„Það yrði uppreisn í landinu“

Íslend­ingur búsettur í Færeyjum segir að fólk þar myndi ekki sætta sig við 10% vexti á hús­næð­is­lánum eins og á Íslandi.

„Það yrði uppreisn í landinu“
Helgi og fjöl­skylda Helgi Arn­þórs­son kynnt­ist eig­in­konu sinni, Ingi­björgu Kamban, í Danmörku. Þau fluttu til heima­lands hennar, Færeyja, að hennar ósk. Hér eru þau ásamt börnum sínum tveimur. Mynd: Úr einkasafni

Veru­leiki hús­næð­is­eig­enda í Færeyjum er frá­brugð­inn því sem ger­ist á Íslandi, að því leyti að vextir eru mun stöðugri. Fær­ey­ingar þekkja þó óstöð­ug­leika frá fyrri tíð.

Helgi Arn­þórs­son flutti frá Íslandi til Dan­merkur 21 árs gam­all árið 1984 og hefur í tæp 20 ár búið í Færeyjum. Á meðan óverð­tryggðir hús­næð­is­vextir eru komnir í 10,25% á Íslandi borgar hann 4% í vexti og fær þar að auki 700 þús­und krónur á ári í ótekju­tengdar vaxta­bætur.

Spurður hvað hann telji ráða lægri hús­næð­is­vöxtum í Færeyjum en Danmörku telur Helgi einn þátt ráða lang­mestu. 

„Við erum nátt­úr­lega með stöðugan gjald­miðil. Það skiptir bara rosa­lega miklu máli. Það eru ekki ein­hverjir aðilar úti í bæ sem raun­veru­lega stjórna því. Í raun erum við með evru,“ segir hann.

…
Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdotir skrifaði
    Hvernig uppreisn á fólkið að gera?þar sem hver tuðareinni sínu horni
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu