Heimur Pútíns
Gæsalappir Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti táknar gæsalappir á árlegum blaða­manna­fundi sínum í Moskvu, 14. des­em­ber síð­ast­lið­inn, sem er undir for­skrift­inni: „Árangur árs­ins með Vladimir Pútín“. Þar var fjöl­miðla­fólk mætt, ásamt 600 öðrum, sem höfðu að nafn­inu til tæki­færi til að spyrja hann spurn­inga. Hvenær verður friður, var hann spurður. „Þegar við höfum náð mark­miðum okkar,“ var svarið. Mynd: Alexander Zemlianichenko / POOL / AFP

Heimur Pútíns

Í ríki þar sem fjöl­miðlar starfa undir vernd­ar­væng yfir­valda, sem leggja mat á frammi­stöðu þeirra og ákveða eftir hvaða reglum og sjón­ar­miðum þeir starfa, eru fréttir og upp­lýs­inga­miðlun að stórum hluta svið­setn­ing.

Flesta daga sýnir rúss­neska sjón­varpið dálít­inn leik­þátt í frétta­tímum sínum og stundum nokkra með sama eða svip­uðu sniði: Pútín situr á skrif­stofu sinni – þeirri sem hann notar til að hitta fólk – og til hans kemur gestur. Stundum emb­ætt­is­maður, eða ráð­herra, stundum for­stöðu­maður eða fram­kvæmda­stjóri stór­fyr­ir­tækis, eða gestur með eitt­hvert til­tekið erindi sem for­set­inn hefur ákveðið að hlusta á. Gest­ur­inn er sýndur við lítið fund­ar­borð sem komið er fyrir framan við skrif­borð for­set­ans (þessi hús­gagna­skipan er hefð­bundin hjá öllum stjórn­endum hins opin­bera). Gest­ur­inn er sýndur, and­stuttur, gefa for­set­anum skýrslu eða bera upp við hann erindið. Pútín hlustar, alvar­legur og ein­beittur á svip. Svo tekur hann til máls, reifar það sem gest­ur­inn hefur sagt, gefur honum (eða henni, það kemur fyrir stöku sinnum að gest­ur­inn er kona), ýmis góð ráð, hælir gest­inum eftir atvikum fyrir það sem hann eða hún hefur þegar afrekað og seg­ist munu veita stuðn­ing sinn til …

Kjósa
66
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    hvað fékk heimildin mikið monní frá valdstjórninni ? . .
    -4
    • J
      Jón skrifaði
      Það er eitthvað grátt kusk sem kemur hérna alltaf undir einn stólinn minn aftur og aftur eins konar ryk eða svona klumpar af ryki eins og það hafi þjappast saman einhvern veginn. Þetta er alveg endalaust. Berð þú ábyrgð á þessu?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár