Herluf Clausen lýkur keppni í 81. sæti og fer í langþráð frí

Herluf Clausen er tæp­lega átt­ræður og í 81. sæti hátekju­list­ans. Heildsal­inn, sem byggði veldi sitt á steiktum lauk og ógn­aði stöðu sjálfs pylsu­gerð­ar­manns­ins, varð síðar gjald­þrota en reis aftur upp, lauk við­skipta­sögu sinni og lét af störfum í fyrra. Kvart­millj­arður í tekjur og far­inn í lang­þráð frí.

Herluf Clausen lýkur keppni í 81. sæti og fer í langþráð frí
Steiktur laukur Eftir útskrift í MR fór Herluf að flytja inn steiktan lauk.

„Já, þakka þér fyrir það, en ann­ars hefur mér aldrei þótt það neitt sér­stakt til­töku­mál að skila til sam­fé­lags­ins aftur því sem ber,“ segir Herluf Clausen, tæp­lega átt­ræður fyrr­ver­andi heild­sali og fjár­festir, sem er í 81. sæti á hátekju­lista árs­ins 2023.

Herluf seg­ist lítið hafa viljað ræða eða gera mál úr skatt­greiðslum sínum og lítið viljað sækja í sviðs­ljósið eða fjöl­miðla. Þannig var það líka árið 1990 þegar Herluf var til skamms tíma útnefndur skatta­kóngur Reykja­víkur. Hann baðst undan því að ræða það við fjöl­miðla og var haft eftir kunn­ugum að það staf­aði miklu fremur af hlé­drægni og feimni en hroka.

„Það hefur alltaf farið mjög lítið fyrir Lúffa,“ hafði DV eftir sam­ferða­manni hans í ágúst 1990 af þessu til­efni. „Hann ferð­ast lítið og tekur sér sjaldan frí. Hann hefur til dæmis aldrei farið á sól­ar­strönd. Ætli sé ekki hægt að telja frí­dag­ana hans á ári á …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Ójöfnuður ósanngjarn en samt nauðsynlegur
SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár