Veita ekki upplýsingar um jakkaföt lögreglu af öryggisástæðum

Upp­lýs­ingar um bún­að­ar­mál lög­reglu í tengslum við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins verða ekki veittar fyrr en að fundi loknum. Sam­skipta­stjóri rík­is­lög­reglu­stjóra segir of langt seilst að segja að 250 jakka­föt sem keypt hafa verið fyrir óein­kenn­is­klædda lög­reglu­menn varði þjóðar­ör­yggi en vissu­lega sé um örygg­is­á­stæður að ræða.

Veita ekki upplýsingar um jakkaföt lögreglu af öryggisástæðum
Lög­reglan Nær allir 850 starf­andi lög­reglu­menn hér á landi munu koma að leið­toga­fundi Evr­ópu­ráðs­ins sem fram fer í Hörpu 16. og 17. maí. Keypt hafa verið 250 jakka­föt sem óein­kenn­is­klæddir lög­reglu­menn munu klæð­ast við störf. Mynd: Af vef lögreglunnar

Lög­reglan mun ekki veita upp­lýs­ingar um bún­að­ar­mál eða inn­kaup í tengslum við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins sem hald­inn verður í Hörpu í næsta mán­uði. „Þetta er gert af örygg­is­á­stæðum og í takt við vinnu­lag lög­reglu á norð­ur­löndum, til að mynda, í aðdrag­anda sam­bæri­legra funda,“ segir í skrif­legu svari rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. 

Leið­toga­fund­ur­inn er sá umfangs­mesti sem hald­inn hefur verið hér á landi. 44 af 46 þjóð­ar­leið­togum hafa stað­fest komu sína á fund­inn og lög­gæslan verður af þeirri stærð­argráðu sem hefur ekki sést áður á Íslandi. RÚV greindi frá því í vik­unni að um þrjú hund­ruð lög­reglu­menn hafa fengið sér­staka þjálfun í með­ferð skot­vopna í aðdrag­anda fund­ar­ins og fjár­fest hefur verið í um 250 jakka­fötum fyrir lög­reglu­menn sem verða óein­kenn­is­læddir. 

Heim­ildin óskaði eftir frek­ari upp­lýs­ingum um jakka­fata­kaupin en fékk aðeins stað­fest­ingu á kaup­unum frá Gunnari Herði Garð­ars­syni, sam­skipta­stjóra rík­is­lög­reglu­stjóra, og að þau verði notuð af starfs­fólki lög­reglu sem mun sinna verk­efnum í tengslum við líf­varða­gæslu. 

„Það væri nú frekar langt seilst að segja að jakka­fötin varði þjóðar­ör­yggi.“
Gunnar Hörður Garð­ars­son,
sam­skipta­stjóri rík­is­lög­reglu­stjóra.

„Lögregla mun þó ekki veita nán­ari upp­lýs­ingar um bún­að­ar­mál eða inn­kaup í tengslum við fund­inn fyrr en að loknum fund­inum. Þetta er gert af örygg­is­á­stæðum og í takt við vinnu­lag lög­reglu á norð­ur­löndum, til að mynda, í aðdrag­anda sam­bæri­legra funda,“ segir í svari rík­is­lög­reglu­stjóra. 

Gunnar Hörður segir það frekar langt seilst að segja að jakka­fötin varði þjóðar­ör­yggi. „En nán­ari upp­lýs­ingar um bún­að­ar­mál lög­reglu í heild sinni og að hluta í tengslum við fund­inn, hvort sem um er að ræða fatnað eða annað, verða ekki veittar fyrr en að loknum fundi.“

Leið­toga­fund­ur­inn fer fram 16. til 17. maí og mun hafa tölu­verð áhrif á mið­borg­ina og nán­asta nágrenni, meðal ann­ars með víð­tækum gatna­lok­unum. Kostn­aður við lög­gæslu vegna leið­toga­fund­ar­ins er áætl­aður 1,4 millj­arðar króna.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    250 leynilögreglumenn sem sagt að dulbúa sig sem Mormona :-)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár