Boris Johnson villti um fyrir þingmönnum af ásettu ráði

Sérstök rann­sókn­ar­nefnd um Par­tygate-hneykslið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Boris Johnson blekkti breska þingið vís­vit­andi þegar hann sótti sam­kvæmi á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins á meðan strangar sótt­varna­reglur vegna COVID-19 voru í gildi. Johnson hefur sagt af sér þing­mennsku.

Boris Johnson villti um fyrir þingmönnum af ásettu ráði
Boris Johnson Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands við­ur­kennir að yfir­lýs­ingar hans um veislu­höld á tímum strangra sótt­varna­reglna hafi verið vill­andi en þver­tekur fyrir að hafa gert það vís­vit­andi. Nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar er því ósam­mála. Mynd: AFP

Boris Johnson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, villti um fyrir þing­mönnum breska þings­ins af ásettu ráði í umræðum um veislu­höld í Downingstræti á tímum heims­far­ald­urs. Þetta er nið­ur­staða sér­stakrar rann­sókn­ar­nefndar breska þings­ins sem skil­aði skýrslu sinni í morgun og er inni­hald hennar mun alvar­legra en ráð var gert fyrir. 40 vikur eru síðan Johnson var for­sæt­is­ráð­herra. 

Rann­sókn­ar­nefndin var skipuð í apríl í fyrra. Hlutverk hennar var að rann­saka hvort Johnson hafi vís­vit­andi afvega­leitt þing­menn í umræðum um sam­kvæmi sem haldin voru á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins á tímum strangra sótt­varna­regla vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar er að svo hafi verið og að Johnson hafi gert „ítrek­aðar til­raunir“ til að afvega­leiða þingið og reynt að grafa undan lýð­ræð­is­legum aðferðum þings­ins og nefnd­inni eftir að rann­sókn hennar hófst. 

Baðst afsökunar en sá ekki tilefni til afsagnar 

Allt teng­ist þetta Par­tygate-hneyksl­inu svo­kall­aða. Málið komst í hámæli í jan­úar í fyrra þegar Johnson við­ur­kenndi að hafa verið við­staddur þrjú sam­kvæmi á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, ýmist þegar útgöngu­bann eða strangar sótt­varna­reglur voru í gildi vegna útbreiðslu COVID-19 voru í gildi. Hann baðst ítrekað afsök­unar en taldi sig ekki þurfa að segja af sér emb­ætti. 

Johnson fékk skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar afhenta á föstu­dag­inn og sagði af sér þing­mennsku í kjöl­farið. Í skýrsl­unni er farið fram á 90 daga brott­rekstur Johnson sem sam­kvæmt grein­ingu breska rík­is­út­varps­ins hefði nægt til að kjósa að nýju um þing­sæti hans. 

Sjálfur hefur Johnson farið ófögrum orðum um nefnd­ina og nið­ur­stöðu hennar. Segir hann að um sýnd­ar­rétt­ar­höld hafi verið að ræða og segir hann það hafa verið ætlun nefnd­ar­innar frá upp­hafi að bola honum út. 

Nefnd­ar­menn brugð­ust við orðum Johnson og segja að um sé að ræða árás á nefnd­ina. „Þessi árás á nefnd sem sinnir lýð­ræð­is­legum skyldum er árás á lýð­ræð­is­legar stofn­anir lands­ins.“ 

Mótmæli40 vikur eru síðan Johnson var for­sæt­is­ráð­herra en hann hefur setið á þingi en sagði af sér þing­mennsku á föstu­dag þegar hann fékk skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar afhenta.

Rannsóknarnefnd, lögreglurannsókn og sérstakur saksóknari

Umfangs­mikil rann­sókn hefur farið fram á Par­tygate. Sér­stakur sak­sókn­ari, Sue Gray, var skipuð í jan­úar í fyrra og var hún með 16 sam­kvæmi til rann­sóknar. Hennar hlut­verk fólst í að meta eðli og til­­­gang veislu­hald­anna ásamt því að taka saman hverjir voru við­stadd­­ir. Um innri rann­­sókn var að ræða frekar en sjálf­­stæða rann­­sókn og var hún fyr­ir­­skipuð af John­­son sjálf­­um. Kraf­ist var hlut­­leysi af hálfu Gray og skil­aði hún nið­­ur­­stöðum sínum til for­­sæt­is­ráð­herra í maí í fyrra. Í henni kom fram að ekki hefði átt að leyfa margar af þeim sam­komum sem haldnar voru í Down­ing­stræti 10 og á vegum breskra stjórn­valda á tímum strangra sótt­varna­reglna og illa var komið fram við starfs­fólk sem gerði athuga­semdir við partý­stand­ið. Stjórn­mála­leið­togar og hátt­settir emb­ætt­is­menn verða að axla ábyrgð, var nið­ur­staða Gray. 

Lög­reglu­rann­sókn fór fram sam­hliða rann­sókn Gray og lauk henni síð­asta vor. Tólf sam­kvæmi voru til rann­sóknar og alls gaf lög­regla út 126 sektir vegna brota á sótt­varna­regl­um. Sekt­irnar ná ti 83 manns og því eru dæmi um að ein­stak­lingar hafi fengið fleiri en eina sekt. John­son fékk þó aðeins eina sekt, fyrir að vera við­staddur eigin afmæl­is­veislu 19. júní 2020, í Down­ing­stræti.

Sérstök umræða um skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar fer fram á breska þing­inu á mánu­dag. 

Tímalína

Partygate

Bresk stjórn­völd stóðu fyrir ýmsum veislu­höldum á tímum sam­komu­tak­mark­ana vegna heims­far­ald­urs COVID-19:

10. maí 2020:

Boris John­son kynnir fyrstu skref aflétt­inga eftir útgöngu­bann sem hafði verið í gildi frá því í mars. Hann ráð­lagði almenn­ingi hins vegar að fara áfram eftir reglum um fjar­lægð­ar­tak­mark­anir og til að fram­fylgja þeim reglum var komið á sektum „fyrir þann smáa minni­hluta sem brýtur þær“. Sam­kvæmt gild­andi reglum mátti aðeins fara út fyrir húss­ins dyr af brýnni nauð­syn og aðeins mátti hitta eina mann­eskju utandyra.

15. maí 2020:

Mynd sem tekin var fyrr í mán­uð­inum sýnir for­sæt­is­ráð­herr­ann og starfs­fólk hans gæða sér á víni og ostum í garði Down­ing­stræt­is. Aðspurður sagði John­son að þarna hafi verið á ferð­inni fólk á vinnu­tíma að tala um vinnu­tengd mál.

20. maí 2020:

Um 100 manns var boðið í garð­veislu í Down­ing­strætií boði for­sæt­is­ráð­herra og einka­rit­ara hans, Martin Reynolds. Um 30 manns mættu, þar á meðal Boris John­son, sem hefur við­ur­kennt að hafa verið við­staddur í um 25 mín­útur og að hann hafi talið að „um vinnu­tengdan við­burð“ hafi verið að ræða.

5. nóvember 2020:

COVID-19 smitum fer fjölg­andi og John­son biður fólk „enn á ný að halda sig heima“. Útgöngu­bann tekur aftur gildi.

13. nóvember 2020:

BBC hefur eftir heim­ilda­mönnum að starfs­fólk Down­ing­strætis hafi komið saman ásamt Carrie John­son í íbúð hjón­anna. Tals­maður John­son þver­tekur fyrir að sam­koman hafi átt sér stað.

27. nóvember 2020:

Kveðju­hóf í til­efni af starfs­lokum Cleo Watson, starfs­manni Down­ing­stræt­is. Áfengi var haft um hönd og John­son hélt ræðu að sögn heim­ilda­manna.

10. desember 2020:

Mennta­mála­ráðu­neytið við­ur­kenndi að hafa haldið gleð­skap til að þakka starfs­fólki fyrir verð­ugt fram­lag í heims­far­aldr­in­um. Drykkir og léttar veit­ingar voru í boði en engir gestir aðrir en starfs­fólk ráðu­neyt­is­ins voru leyfð­ir. Útgöngu­banni var aflétt 2. des­em­ber en fleiri en tveir máttu ekki koma sam­an.

14. desember 2020:

Íhalds­flokk­ur­inn við­ur­kennir að hafa haldið „óheim­ila sam­komu“ á skrif­stofu flokks­ins í West­min­st­er.

15. desember 2020:

Sunday Mir­ror birtir mynd frá „jóla­­spurn­inga­keppni“ sem haldin var fyrir starfs­fólk Down­ing­stræt­is. Þegar John­­son var spurður út í við­burð­inn um ári seinna sagð­ist hann ekki hafa brotið neinar reglur en að atvikið væri til skoð­un­ar.

17. desember 2020:

Annað kveðju­hóf, nú til að kveðja yfir­mann Covid-að­gerða.

16. apríl 2021:

Enn og aftur er um kveðju­hóf starfs­manna Down­ing­strætis að ræða. Í þetta sinn tvö tals­ins og er umrætt kvöld kvöldið fyrir útför Fil­ippusar drottn­ing­ar­manns. Sam­­kvæmt regl­unum var óheim­ilt að umgang­­ast annað fólk inn­­an­dyra að und­an­­skildum þeim sem búa á sama heim­ili. Leyf­i­­legt var að koma saman utandyra í sex manna hóp­­um.

20. desember 2021:

John­­son þver­­tekur fyrir veislu­höld í Down­ing­stræti 15. maí 2020, þegar útgöng­u­­bann var í gildi. „Ég á heima hér og ég starfa hér. Þetta voru fundir á vinn­u­­tíma sem fjöll­uðu um vinn­una.“

12. janúar 2022:

Boris Johnson biðst afsök­unar á að hafa verið við­staddur um þrjá­tíu manna veislu í Down­ing­stræti 10, 20 maí 2020, þegar útgöng­u­­bann vegna útbreiðslu COVID-19 var í gildi. Veislu­höldin fóru fram í garði Down­ing­stræti og var hund­rað boðs­gestum meðal ann­ars bent á að „hafa eigið áfengi með­ferðis til að njóta góða veð­urs­ins eins best væri á kos­ið“. Um 30 manns þekkt­ust boð­ið, þar á meðal John­son sjálfur og Carrie John­son, eig­in­kona hans.

12. apríl 2022:

Breska lög­reglan sektaði Boris Johnson, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og Rishi Sunak, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, vegna sam­kvæma sem bresk yfir­völd stóðu fyrir á meðan strangar sótt­varna­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­urs­ins. Ekki var gefið út hversu háar sekt­irnar voru.

25. maí 2022:

Loka­skýrsla Sue Gray, sér­staks sak­sókn­ara, var birt, fjórum mán­uðum eftir að for­sæt­is­ráð­herra baðst fyrst afsök­unar. Nið­ur­stöður Gray voru m.a. að ekki hefði átt að leyfa margar af þeim sam­komum sem haldnar voru í Down­ing­stræti 10 og á vegum breskra stjórn­valda á tímum strangra sótt­varna­reglna og illa var komið fram við starfs­fólk sem gerði athuga­semdir við partý­stand­ið. Stjórn­mála­leið­togar og hátt­settir emb­ætt­is­menn verða að axla ábyrgð.

7. júlí 2022:

Boris John­son, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sagði af sér sem leið­togi Íhalds­flokks­ins en sat áfram sem for­sæt­is­ráð­herra.

5. september 2022:

Liz Truss sigr­aði í leið­toga­kjöri Íhalds­flokks­ins og tók við nokkrum dögum seinna sem for­sæt­is­ráð­herra. Hún sat hins vegar stutt á stóli for­sæt­is­ráð­herra og sagði af sér emb­ætti 20. októ­ber.

15. júní 2023:

Sérstök rann­sókn­ar­nefnd breska þings­ins skilar skýrslu og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að Boris Johnson hafi vís­vit­andi blekkt breska þingið þeg­ar hann sótti sam­kvæmi á veg­um for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins á með­an strang­ar sótt­varn­a­regl­ur vegna COVID-19 voru í gildi.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár