David Kaplan píanó­leik­ari Neð­an­sjáv­ar­stemn­ingin varð alls­ráð­andi á lokatón­leikum tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Við Djúpið. Mynd: Haukur Sigurdsson

Rödd hvalsins – á Ísafirði

Arndís Björk Ásgeirs­dóttir tón­list­ar­gagn­rýn­andi lagði land undir fót og skellti sér á tón­list­ar­há­tíð­ina Við Djúpið. Hún rýnir hér í bæði hátíð­ina og tón­list­ina.

Ísa­fjörður hefur lengi verið sann­kall­aður menn­ing­ar­bær. Tón­list­ar­skóli Ísa­fjarðar var stofn­aður árið 1948 og undir hand­leiðslu fyrsta skóla­stjór­ans, Ragnars H. Ragnar, óx hann og dafn­aði og hefur síðan, í gegnum 75 ára sögu, getið af sér fjöl­marga tón­list­ar­menn og -konur, sem auðgað hafa íslenskt tón­list­ar­líf. Skóla­starfið er svo rót­gróið að það er víst hend­ing ef barn, sem elst upp á Ísafirði stundar ekki nám við skól­ann á ein­hverjum tíma­punkti.

Aðstaðan er líka ein­stök og skól­inn hefur verið ein­stak­lega hepp­inn með að fá til liðs við sig marga frá­bæra kenn­ara. Í skól­anum er tón­leika­sal­ur­inn Hamrar, sem skartar glæsi­legum Steinway flygli í fullri stærð, sem telja má með ein­dæmum metn­að­ar­fullt enda hefur sá flyg­ill dregið til sín fjölda píanó­leik­ara til tón­leika­halds. Svo eru aðrir salir í bænum sem einnig hafa verið not­aðir undir tón­leika­hald, m.a. nokkrir í hinu sögu­fræga Edin­borg­ar­húsi, sem hýsir menn­ing­ar­mið­stöð bæj­ar­ins.

Rótgróin tónlistarhátíð enduvakin

Tón­list­ar­há­tíðin Við Djúpið …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár