Er alveg agalegt að vinna fyrir Pírata?

Fyrr­ver­andi starfs­menn Pírata sem Heim­ildin hafði sam­band við hafa mis­jafnar sögur að segja um störf sín fyrir flokk­inn á und­an­förnum árum. Nokkuð áber­andi starfs­manna­velta hefur verið hjá flokknum síð­ustu miss­eri. Einn fyrr­ver­andi starfs­maður segir upp­lifun sína hafa verið að tíu manns hafi talið sig vera yfir­mann hans.

Er alveg agalegt að vinna fyrir Pírata?
Píratar Mynd frá fundi sem boðað var til í gras­rót Pírata um miðjan sept­em­ber í nýjum húsa­kynnum flokks­ins við Hverf­is­götu. Mynd: Sigtryggur Ari

Nokkur starfs­manna­velta hefur verið í starfi Pírata und­an­farin ár, bæði á skrif­stofu flokks­ins og í starfs­lið­inu á þingi. Það vakti tölu­verða athygli á dög­unum er Atli Þór Fanndal, sam­skipta­stjóri þing­flokks­ins, var lát­inn fara eftir að hafa lent upp á kant við hóp sem hann kall­aði „flokks­eig­enda­fé­lagið“ í sam­tali við Heim­ild­ina.

Atli Þór staldr­aði mjög stutt við hjá Pírötum, en hann var ráð­inn inn í maí síð­ast­liðnum og lát­inn fara, að eigin sögn, vegna ósættis þing­flokks Pírata við aðkomu hans að kjöri til fram­kvæmda­stjórnar á aðal­fundi Pírata í byrjun sept­em­ber. Atli Þór hefur sagt að hann hafi nú bæst við langan lista fólks sem hafi engan áhuga á því að vinna fyrir þing­flokk Pírata.

En er sá listi langur? Heim­ildin hafði sam­band við ýmsa fyrr­ver­andi starfs­menn Pírata á und­an­förnum árum og fékk mis­jöfn svör, eins og gengur. Sumir kváð­ust sáttir við störf sín fyrir Pírata, en aðrir við­mæl­endur síður …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár