Mynd: Golli

Síðustu dagar í Grindavík

Til­finn­ingin var und­ar­leg í Grinda­vík á mánu­dag, þegar litlum hópi fjöl­miðla­fólks var hleypt inn á svæðið til að taka út aðstæður.

Jörð hefur opn­ast, eldar risið og hraun flætt yfir byggð. Mann­skæðar sprungur liggja undir bænum og þegar maður féll þar ofan í hófust björg­un­ar­að­gerðir sem eiga sér engin for­dæmi hér á landi, en án árang­urs. Reynt var að bjarga því sem bjargað varð, halda í bjart­sýni og von, reisa varn­ar­garða, fylla upp í sprungur með möl og mal­biki og líma sam­fé­lagið aftur saman. En and­spænis ægi­krafti nátt­úr­unnar megum við okkur lít­ils. Hér er nátt­úran við völd og engin leið að vita hverju von er á. Hér mætum við ógn­inni. 

Á hamfarasvæði

Til­finn­ingin var und­ar­leg í Grinda­vík á mánu­dag, þegar litlum hópi fjöl­miðla­fólks var hleypt inn á svæðið til að taka út aðstæður. Forvitni var með í för, löngun til að sjá aðstæður með berum augum og finna fyrir þeim. Hún vék þó fljótt fyrir djúp­stæðri sam­kennd með þeim sem hér hafa alið mann­inn og kalla Grinda­vík sitt heima. Og sorg, …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjaneseldar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár