Mótmæli Hér á landi hefur fólk kraf­ist vopna­hlés á Gasa­svæð­inu, meðal ann­ars í mann­margri mót­mæla­göngu um síð­ustu helgi. Mynd: Golli

Mest ein máltíð á dag og fólk hrynur niður úr hungri

Íbúar á Gasa eru farnir að deyja úr hungri. Flestir borða í mesta lagi eina mál­tíð á dag. Á sama tíma sitja vöru­bílar með gnægð matar fastir hinum megin við landa­mæri svæð­is­ins og kom­ast ekki inn. Aðgengið er slæmt en fjár­magn vantar líka. Þetta segir yfir­maður hjá mat­væla­á­ætlun Sam­ein­uðu þjóð­anna sem kom hingað til lands í síð­ustu viku til þess að óska frek­ari aðstoðar íslenskra stjórn­valda og fyr­ir­tækja.

Áður en átök Ísra­els­hers og Hamas færð­ust í auk­ana í byrjun októ­ber fóru um 500 vöru­bílar með mat og vistir inn á Gasa­svæðið. Nú, á sama tíma og íbúar svæð­is­ins eru án mögu­leika til þess að fram­leiða mat­væli vegna stríðs, kom­ast aðeins einn til tíu bílar inn á svæðið dag­lega og hálf milljón manns er á barmi hung­ursneyðar, segir Andreas Hansen, yfir­maður Norð­ur­landa­skrif­stofu mat­væla­á­ætl­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna (WFP), í sam­tali við Heim­ild­ina.

Það vantar fjár­magn, segir Andreas, og aðgengi. Nú er ein­ungis ein leið fyrir hjálp­ar­sam­tök til þess að kom­ast inn á svæðið. Það er við landa­mæri Egypta­lands.

„Það sem mér finnst sér­stak­lega ógn­vekj­andi er að það er matur til staðar hinum megin við landa­mærin. Þar eru vöru­bílar með gnægð matar en nokkrum kíló­metrum frá, á Gasa­svæð­inu, er fólk nálægt því að svelta eða hefur þegar soltið,“ segir Andreas.

„Magn mat­ar­ins sem hefur kom­ist inn á Gasa­svæðið frá …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HPE
    Helgi Páll Einarsson skrifaði
    Erfitt að segja hvar ábyrgðin liggi? Það er alveg skýrt hvar ábyrgðin liggur, og það er svona málflutningur sem afsakar og styður við stríðsglæpi Ísraelsríkis.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár