Af glingrinu hans Guðna

Við emb­ætt­is­töku bera nýir for­setar gull­keðjur og stór­ridd­ara­stjörnur í kjól­fötum. Minnir helst á krýn­ingar erlendra kónga. Kannski eðli­lega.

Af glingrinu hans Guðna
Guðni og Eliza báru bæði stjörnu stór­kross­ridd­ara, lögum sam­kvæmt. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðni Th. Jóhann­es­son sór í gær eið að for­seta­emb­ætt­inu við hátíð­lega athöfn í Alþing­is­hús­inu. Athöfnin er ein sú form­fastasta í íslenskri stjórn­skipan enda byggir íslenska lýð­veldið að miklu leyti á þeim hefðum sem tíðk­uð­ust í herra­rík­inu Danmörku árið 1944. Þá var þeim köflum stjórn­ar­skrár­innar sem lutu að kon­ungi snúið svo for­seti væri hér æðsti lands­höfð­ingi.

Þannig hefur það verið allt síðan Sveinn Björns­son sór eið að emb­ætt­inu á Þing­völlum fyrstur manna 17. júní 1944, við stofnun lýð­veld­is­ins. Verandi rétt­kjör­inn þjóð­höfð­ingi Íslend­inga bar Guðni öll tákn þjóð­höfð­ingja Íslands; stór­kross með keðju stór­meist­ara hinnar íslensku fálka­orðu. Einnig bar hann á jakk­anum stjörnu stór­kross­ridd­ara fálka­orð­unnar. Eliza Reid, eig­in­kona Guðna, bar stjörn­una einnig.

Guðni bar stór­kross með keðju, æðsta stig hinnar íslensku fálka­orðu, og stjörnu stór­kross­ridd­ara. Eliza Reid bar einnig stjörn­una. Ólafur Ragnar Grímsson, frá­far­andi for­seti bar sinn stór­kross í borða.

Sem for­seti Íslands er Guðni orð­inn stór­meist­ari hinnar íslensku fálka­orðu og ræður því hverjir á end­anum hljóta orð­urnar. Orðu­nefnd veitir hins­vegar til­nefn­ingnar til stór­meist­ar­ans. Samkvæmt hefð­inni eru orð­urnar veittar að minnsta kosti tvisvar á ári; á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn 17. júní og á nýárs­dag. Síðan Kristján tíundi Dana­kon­ungur stofn­aði til orð­unnar sum­arið 1921 hefur hafa mörg­þús­und manns hlotið við­ur­kenn­ing­una á fjórum stigum.

Táknin sem Guðni bar eru þess vegna merki stór­meist­ara fálka­orð­unnar, fimmta og æðsta stigs fálka­orð­unnar. Í for­seta­bréfi um hina íslensku fálka­orðu segir að „[v]ið hátíð­leg tæki­færi“ skuli stór­meist­ar­inn bera orð­una í gull­inni keðju um háls­inn, auk stjörn­unnar. Þá fyrst fer orðan að verða nær ein­stök þegar hún hangir í gull­hlekkjum þar sem gullslegið skjalda­merki hangir á víxl við blá­steindan skjöld með mynd af silf­ur­fálka sem lyftir vængjum til flugs.

Stór­ridd­ara­kross í keðju er æðsta stig hinnar íslensku fálka­orðu. Forseti Íslands fær að bera það einn Íslend­inga.

Sigillum ordinis falconis Islandiæ

Slíkan skrúða bera ein­ungis þjóð­höfð­ingjar og aðeins einn Íslend­ingur hverju sinni, nefni­lega sitj­andi for­seti Íslands. Erlendum þjóð­höfð­ingjum hefur einnig verið veitt keðja stór­kross fálka­orð­unnar. Ásgeir Ásgeirs­son veitti Friðriki Dana­kon­ungi þennan heiður í fyrstu opin­beru heim­sókn íslensk þjóð­höfð­ingja til Dan­merkur árið 1954. Elísabet II Eng­lands­drottn­ing fékk einnig slíka gjöf frá Ásgeiri er hann flaug til London níu árum síðar, svo aðeins tvö dæmi séu tekin.

Fyrr­ver­andi for­setar Íslands, þau Vigdís Finn­boga­dóttir og Ólafur Ragnar Grímsson, báru sínar orður við emb­ætt­is­töku Guðna. Glöggir áhorf­endur hafa kannski tekið eftir að þau báru bæði stór­kross­inn í borða yfir brjóstið og niður á mitti, auk silfraðrar stór­kross­stjörnu.

Hand­hafar for­seta­valds­ins, þeir Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra, Markús Sig­ur­björns­son, for­seti Hæsta­réttar, og Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, báru sínar orður einnig. Markús var sæmdur stór­ridd­ara­krossi árið 2005 og Einar sæmdur stórr­ridd­ara­krossi árið 2014. Sigurður Ingi var sæmdur stór­ridd­ara­krossi nýverið eftir að hafa tekið við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Hand­hafar for­seta­valds­ins með orð­urnar sínar.

Aftan á öllum fálka­orðum stendur í gullslegnum stöfum „Seytj­ándi júní 1944“ til að minn­ast stofn­dags íslenska lýð­veld­is­ins. Og fálka­orðan hefur einnig eink­un­ar­orð: „Eigi víkja“, sem voru eink­un­ar­orð Jóns Sig­urðs­sonar í sjálf­stæð­is­bar­átt­unni á nítj­ándu öld­inni. Þá má geta þess að áletr­unin á inn­sigl­inu, sem er stór­kross­stjarnan, er á lat­ínu: „Sigillum ordinis falconis Islandiæ“ eða „Innsigli hinnar íslensku fálka­orðu“.

Torræð tákn í nútímanum

Sumum kann kannski að finn­ast þetta heldur mikið í lagt; óþarfa prjál þar sem púkkað er upp á stjórn­mála­menn og valds­leikjur hverjar sem þær kunna að vera. Það er hins vegar svo að um orðu­veit­ing­arnar gilda reglur og rök­styðja þarf hverja orðu­veit­ingu vand­lega. Ekki má svo gleyma að orðu­veit­ingar eru mik­il­vægt verk­færi í utan­rík­is­málum. Yrði ekki hver Íslend­ingur impóner­aður ef Guðna yrði veitt ridd­ara­tign t.a.m. í Bret­landi? Það væri í það minnsta til merkis um að ein­hver væri ánægður með Íslend­inga.

Mynd­málið kann hins vegar að vera torskilj­an­legra. Við myndun sam­fé­laga, hvort sem þau eru trú­ar­leg eða ver­ald­leg, verður til mynd­mál og þar liggur rótin í allri merkja­gerð. Allir þekkja til dæmis kross­inn sem er merki krist­inna manna og Dav­íðs­stjörn­una sem er merki gyð­inga. Íslenska lýð­veldið á á sama hátt skjald­ar­merki, og það hefur Reykja­vík einnig og Kópa­vogur.

Orðu­veit­ingar eru í eðli sínu sprotnar af róm­an­tískum hug­sjónum nítj­ándu aldar; það þarf að veita þeim sem hefur látið af sér gott leiða upp­hafn­ingu, útnefna sem mik­il­menn og reka þá til æðstu met­orða. Íslend­ingar áttu þess kost að hljóta danskar orður þar til 1921 þegar Kristján tíundi kom í heim­sókn til Íslands og stofn­aði hina íslensku fálka­orðu, að ósk Alþingis.

Í grein Guð­mundar Odds Magn­ús­sonar í haust­hefti tíma­rits­ins Sögu árið 2009 er fjallað um tákn­mynd­ina fálk­ann í hugum Íslend­inga. Hún var alls ekki ný þegar fálka­orðan var stofnuð heldur hafði fálk­inn verið not­aður í ýmsum inn­siglum þjóð­frels­is­sinna á síð­ari hluta 19. aldar. Fálkinn kom sér einnig nota­lega fyrir á skjald­ar­merki Íslands árið 1903 í stað­inn fyrir þorskinn. Síðar var land­vætt­unum komið á skjald­ar­merkið en fálk­anum leyft að hreiðra um sig á orð­unum.

Fálkinn er tign­ar­legur fugl og var hugs­an­lega val­inn sem tákn­mynd fyrir Ísland vegna mik­ils fálka­út­flutn­ings Íslend­inga á nítj­ándu öld og á önd­verðri 20. öld. Fyrst þegar fálk­inn var settur á skjald­ar­merkið árið 1903 var hann teikn­aður sitj­andi, með væng­ina með hlið­unum. Íslenskum þjóð­frels­issinnum þótti það hins vegar ekki nógu sterkt og þess vegna var ný mynd teiknuð á fálka­orð­urnar. Danski teikn­ar­inn Hans Christian Tegner var feng­inn til verks­ins og á teikn­ingu hans býr fálki sig til flugs með útþanda vængi. Það má kannski ráða dýpra mynd­mál í þessa nýju teikn­ingu enda hafði Ísland hlotið sjálf­stæði frá Dönum 1918 og var end­an­lega flogið á brott úr danska kon­ungs­rík­inu tveimur ára­tugum síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár