Eftirsótt oddvitasæti Samfylkingar í Kraganum - Flosi Eiríksson aftur í pólitík

Flosi Eiríks­son er sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar á hött­unum eftir odd­vita­sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, en upp­still­ing­ar­nefnd mun raða á list­ann. Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir og Guð­mundur Árni Stef­áns­son hafa einnig lýst yfir vilja til að taka odd­vita­sætið.

Eftirsótt oddvitasæti Samfylkingar í Kraganum - Flosi Eiríksson aftur í pólitík
Flosi Hyggst snúa aftur í póli­tík­ina.

Flosi Eiríks­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópavogi, ætlar að sækj­ast eftir odd­vita­sæt­inu í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar. Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Guð­mundur Árni Stef­áns­son, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og bæj­ar­full­trúi í Hafn­ar­firði, hafa þegar gefið út að þau muni sækj­ast eftir sama sæti. 

Þórunn leiddi lista Sam­fylk­ing­ar­innar í kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum og var sú eina af lista flokks­ins í kjör­dæm­inu sem náði inn á þing. Ef miðað er við fylg­is­mæl­ingar að und­an­förnu er útlit fyrir að hagur flokks­ins muni vænkast og hann bæti við sig þing­mönnum í næstu kosn­ingum.

Flosi var bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópavogi á árunum 1998 til 2009 og hafði fyrir það verið vara­maður í fjögur ár.

Rétt eins og Flosi hyggst gera núna, steig Guð­mundur Árni aftur inn í starf Sam­fylk­ing­ar­innar nýlega, þegar hann leiddi lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2022, eftir að hafa verið sendi­herra í ára­tug. Hann hafði áður setið á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una og Alþýðu­flokk­inn, verið ráð­herra frá 1993 til 1994, og þar áður bæj­ar­stjóri í Hafn­ar­firði. 

Flosi var fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands á árunum 2018 til 2022 en í byrjun síð­asta árs bár­ust fréttir af því að hann hefði hafið störf sem ráð­gjafi hjá sam­skipta­fé­lag­inu Aton. Hann hefur áður starfað hjá KPMG og sem húsa­smiður. Flosi er í dag for­maður knatt­spyrnu­deildar Breiða­bliks.

Ekki náð­ist í Flosa við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár