Þessi grein birtist fyrir rúmlega 8 mánuðum.

„Við erum Evrópumiðuð í þýðingum“

Gauti Krist­manns­son, pró­fess­or í þýð­ing­ar­fræði við Há­skóla Ís­lands, seg­ir að lít­ill mark­að­ur sé fyr­ir þýdd ljóð og þau eigi und­ir högg að sækja. Það sem þó er þýtt, og á það raun­ar líka við al­mennt um þýdd­ar bók­mennt­ir, eru að mati Gauta Evr­ópumið­að­ar.

Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingarfræðum við Háskóla Íslands, segir lítið hafa farið fyrir þýðingum á bókmenntum frá Mið-Austurlöndum á Íslandi. Almennt sé lítið þýtt af ljóðum yfir á íslensku. 

„Það er svo sem ekki mikill markaður fyrir ljóð yfirleitt. Oft hefur verið spáð dauða ljóðsins en það gerist hvað eftir annað að ungt fólk byrjar að skrifa ljóð og kemur þeim út og það hefur skilað sér í því að það er enn mikill áhugi á ljóðum og það selst meira að segja eitthvað af þeim,“ segir hann og bætir við: 

„Þýdd ljóðlist á undir högg að sækja.“ Hefðbundin ljóðlist sé meira þýdd en módernísk ljóðlist að sögn Gauta, óbundin og módernísk ljóð séu yfirhöfuð lítið þýdd. Búið sé að þýða mikið af Shakespeare til að mynda, sem tilheyrir hefðbundnu ljóðlistinni, og það af mörgum, og árið 2017 kom út Gleðileikurinn guðdómlegi eftir Dante í þýðingu Erlings E. Halldórssonar …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár