heims, Elon Musk, hefur sett millj­arða í að gera Donald Trump að for­seta og næst rík­asti maður heims hindr­aði að Kamala Harris fengi stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu Washington Post. Silja Bára Ómars­dóttir alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur segir skýr­ari teng­ingu auðs og valds birt­ast í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum.

„Tengingin á milli auðsins og valdsins skýrari“
Elon Musk Ríkasti maður heims lýsti því yfir í sumar að hann hyggð­ist verja 45 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða um 6 millj­örðum króna, í að gera Donald Trump að for­seta, en reyndin er að hann varði til þess 118 millj­ónum dala, eða nær 16 millj­örðum króna. Mynd: AFP

Ríkasti maður heims hefur stigið á svið með Donald Trump, for­seta­fram­bjóð­anda Repúblikana­flokks­ins, og næst­rík­asti maður heims stöðv­aði rit­stjórn fjöl­mið­ils­ins Washington Post, sem er í hans eigu, frá því að lýsa stuðn­ingi við and­stæð­ing Trumps, Kamölu Harris. 

Þannig hefur orðið vax­andi sam­runi valds og auðs orðið í for­seta­kosn­ing­unum í ár. 

Silja Bára Ómars­dóttir, alþjóða­stjórn­mála­færð­ingur og sér­fræð­ingur í banda­rískum stjórn­málum, segir í þætt­inum Út fyrir boxið, hér á Heim­ild­inni, að breyt­ing sé að verða. „Þetta er ein­kenni á ein­hverri hug­ar­fars­breyt­ingu eða breyttri afstöðu, teng­ingin á milli auðs­ins og valds­ins er að verða skýr­ari.“

Inngrip auðmanna í stuðningsyfirlýsingar

Upp­sagnir áskrifta hafa dunið á Washington Post síð­ustu daga. Forsagan er sú að næst­rík­asti maður heims, Jeff Bezos, keypti blaðið á 250 millj­ónir banda­ríkja­dala árið 2013 og hefur það verið rekið undir slag­orð­inu: Democracy Dies in Darkness, eða lýð­ræðið deyr í myrkr­inu. Þannig naut blaðið svo­kall­aðs „Trump bump“, þegar fólk flykkt­ist í áskrift að stór­miðlum eins og New York Times til þess að styðja sjálf­stæða fjöl­miðla gegn árásum Donalds Trump, sem lagði áherslu á að útmála fjöl­miðla sem lygna og fréttir þeirra falskar í upp­hafi stjórn­mála­fer­ils og for­seta­tíðar sinnar.

Jeff BezosSegir í grein í Washington Post, sem hann á, að fjöl­miðlum sé van­treyst.

Þegar leið­arateymi Washington Post hugð­ist lýsa yfir stuð­ingi við Kamölu Harris í for­seta­kosn­g­unum, með sama hætti og blaðið hefur lýst stuðn­ingi við valda fram­bjóð­endar síð­ustu ára­tugi, var hins vegar gripið inn í. Bezos útskýrði inn­gripið í grein í Washington Post eftir öldu upp­sagna á áskriftum. Hann sagði inn­gripið hafa verið ákveðið inn­an­húss, en rök­studdi ástæður breyttar stefnu með því að banda­ríska þingið nyti meira trausts en fjöl­miðlar í könn­unum. „Fag okkar nýtur minnst trausts allra. Eitthvað sem við erum að gera er ekki að virka. Flest fólk trúir því að fjöl­miðlar séu hlut­drægir. Hver sem sér þetta ekki fylgist ekk­ert með raun­veru­leik­anum og þau sem berj­ast gegn veru­leik­anum eru dæmd til að tapa.“ Um tíu pró­sent áskrif­enda Washington Post hafði sagt upp eftir inn­gripið, eða 250 þús­und manns.

„Fag okkar nýtur minnst trausts allra.“
Jeff Bezos
Eigandi Washington Post og þriðji rík­asti maður heims um blaða­mennsku.

Aðrir, meðal ann­ars fyrr­ver­andi rit­stjóri Washington Post, Marty Baron, að aðstæður séu óvenju­legar, þar sem lýð­ræðið sé hrein­lega að veði í kosn­ing­unum, vegna marg­vís­legra yfir­lýstra áforma Trumps um að auka völd sín, beita hernum og leita hefnda gegn and­stæð­ingum sínum, verði hann kjör­inn. 

Tuttugu pistla­höf­undar Washington Post und­ir­rit­uðu sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem fram kom að ákvörð­unin væri „frá­hvarf grund­vall­ar­gilda dag­blaðs­ins sem er [þeim] kært“.

Eigandanum hafði verið hótað

Þá hefur verið bent á hags­muna­á­rekstur Jeff Bezos, þar sem Trump hefur þegar ítrekað hótað Bezos vegna umfjall­ana Washington Post. Þar á meðal sakað Bezos um skattaund­an­skot í því sam­hengi. Þá hefur komið fram að Amazon, fyr­ir­tækið sem Bezos stofn­aði, hafi orðið af 10 billjóna doll­ara gagna­hýs­ing­ar­samn­ingi við banda­ríska alríkið 2019, sem full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins sögðu hafa verið vegna und­ir­óð­urs Trumps.

Líkt og Washington Post lét af fyr­ir­ætl­unum um að lýsa stuðn­ingi við Harris, ákvað vell­auð­ugur eig­andi stór­blaðs­ins Los Angels Times að koma í veg fyrir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu leið­arateymis við Harris fyrir tveimur vikum. Rit­stjóri umræðu­hluta blaðs­ins sagði upp störfum vegna inn­grips­ins. „Ég gerði ekki ráð fyrir að við myndum telja les­endum okkar hug­hvarf - þeir eru að mestu leyti stuðn­ings­fólk Harris,“ sagði rit­stjór­inn, Mariel Garza, eftir inn­gripið og upp­sögn­ina. „En tvennt veldur mér áhyggjum: Við erum á tíma­punkti þar sem maður segir mein­ingu sína hreint út, sama hvað. Og stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing var næsta rök­ræna skrefið eftir röð leið­ara sem við höfum skrifað um hversu hættu­legur Trump er lýð­ræð­inu, um van­hæfi hans til setu á for­seta­stóli, um hót­anir hans um að fang­elsa óvini hans. Blaðið hefur lýst yfir stuðn­ingi við for­seta­fram­bjóð­endur frá árinu 2008.

Gjöf til kjós­andaElon Musk afhendir hér kjós­and­anum Judey Kamora milljón doll­ara, eða tæpar 140 millj­ónir króna, á stuðn­ings­fundi til heið­urs Donalds Trump í Lancaster, Penn­syl­vaniu, í síð­ustu viku.

Billjónamæringur gefur kjósendum pening

Penn­syl­vania er lyk­il­ríki í banda­rísku for­seta­kosn­ing­unum. Þar fást 19 full­trúar af þeim 270 sem þarf til þess að fara með sigur af hólmi. Bæði Trump og Harris hafa notað loka­sprett­inn í kosn­inga­bar­átt­unni í rík­inu, en Trump er með stuðn­ing frá rík­asti manni heims, Elon Musk. 

Á hverjum degi afhendir Musk „kjós­anda“ í sveiflu­ríkj­unum milljón Banda­ríkja­dali, eða tæpar 140 millj­ónir króna, í nafni America PAC, sjóðs sem styður Trump í for­seta­kosn­ing­unum. Lög­fræð­ingur sam­tak­anna hefur þó við­ur­kennt að þiggj­endur milljón doll­ara hafi ekki verið valdir af handa­hófi, heldur séu þau sér­stakir tals­menn sam­tak­anna. Musk er aðal­eig­andi X - áður Twitter, SpaceX, sem hefur gert marga samn­inga um eld­flauga­skot við banda­ríska alríkið og bif­reiða­fram­leið­and­ans Tesla. Ef Trump verður kjör­inn mun Musk fá það sér­staka hlut­verk í nýjum aðgerða­hópi að skera niður í rík­is­út­gjöldum, ef marka má yfir­lýs­ingar Trumps. Á sama tíma hefur Musk ríka við­skipta­hags­muni gagn­vart ein­ræð­is­ríkj­unum Kína og Rúss­landi. Eftir að Musk tók yfir Twitter og breytti því í X í nafni mál­frelsis, hefur boð­skapur harðra hægri­manna orðið meira áber­andi en áður. Þannig hefur Washington Post greint frá því að af helstu 100 þing­mönnum sem eru á X ná aðeins þing­menn Repúblik­ana veru­legri dreif­ingu með færslur sínar, eða að verða „viral“.

Framlög Elon Musks til kosn­inga­bar­áttu Donalds Trump í gegnum hags­muna­fé­lagið America PAC eru talin nema um 118 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða yfir 16 millj­arða króna.  Musk hefur þó yfir að ráða um 270 millj­arða Banda­ríkja­dala eignum, eða um 37 billjónum króna, sem jafn­gildir 37 millj­ónum millj­óna króna.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2024

Sigur Trump í höfn
FréttirForsetakosningar í BNA 2024

Sigur Trump í höfn

Donald J. Trump er spáð sigri í for­seta­kosn­ing­unum og verður því að öllum lík­indum næsti for­seti Banda­ríkj­anna. Eftir að hafa tryggt sér kjör­menn frá Penn­syl­vaníu er Trump tal­inn eiga sig­ur­inn vísan. Frétta­miðlar ytra hafa enn sem komið er ekki stað­fest úrst­litin fyrir utan banda­rísku frétta­veit­una Fox sem lýsti Trump sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna fyrir skömmu. Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hefur óskað Trump til ham­ingju með sig­ur­inn.
Íslendingar í Bandaríkjunum fylgjast spenntir með kosningunum
FréttirForsetakosningar í BNA 2024

Íslend­ingar í Banda­ríkj­unum fylgj­ast spenntir með kosn­ing­unum

Banda­ríkja­menn kjósa sér for­seta í dag. Heim­ildin náði tali af tveimur Íslend­ingum sem eru búsettir í Banda­ríkj­unum. Báðir við­mæl­endur töldu lík­legt að Harris færi með sigur en mikil óvissa ríkir um úrslit kosn­ing­anna og sig­ur­mögu­leika fram­bjóð­end­anna. Skoð­ana­kann­anir benda flestar til þess að afar mjótt sé á mun­inum milli Harris og Trump.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár