Mynd: Golli

Ódýrast að blotna á Akranesi og í Vestmannaeyjum

Gjald­skrár sund­lauga sveit­ar­fé­laga hafa verið upp­færðar. Árið 2024 kostar stakur miði í sund hjá stærstu sveit­ar­fé­lögum lands­ins á bil­inu 920 til 1.700 krónur. Dýrasti sund­mið­inn er í Árborg og hækkar um 36 pró­sent frá fyrra ári, en sá ódýr­asti á Akranesi. Dýrasta árskortið er í Garðabæ, en það ódýrasta hins vegar í Vest­manna­eyjum.

Verðið fyrir staka sund­ferð er núna í upp­hafi árs 2024 komið yfir þús­und krónur í sund­laugum allra tutt­ugu fjöl­menn­ustu sveit­ar­fé­laga lands­ins, nema á Akranesi. Þar kostar 920 krónur að baða sig í sund­laug­unum tveimur, Jað­ars­bakka­laug og Bjarna­laug. Með­al­verðið á stökum sund­miða er komið upp í 1.210 krónur hjá þessum hópi sveit­ar­fé­laga, sam­kvæmt úttekt Heim­ild­ar­innar. 

Haraldur Bene­dikts­son, bæj­ar­stjóri á Akranesi, segir við Heim­ild­ina að þrátt fyrir að hann sé búinn að vera bæj­ar­stjóri í skamman tíma viti hann að hjá bænum sé fólk með­vitað um að gjöld í sund­laugar í bænum hafi verið lágt í sam­an­burði við aðra. Ekki hafi þó verið horft til þess að hækka gjöldin veru­lega. Árskort full­orð­inna í sund á Akranesi er í lægri kant­inum, kostar 31.520 krónur. Með­al­tals­verð á árskorti í sund hjá tutt­ugu stærstu sveit­ar­fé­lögum lands­ins eru 36.716 krónur. 

Ódýrasta árskortið í Vestmannaeyjum

Samkvæmt úttekt Heim­ild­ar­innar er ódýrasta árskort full­orð­inna að finna …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár