Af hverju er Beyoncé að syngja kántrí? – Af því að hún getur það

Gagn­rýnendur og aðdá­endur Beyoncé kepp­ast við að lof­sama nýja kán­trí­plötu drottn­ing­ar­innar: Cowboy Carter. En hvaða skila­boð er Beyoncé að senda?

Af hverju er Beyoncé að syngja kántrí? – Af því að hún getur það

„Þetta er ekki kán­trí­plata. Þetta er Beyoncé-plata,“ segir Beyoncé um plötu sína, Cowboy Carter, sem kom út í gær, á föstu­dag­inn langa. Með þess­ari yfir­lýs­ingu meinar drottn­ingin, Queen-B, kán­trí­brans­anum að eigna sér verk hennar á sama tíma og hún gerir til­raun til að gera mörk kán­trí og ann­arra tón­list­ar­stefna óskýr­ari. Og það virð­ist vera að takast. Eða hvað? 

Þegar Beyoncé mætti á Grammy-verð­launa­há­tíð­ina í byrjun febr­úar með kúreka­hatt mátti vita að eitt­hvað stórt væri í upp­sigl­ingu. Viku seinna steig Beyoncé form­lega inn í kán­trí­heim­inn þegar hún gaf út tvö ný lög, í hálf­leik á Ofur­skál­inni (e. Super Bowl). Annað þeirra, Texas Hold 'Em, er orð­inn hennar stærsti smellur í seinni tíð. 

En kán­trítón­list­ar­senan kippti sér lítið upp við þetta útspil Beyoncé. Það kann að breyt­ast nú þegar fyrstu dómar um plöt­una eru að detta í hús. Gagn­rýn­andi Guardian gefur Cowboy Carter fjórar stjörnur af fimm og segir plöt­una sýna að Beyoncé er „ótrú­lega fær um að gera hvað sem hún vill“. 

Cowboy Carter er átt­unda plata Beyoncé. Hún inni­heldur 27 lög og milli­spil (e. interlude). Á plöt­unni má finna kveðju frá engri annarri en Dolly Parton: „Hey miss Honey B, it's Dolly P. You know that hussy with the good hair you sing about?“ Þar vísar Dolly í texta­brot úr lagi Beyoncé, Sorry, frá 2016: „Becky with the good hair“. Að því loknu tekur Beyoncé við og syngur sína útgáfu af Jolene. 

Fleiri tök­u­lög er að finna á plöt­unni, þar á með Blackbird, einu ást­sælasta lagi Bítlanna. Textinn er eftir Paul McCartney og kom út árið 1968 á plöt­unni The Beatles, eða Hvíta albú­m­inu. Á yfir­borð­inu virð­ist það vera ósköp ein­falt, fal­legt þjóð­lag um svart­þröst með brotna vængi að syngja í næt­ur­kyrrð­inni. En lagið er alls ekki um fugl. 

McCartney samdi lagið á meðan hann fylgd­ist með rétt­inda­bar­áttu svartra í Banda­ríkj­unum. Brotnu vængirnir eru þráin eftir frelsi og Bít­ill­inn hafði bar­áttu svartra kvenna sér­stak­lega í huga þegar hann samdi lagið. Í bók sinni, Many Years From Now, sem kom út árið 1997, segir McCartney um Blackbird: „Þetta var í raun lag frá mér til svartrar konu sem var að ganga í gegnum þessa erf­ið­leika í Banda­ríkj­unum: „Leyfðu mér að hvetja þig áfram og halda áfram að reyna, halda í trúna. Það er von“.“ 

Það er því úthugsað hjá Beyoncé að flytja Blackbird á Cowboy Carter. Platan er miklu meira en bara kán­trí. Hún er svar Beyoncé við því hvernig kán­trísenan hefur jað­ar­sett aðkomu­fólk, sér­stak­lega svartar konur. Og hún vildi sýna hvernig það veikir tón­list­ar­sen­una í heild sinni til lengri tíma. 

Sjálf er Beyoncé frá Texas. Houston er hennar heima­borg. Til að styðja mál sitt enn frekar fær hún góða gesti. Auk Dolly Parton má finna kán­trí­söngv­ar­ann Willy Nelson á plöt­unni, auk Miley Cyrus og Post Malone, sem hafa dansað á mörkum popp og kán­trí.   

Af hverju er Beyoncé að syngja kán­trí? Stutta svarið er: Af því að hún getur það. Skilaboð hennar eru að kán­trí er fyrir alla, svei þeim sem reyna að hindra það. Eða eins og hún syngur: 

„Them old ideas are buried here. Amen“ 

Eða: 

 „Þessar gömlu hug­myndir eru bornar til grafar hér. Amen“

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár