Eftirlitskerfið virkar ekki þegar brotið er framið

Þrátt fyrir að Íslands­banka hafi tek­ist að fremja alvar­leg lög­brot við sölu á almanna­eign hafa ráða­menn sagt eft­ir­lit með bönk­unum virka vel. Stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins er sam­mála því, en við­ur­kennir að það virki ekki nákvæm­lega á þeim tíma­punkti sem brot eru framin.

Það er nú oft þannig að eft­ir­lits­kerfið virkar ekki nákvæm­lega á tíma­punkt­inum þegar eitt­hvað brot er framið,“ segir Lárus Blöndal, for­maður stjórnar Banka­sýslu rík­is­ins. 

Lárus kom fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis fyrr í dag ásamt Jóni Gunnari Jónssyni, for­stjóra Banka­sýsl­unnar. Var þar til umræðu svört skýrsla Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) um útboð Íslands­banka á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum. 

Þar eru útli­stuð alvar­leg lög­brot af hálfu bank­ans. Lárus segir samt sem áður að eft­ir­lits­kerfið með bönkum virki vel og að virkt eft­ir­lit muni verða til þess að þær fari eftir þeim lögum og reglum sem til eru staðar. 

„Þá auðvitað sitjum við eftir með sárt ennið“

Banka­sýslan kom að útboð­inu ásamt Íslands­banka en í skýrslu FME kemur fram að bank­inn hafi blekkt Banka­sýsl­una og veitt henni vill­andi upp­lýs­ingar 

Á að vera hægt að blekkja ykkur? Eigið þið ekki að geta séð í gegnum svo­leiðis? 

„Ef þú býrð yfir upp­lýs­ingum sem þú átt að hafa vegna þess hlut­verks sem þú gegnir í ferl­inu og þú lætur þær ekki af hendi þá er voða­lega erfitt fyrir þann sem heyrir ekki af því að reyna að átta sig á því. Þetta eru upp­lýs­ingar sem þessi aðili átti að afla til þess að upp­lýsa okkur og ef það er ekki gert þá auð­vitað sitjum við eftir með sárt ennið.“ 

Sjá má við­talið við Lárus í heild sinni í mynd­skeið­inu hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Það er með ólíkendum að eftirlitið sitji eftir með sárt ennið þegar lögbrot eru framin. Getur það verið að gleymst hafi að setja refsiákvæði í lögin?
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Getur verið að Bjarni hafi ætlast til þess að þeir ættu ekki að athafast neitt?
    Þetta mál og önnur eru mjög svört og ótrúlegt hvað stjórnendur samfélagsins eru meðvirkir.
    Er ekki löngu komið að þolmörkum hjá hugsandi réttsýnum samfélagsþegnum?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár