Óður til lífs og listar

Lista­manna­rekna gall­er­íið Kling & Bang fagn­aði tutt­ugu ára starfs­af­mæli seint í síð­asta mán­uði og list­fræð­ing­ur­inn Margrét Elísabet Ólafs­dóttir fjallar hér um gjörn­inga­veislu í til­efni þess.

Óður til lífs og listar
Skýla Ragnar Kjart­ans­son beitti kunn­ug­legri aðferð end­ur­tekn­ingar í óði lífs og listar sem um leið kjarn­aði starf­semi Kling & Bang.
Myndlist

Kling & Bang gjörn­inga­veisla

Niðurstaða:

gjörningaveisla í tilefni afmælis Kling & Bang

Gefðu umsögn

Lista­manna­rekna gall­er­íið Kling & Bang fagn­aði tutt­ugu ára starfs­af­mæli seint í síð­asta mán­uði. Galleríð hóf starf­sami við Lauga­veg­inn, en hefur verið stað­sett í Marshall-hús­inu síð­ustu ár. Tíma­mót­unum var fagnað með gjörn­inga­veislu sem hófst með opn­un­ar­gjörn­ingi Töru & Sillu. Þær svældu fram „drauga for­tíðar“ og hleyptu áhorf­endum inn á reyk­mett­aðan fund með stofn­endum gall­er­ís­ins sem réðu ráðum sínum um nafn fyr­ir­bær­is­ins. Reyk­ur­inn var fram­kall­aður með leik­hús­réttum, sem var deilt til áhorf­enda og átti þátt í að skapa and­rúm for­tíðar. Gjörn­ing­ur­inn vakti kátínu fyrir smellið hand­rit og skort á dramat­ískum til­burðum „leik­enda“ og var við­eig­andi upp­haf á veisl­unni.

Búktal

Næst tók við vel svið­settur og kjarn­yrtur gjörn­ingur Höllu Ein­ars­dóttur, Bor­bor­yg­mus, sem hún flutti upp­stríluð í anda Andreu Fraser. Titill gjörn­ings­ins er lat­neska heitið yfir garna­gaul og vísar til orðs­ins ventriloquism eða búk­tal sem er dregið af orð­inu kvið­ar­hol (l. ventre).  Við­fangs­efnið er saga og aðferða búktals og hvaða merk­ingu það hefur að tala fyrir aðra og í gegnum aðra. Við sögu komu sjálfsævi­saga Olafar Krarer, sem varð þekkt fyrir að halda upp­logna fyr­ir­lestra um upp­vaxta ár sín á Græn­landi, sam­tal Höllu við eigin maga og tengsl lyga­sagna við spuna og spuna­konur. Samband búktals og spuna var und­ir­strikað með athöfn þar sem Halla þræddi prjón­aða fána með útfelldum myndum upp á stangir sem hún stakk í fánastangir, þannig að gjörn­ing­ur­inn end­aði sem inn­setn­ing.

Halla Ein­ars­dóttir flutti gjörn­ing­inn Bor­bor­yg­mus, upp­stríluð í anda Andreu Fraser.

Samkvæmisleikur og húrrahróp

Ásdís Sif Gunn­ars­dóttir tók næst við kefl­inu með sam­kvæm­is­leik sem krafð­ist þátt­töku nokk­urra með­lima Kling & Bang. Þeir voru paraðir saman til að teikna skugga­myndir hver af öðrum á vegg gall­er­ís­ins en á meðan gekk Ásdís Sif á milli þeirra, hvatti þá áfram og lýsti „leiknum“ fyrir áhorf­endum við und­ir­leik „pepp­andi“ tón­listar. Gjörn­ing­ur­inn skap­aði létt and­rúms­loft og stemn­ingu, sem Ingi­björg Sig­ur­jóns­dóttir greip á lofti til að fylla upp í eyðu sem skap­að­ist í dag­skránni vegna fjar­veru Johns Bock. Ingi­björg studd­ist við nýja útgáfu með yfir­liti yfir sýn­ingar Kling & Bang til að lesa upp nöfn allra sem sýnt höfðu í gall­er­í­inu og bað gesti um að hrópa húrra fyrir þeim. Þessi þátt­töku­gjörn­ingur kynti enn frekar undir veislu­stemn­ing­unni á föstu­deg­inum, en kvöld­inu lauk með tón­list­ar­gjörn­ing Hugo Llanes og Ronju, þar sem kvað við öllu myrk­ari tón.

Áhrif sandsins

Seinni dag­inn hófst veislan með gjörn­ingi Ástu Fann­eyjar Sig­urð­ar­dóttur, sem hélt áhorf­endum lengst af föngnum í þrí­skiptum gjörn­ingi sem hófst á því að hún hljóp í enda­lausa hringi um rýmið, með­fram og í kringum áhorf­endur. Á meðan humm­aði hún lag­línu sem barst til baka með end­ur­gjöf úr hátöl­urum og aðstoð frá nokkrum með­limum Kling & Bang. Síður rauður kjóll, hum­mið, hreyf­ingin og star­andi augna­ráð Ástu minntu mig á gamlar skáld­sögur um ungar konur sem höfðu verið lok­aðar inni í kast­alaturni, vændar um ást­sýki eða eitt­hvað þaðan af verra. Hummið fjar­aði að lokum út og Ásta Fanney tók við að strá sandi sem hún sótti í sand­hrúgu á gólf­inu í kringum áhorf­endur, sem breytt­ust sam­stundis í styttur sem gátu sig hvergi hrært og sýndi hvaða upp­lifun einn hringur úr sandi getur fram­kallað. Þegar á leið braut Ásta Fanney gat á ósýni­legan múr­inn milli sín og áhorf­enda með því að ávarpa þá beint. Hún átti auð­velt með að hrífa gesti með sér og halda þeim í ákveð­inni spennu. Gjörn­ing­ur­inn var hins vegar í lengra lagi og flosn­aði upp undir lokin.

Máttur listarinnar

Það voru mun fleiri gestir seinni dag­inn sem fylgdu lög­máli veislu sem hefur staðið lengi yfir. Dag­skráin varð los­ara­legri og fleiri en einn gjörn­ingur í gangi í einu. Hlökk Þrast­ar­dóttir flutti þrí­skiptan gjörn­ing um und­ir­bún­ing gjörn­ings og tókst vel upp. Á meðan ráf­aði Pétur Már Gunn­ars­son með lokuð augu um sýn­ing­ar­rýmið með risa­bor í hendi og kall­aði fram óhug meðal gesta. Lucky 3 fram­köll­uðu ann­ars konar ónota­til­finn­ingu með gjörn­ingi sem setti áhorf­endur í sið­ferði­lega klemmu um hvort það væri við­eig­andi að taka þátt. Þau höfðu stillt sér upp eins og fangar sem bíða aftöku, en aftakan fólst í að henda í þau grjónum. Þetta póli­tíska útspil sló marga út af lag­inu, því hvað þýddi það að taka þátt og hvaða merk­ingu hafði það að sleppa því? Veisl­unni lauk með ein­földum en hnit­mið­uðum gjörn­ingi Ragnars Kjart­ans­sonar. Hann beitti kunn­ug­legri aðferð end­ur­tekn­ingar í óði til lífs og listar sem um leið kjarn­aði starf­semi Kling & Bang og batt við­eig­andi endi á vel heppn­aða afmæl­is­veislu.


Sýning: Tví­tugs­af­mæli
Staður: Kling & Bang gall­erí, Marshall-hús­inu
19. og 20. maí
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár