Nýhættur að skúra þegar hann fékk tilnefningu til Óskarsverðlauna

„Fangar hjartað“ var skrifað um Ljósbrot í Overly Honest Movie Reviews – í einni af fjöl­mörgum lof­sam­legum umfjöll­unum um mynd­ina – og þau orð lýsa henni vel. Myndin er nú sýnd á Íslandi, um leið og hún fer sig­ur­för um heim­inn. „Ég geri það sem ég vil. Það hefur verið mitt móttó,“ segir leik­stjór­inn Rúnar Rún­ars­son sem var á fyrsta ári í kvik­mynda­skóla þegar hann var til­nefndur til Ósk­arsverð­laun­anna.

Nýhættur að skúra þegar hann fékk tilnefningu til Óskarsverðlauna

Ljósbrot hlaut stand­andi lófa­klapp sem opn­un­ar­mynd á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes. Og nýverið var myndin útnefnd besta nor­ræna kvik­myndin þegar hún hlaut aðal­verð­laun kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Osló – fimmtu alþjóð­legu verð­launin.

„Við gerum það sem við þurfum að gera,“ segir Rúnar á sinn ein­læga en þó ákveðna hátt þegar hann er spurður út í feril sinn.

„Ég held að flest okkar sem vinnum í ein­hverju skap­andi gerum það út af ástríðu, ekki ver­ald­legri praktík. Það er ekki sjálf­gefið að svo­leiðis gangi eftir til að byrja með. Maður á vini og kunn­ingja sem eru rit­höf­undar, mynd­list­ar­menn og tón­list­ar­fólk – alls konar! Og veit að það er sama þótt fólk gangi líka í skóla að það er ekki sjálf­gefið við útskrift að það geti haft í sig og á og átt ein­hvern feril. Það þýðir ekki endi­lega að lista­maður sé ekki góður lista­maður. Alls ekki! Oft og tíðum lít …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár