Guðni Th. orðinn forseti: Vill standa vörð um fjölbreytni og frelsi

Guðni Thorlacius Jóhann­es­son er orð­inn for­seti Íslands, sá sjötti í lýð­veld­is­sög­unni. Guðni var settur inn í emb­ætti við hátíð­lega athöfn í Alþing­is­hús­inu.

Guðni hóf ræðu sína á því að þakka fyrir traustið sem honum hafi verið sýnt með kjör­inu í emb­ættið og sagð­ist taka við því með auð­mýkt í hjarta. „Ég mun og vil þiggja ráð og leið­sögn frá ykkur öllum, fólk­inu í land­inu.“

Hann sagð­ist mundu vekja máls á því sem honum búi í brjósti. Hann ræddi um ýmis mál, það að á Íslandi ætti eng­inn að líða sáran skort, og um mik­il­vægi heil­brigð­is­kerf­is­ins og þess að allir hefðu að því jafnan aðgang. Hann tal­aði um nauð­syn þess að skila land­inu áfram til næstu kyn­slóða. Jafn­rétt­is­mál og mennta­mál komu einnig við sögu og for­set­inn vitn­aði einnig í Spilverk þjóð­anna og sagði: „Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir. Ein lítil býfluga afsannar það. Guð hjálpar þeim sem hjálp­ast að.“

Hann gerði fjöl­menn­ingu einnig að umtals­efni, og það fólk sem býr á Íslandi þótt það kunni litla eða enga íslensku. Íslend­ingar séu ekki eins eins­leitir og áður fyrr hafi virst. „Við játum ólík trúarbrögð, stöndum sum utan trúfélaga, við erum ólík á hörund, við getum heitið erlendum eig­innöfnum, þúsundir íbúa þessa lands eiga sér erlendan upp­runa og tala litla eða enga íslensku en láta samt gott af sér leiða hér. Við lifum tíma fjölbreytni og megi þeir halda áfram þannig að hver og einn geti rækt sín sérkenni, látið eigin drauma ræt­ast en fundið skjól og styrk í samfélagi manna og réttarríki hér á landi.“

Hann sagð­ist munu víkja oft að ýmsum sam­fé­lags­málum á for­seta­stóli. Hann sagð­ist vita að stjórnmálamenn­irnir beri þau einnig fyrir brjósti. „Þeirra er ábyrgðin og þeir setja lögin. Þau breyt­ast í tímans rás. Það á líka við um stjórnar­skrá okkar, grunnsáttmála samfélags­ins. Geti þingið ekki svarað ákalli margra lands­manna og yfirlýstum vilja stjórnmálaflokka um end­ur­bætur eða end­ur­skoðun er úr vöndu að ráða. Í þessum efnum minni ég á gildi áfanga­sigra og málamiðl­ana.“

Þá beri for­set­anum að stuðla að ein­ingu, bera virð­ingu fyrir skoð­unum ann­arra og var­ast að setja sig á háan hest.

Hann sagði að ólík sjón­ar­mið verði að heyr­ast og mál­efna­legur ágrein­ingur væri til vitnis um þroskað og siðað sam­fé­lag. „Ég vona einmitt að við stöndumst það próf þegar við kjósum nýtt þing í haust. Í kosn­ingum er tek­ist á um ólíkar stefnur og mark­mið en að þeim loknum verða þing­menn að vinna saman, finna lausnir, sýna sann­girni og beita þeim aðferðum sem auka virð­ingu þeirra sjálfra og hinnar aldagömlu stofn­unar, Alþingis.“

Þá sagði hann að Íslend­ingar þurfi ekki að vera tor­tryggnir eða ótta­slegnir um hag okkar á nýrri öld. „Hún er von­björt og full af fyr­ir­heitum. Vissu­lega geta ógnir leynst víða, það sanna dæmin því miður. Vissu­lega er gott að vera á varð­bergi og hart þarf að mæta hörðu þegar nauð­syn krefur. En trú á hið góða verðum við að varð­veita.“

Hann lauk ræðu sinni á því að segja: „Ég end­ur­tek að lokum þá ósk mína að við stöndum saman um fjölbreytni og frelsi, sam­hjálp og jafnrétti, virð­ingu fyrir lögum og rétti. Stöndum saman um þessi grunn­gildi góðs samfélags, vongóð og full sjálfs­trausts. Megi sú verða gæfa okkar um alla framtíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár