Fór í meðferð og féll fyrir ofbeldismanni

Thelma Berglind Guðna­dóttir var í afeitrun með dæmdum nauð­gara sem áreitti hana á göng­unum. Hún féll fyrir mann­inum sem kom henni til bjargar þegar kvart­anir breyttu engu. Hann átti síðan eftir að beita hana ofbeldi í dags­leyf­inu. Hún gagn­rýnir aðgerð­ar­leysi starfs­manna og bendir á mik­il­vægi þess að fólki sé skipt betur upp í afeitrun.

Fór í meðferð og féll fyrir ofbeldismanni

Thelma Berglind Guðna­dóttir flúði erf­iðan tíma í sínu lífi í grasneyslu. Hún var 19 ára og for­eldrar hennar nýfrá­skildir svo hún stóð eftir heim­il­is­laus og örygg­is­laus, ein­stæð móðir með ungt barn. Nið­ur­brotin leit­aði hún sér aðstoðar á Vogi árið 2010, þar sem hún kynnt­ist manni um fer­tugt sem seldi henni þá hug­mynd að hann væri ást­fang­inn af henni og þau ættu að vera saman. Í dags­leyf­inu veitt­ist hann svo að henni með ofbeldi. 

Áreitt af nauðgara

Á hverju ári eru um 2.000 inn­lagnir á Vogi, þar sem afeitrun áfengis- og vímu­efna­sjúk­linga sem leita aðstoðar SÁÁ fer fram. Konur og karlar eru saman í afeitrun, á sama tíma og Thelma var í afeitrun var þar dæmdur nauð­gari.

Thelma segir að hún og aðrar stelpur sem voru með henni í afeitrun á Vogi hafi kvartað undan fram­göngu hans. „Hann var að áreita okkur allar,“ segir hún, „elta okkur á göngn­unum, ráf­andi um á næt­urnar og reyna að ná okkur einum til að perr­ast í okkur. Við vorum korn­ungar stelpur í með­ferð og þessi maður var þar með okkur. Þrátt fyrir vit­neskju um að hann hafði hlotið dóm fyrir kyn­ferð­is­brot var ekk­ert sér­stakt eft­ir­lit með honum. Við vorum allar búnar að kvarta undan honum en það var ekk­ert gert í því, eins og við værum að fífl­ast með það. Í þessu umhverfi kynnt­ist ég svo þessum strák sem ég féll fyrir, þegar hann sá þetta og greip inn í.“

„Við vorum allar búnar að kvarta undan honum en það var ekk­ert gert í því.“

Hún seg­ist ekki hafa verið lengi að falla fyrir honum, hann hafi heillað hana alveg upp úr skónum. Bæði vegna þess að hann kom vel fram við hana og lof­aði öllu fögru, um leið og hann sagð­ist hafa átt mjög erf­iða ævi svo hún vor­kenndi honum. „Hann var mjög krútt­legur við 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár