Brátt á heim­leið' „Eftir að ég kom til Íslands þroskað­ist ég og byrj­aði að skilja ýmis­legt betur. Það breytti mér,“ segir Isaac. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Brátt á heimleið: Ísland breytti sýn Isaacs á samkynhneigð

„Ég hef ekk­ert á móti sam­kyn­hneigðum, ég vil að allir fái að lifa sínu lífi eins og þeir vilja,“ segir Isaac Kwateng, vall­ar­stjóri Þróttar, sem er á leið aftur til Íslands eftir að hafa verið sendur úr landi eftir sex ára dvöl hér. Hann flúði Gana árið 2017 eftir að hafa predikað gegn sam­kyn­hneigð. Sýn hans á rétt­indi hinsegin fólks breytt­ist eftir að hann kom til Íslands.

Isaac Kwateng, vall­ar­stjóri Þróttar, sat inni á hót­eli í Gana og var að læra fyrir íslensku­próf þegar fram­kvæmda­stjóri Þróttar tjáði honum að hann hefði fengið atvinnu­leyfi á Íslandi til eins árs. 

„Ég varð svo ham­ingju­samur,“ segir Isaac. Honum var vísað frá Íslandi til Gana um miðjan októ­ber. Þá hafði hann búið á Íslandi í um sex ár og unnið sem vall­ar­stjóri Þróttar í tvö ár. Þrótt­arar mót­mæltu þessum aðgerðum harð­lega og aðstoð­uðu Isaac við að kom­ast aftur til Íslands með atvinnu­leyfi. 

Í aðdrag­anda þess að Isaac flúði Gana voru hann og vinur hans að boða kristna trú í Gana. Þeir lögðu áherslu á þá sýn sína að sam­kyn­hneigð væri ekki sam­þykkt innan trú­ar­innar og að sam­fé­lagið ætti að hafna henni. Í kjöl­farið segir Isaac að fjórir menn hafi ráð­ist að þeim vinum í tvígang. Eftir seinni árás­ina hafi vinur hans lát­ist af sárum sínum og Isaac flúið land.

Ekki andstæður hamingju annarra

Isaac segir í sam­tali við Heim­ild­ina að hann sé alls ekki lengur á móti sam­kyn­hneigðum. Viðhorf hans hafi breyst mikið síðan hann kom til Íslands. 

„Ég var alinn upp af kristnum for­eldrum með við­horf sem eru mjög ólík þeim evr­ópsku,“ segir Isaac. „Eftir að ég kom til Íslands þroskað­ist ég og byrj­aði að skilja ýmis­legt betur. Það breytti mér.“

ÞróttariIsaac segir Þrótt­ar­ana fjöl­skyldu sína. Hér er brot úr mynd­bands­við­tali Heim­ild­ar­innar við Isaac sem tekið var í byrjun októ­ber.Heim­ildin / Davíð Þór

Hann segir að nú skilji hann að það sé ekk­ert athuga­vert við það að fólk lað­ist að sama kyni. 

„Ég hef ekk­ert á móti sam­kyn­hneigðum, ég vil að allir fái að lifa sínu lífi eins og þeir vilja,“ segir Isaac. „Ef þú ert sam­kyn­hneigður, þá er það þitt líf og þú átt að gera það sem gerir þig ham­ingju­saman eða ham­ingju­sama. Ég er ekki á móti neinum. Allir vilja vera ham­ingju­samir og ég er ekki á móti því.“

Í faðm Þróttara að nýju

Isaac seg­ist hlakka mikið til að koma aftur „heim til Íslands“ og stefnir hann á að fara aftur að vinna sem vall­ar­stjóri Þróttar. „Fólkið í Þrótti er fjöl­skyldan mín,“ segir Isaac. 

Hann hefur sótt um rík­is­borg­ara­rétt og er á leið í íslensku­próf 21. nóv­em­ber næst­kom­andi. 

„Það gengur vel að skrifa en ég á erf­ið­ara með að tala,“ segir Isaac um íslensk­una. „Það er erfitt að æfa sig að tala hérna því ég get ekki talað íslensku við neinn. Þegar ég kem til Íslands verður auð­veld­ara fyrir mig að æfa mig að tala íslensku.“

Hann bíður nú eftir vega­bréfs­á­ritun. Þegar hún er klár mun hann leggja í hann, heim til Íslands og í faðm íþrótta­fé­lags­ins í Laug­ar­dalnum.  

Kjósa
54
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Vertu velkominn aftur.
    Hvað kostaði allt þetta rugl og hver borgar?
    1
  • Ásta Jensen skrifaði
    Það er eina vitið að breytast. Það er ekki líft á Íslandi ef maður er með fordóma fyrir samkynhneigðum
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár