Netanayhu boðar „allsherjarárás“ og fyrirskipar „rýmingu Rafah“

Benjamin Net­anyahu, fyr­ir­skip­aði rétt í þessu rým­ingu Rafah, þar sem alls­herj­ar­árás Ísra­els­hers sé yfir­vof­andi. 1,5 milljón manns sem leitað hafa sér skjóls á Rafah geta hins vegar ekk­ert flúið, Ísra­els­her umkringir borg­ina í norðri og landa­mærin við Egypta­land til suð­urs eru lokuð. Læknir segir stríðan straum af saur fylla göt­urnar og að mann­fall geti tvö­fald­ast eða þre­fald­ast beiti Ísraelar sömu vopnum á Rafah og þeir gera ann­ars staðar á Gaza.

Netanayhu boðar „allsherjarárás“ og fyrirskipar „rýmingu Rafah“
Börn bíða í röðum eftir mat Allir íbúar Gaza þjást nú af hungri og eng­inn hefur aðgang að hreinu vatni. Mynd: AFP

Ísra­els­her und­ir­býr inn­rás sína í borg­ina Rafah á Gaza-svæð­inu, þar sem 1,5 milljón manns hafa leitað skjóls, eða um 65% af íbúa­fjöld­anum á gervöllu Gaza-svæð­inu, í borg sem áður bjuggu í 250 þús­und manns. Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, hefur nú fyr­ir­skipað hernum að „rýma Rafah“ þar sem inn­rásin eigi að hefj­ast bráð­lega. Það veit þó eng­inn hvað slík rým­ing felur í sér, enda er ástæða þess að svo margt fólk hafi flúið til Rafah að það var eina „örugga“ svæðið sem eftir stóð á Gaza-svæð­inu, sam­kvæmt til­mælum Ísra­els­hers. Sprengjum hefur þó rignt yfir Rafah und­an­farna daga.

Rafah er „lokað fang­elsi“ þar sem „saur renni um göt­urnar“ vegna mann­mergðar. Mannfall „tvö­fald­ist eða þre­fald­ist“ ef Ísraelar noti sömu vopn þar.
Santosh Kumar
læknir sem flúði svæðið fyrir viku

Mann­rétt­inda­sam­tök á svæð­inu segja ómögu­legt að færa fólkið til, umsátrið hafi þrengt svo að …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Gaza eru greinilega útrímingarfangabúðir. Fasistar fara með völd í heiminum.
    1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þeim er að takast það sem Adolf mistókst, að útrýma heilli þjóð. Og við hámenningaþjóðirnar styðjum það. Allt fyrir peninginn
    2
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Er þessi umdeildi stjórnmálamaður ekki kominn út á vægast sagt mjög hála braut? Verður hans minnst sem þjóðhetju meðal heittrúaðra Gyðinga eða einhvers versta brotamanns á sviði mannréttindabrota þessarar aldar? Mjög margir Ísraela eru ekki sáttir við þennan ofbeldismann sem hefur verið í skugganum af undirferli og spillingu.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Djöflar í mannsmynd!
    5
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Noregur verði ríki Íslendinga! (Múrum Norðmennina bara inní pínulitlu fangelsi eins og á Gaza). Þetta getum við gert af því guð nokkur gaf Ingólfi Arnarssyni og afkomendum hans Noreg (las það í gömlu trúriti sem ég fann inní kompu). Og nú skulum við endurheimta landið okkar - koma svo.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár