Fjárlaganefnd ekki kölluð saman vegna Íslandsbankamálsins: „Þetta á allt saman eftir að koma fram í dagsljósið“

Formaður fjár­laga­nefndar ætlar ekki að kalla nefnd­ina saman til þess að afla frek­ari upp­lýs­inga um sölu Íslands­banka á um fjórð­ungs­hlut rík­is­ins í honum. Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að með þessu sé upp­lýs­inga­öflun um málið hindruð.

<span>Fjárlaganefnd ekki kölluð saman vegna Íslandsbankamálsins:</span> „Þetta á allt saman eftir að koma fram í dagsljósið“
Enginn asi „Það ger­ist ekk­ert þó við bíðum þangað til tíunda ágúst. Það breytir engu,” segir Bjarkey. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Vinstri grænna, segir að ekki sé brýn nauð­syn á að kalla nefnd­ina saman í miðju sum­ar­leyfi vegna sölu Íslands­banka á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í honum. 

Skýrsla fjár­mála­eft­ir­lits­ins um söl­una var gefin út í júní. Í henni var snert á fjöl­mörgum lög­brotum bank­ans við sölu­ferlið. 

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem situr í nefnd­inni, skrif­aði í færslu á Facebook fyrr í dag að Bjarkey stæði í vegi fyrir því að nefndin kall­aði taf­ar­laust fram gögn um sam­skipti fjár­mála­ráð­herra við Banka­sýsl­una og sölu­þókn­anir sölu­ráð­gjafa vegna söl­unnar. 

Bjarkey segir að kallað verði eftir upp­lýs­ing­unum í ágúst, þegar sum­ar­leyfi nefnd­ar­innar lýkur. Hún segir að ein­ungis eigi að boða til fundar í sum­ar­leyfi ef brýna nauð­syn ber til og hún telur ekki að nú sé brýn nauð­syn á fundi. 

„Það er ekki brýn nauð­syn sem býr að baki þessum óskum,“ segir …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Hvenær?
    Þegar kjósendur eru búnir að éta pakka af strokleðri í viðbót?
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    VG liðar halda áfram með lýgi og ómerkilegheit. Hvaða fólk eyddi atkvæði sínu á þetta ómerkilega VG lið ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár