Sig­ur­strang­leg­astur Donald Trump mælist með mestan stuðn­ing fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í nóv­em­ber. Hér mætir hann upp­veðr­uðu stuðn­ings­fólki sínu í Suður-Dakóta í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Mynd: AFP

Kosningar sem geta gjörbreytt heiminum 2024

Stærsta kosn­ingaár sög­unnar verður á þessu ári. 70 kosn­ingar munu eiga sér stað víða um heim sem margar hverjar munu ráða gangi alþjóða­mála næstu árin. Sumar eru fyr­ir­fram gefnar, aðrar full­kom­lega óvísar. Til mik­ils verður að vinna og tapa, á sama tíma og upp­lýs­inga­óreiða, áhrif gervi­greindar og spill­ingar verða alltum­lykj­andi.

Margar for­seta, þings, svæðis- og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar verða á árinu víða um heim á árinu 2024. Talað er um allt að 70 kosn­ingar og að tæpur helm­ingur íbúa­fjölda jarð­ar­innar gangi að kjör­köss­unum. Helstu vend­ingar til að fylgj­ast með í mis­jafn­lega lýð­ræð­is­legum ríkjum yfir næsta árið verða greindar hér stutt­lega, en gervi­greind, upp­lýs­inga­óreiða og óstöð­ug­leiki á heims­vísu verða þættir sem munu allir hafa gríð­ar­leg áhrif á málin sem verða á dag­skrá og fram­kvæmd kosn­ing­anna sjálfra.

Í þessum mán­uði verða kosn­ingar í Taívan þar sem deilu­málið um sjálf­stæði Taívan er á dag­skrá og bæði Kína og Banda­ríkin fylgj­ast grannt með. Sitjandi rík­is­stjórn­ar­flokk­ur­inn DPP mælist aðeins með um 35% fylgi en þykir áfram sig­ur­strang­legur sökum óreiðu meðal and­stæð­inga sinna. Eftir sigur DPP síð­ast brugð­ust kín­versk yfir­völd við með ókvæðum og skáru á sam­skipti við Taívan og hafa síðan haldið her­æf­ingar undan ströndum eyj­unnar, beitt efna­hags­legum þrýst­ingi og upp­lýs­inga­stríði.

Í febr­úar má …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    ALLIR MEGA HAFA ÞAÐ EINS OG ÞEIM SJÁLFUM SÝNIST BARAEKKI VERA MEÐ GLÆPI ALSKONAR OG FLEIRA MIÐUR FALLEGT
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár