Róttækur hugsjónaflokkur verður að borgaralegum valdaflokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

Róttækur hugsjónaflokkur verður að borgaralegum valdaflokki
Taka tvö Vinstri græn ákváðu að end­ur­nýja sam­starf sitt við Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokk eftir kosn­ing­arnar 2021 þrátt fyrir fylgis­tap. Mynd: Bára Huld Beck

Í mars 2016 var Katrín Jak­obs­dóttir búin að vera for­maður Vinstri grænna í þrjú ár. Ólafur Ragnar Grímsson, þáver­andi for­seti Íslands, hafði til­kynnt að hann myndi ekki bjóða fram á ný. Katrín hafði á þessum tíma reglu­lega mælst sem sá stjórn­mála­maður sem flestir lands­menn báru mest traust til. Í könnun sem MMR gerði fyrir Stundina, annan þeirra miðla sem nú mynda Heim­ild­ina, um hver ætti að vera næsti for­seti lands­ins, nefndu 37 pró­sent aðspurðra Katrínu. Enginn annar komst nálægt henni. 

Það vakti líka athygli að fólk nán­ast alls staðar að úr hinu póli­tíska lit­rófi studdi Katrínu.

Katrín fór hins vegar ekki í for­seta­fram­boð og næsti for­seti varð á end­anum Guðni Th. Jóhann­es­son. Þess í stað var hún komin í snemm­búnar kosn­ingar haustið 2016, sem boðað var til í kjöl­far opin­ber­unar Panama­skjal­anna. Í ræðu sinni við eld­hús­dags­um­ræður á þing­inu í maí 2016 sagði Katrín þær afhjúp­anir sem þar komu …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gudmundur Audunsson skrifaði
    Nokkuð góð greining. Ég var stofnfélagi í flokknum þar sem ég taldi hann skársta kostinn, en lét mig hverfa vegna samstarfsins við Sjálfstæðisflokkinn. Ég er mjög sammála því að flokkurinn er í raun núna borgaralegur valdaflokkur, ætti í raun að heita Hreifingin, framboð (HF). Þessi þróun minnir um margt á danska stjórnmálaflokkinn Radikale venstre. Þegar hann var stofnaður var hann frekar róttækur flokkur eins og nafnið ber með sér (Róttæki vinstriflokkurinn). Í dag er flokkurinn borgaralegur mið-hægriflokkur sem oftar en ekki situr í ríkisstjórn, annað hvort til hægri eða vinstri. VG hefur verið kvenfrelsisflokkur og mjög fylgjandi mannréttindum minnihlutahópa með grænum áherslum eins og Radidale venstre . Það er því VG sérstaklega erfitt að kyngja árásum dómsmálaráðherra á flóttamenn. Þá er lítið eftir. Ekki fer mikið fyrir grænu áherslunum. Flokkurinn bakkar í mannréttindamálum. Varla neitt eftir en einhverskonar yfirstéttarfemínismi enda virðast tekjuháar konur vera helsti stuðningshópur flokksins.
    6
    • Viðar Magnússon skrifaði
      Sammála þér að öllu leiti var einn af stofnfélagum á Suðurlandi og sagði mig úr flokknum þegar ákveðið var að fara í stjórn með íhaldinu
      2
  • trausti þórðarson skrifaði
    Efasemdir mínar um VG hafa vikið fyrir djúpri fyrirlitningu.
    3
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Ég hef heyrt frasann um að vera í stjórnmálum til að hafa áhrif úr þessari átt. Jú, fylgismenn þessarar vafasömu kenningar virðast telja að það að setjast í ríkissjórn með hverjum sem er og við hvaða kringumstæður sem er sé besta og eina leiðin til að hafa þessi eftirsóknarverðu ,,áhrif". Nú, þessi hundalógík um ,,að vera í poletik til að hafa áhrif" hefur um árabil verið eina hugsjón Flokkseigendafélags VG, með þeim árangri að þeim hefur tekist að þurrka út arfleifð Einars og Brynjólfs, Lúðvíks og Eðvarðs og sósíalismans úr öllum bókum VG. Þess í stað gerði Flokkseigendafélagið VG að fullkomlega poletisku viðrini, sem almenningur hlær að.

    Það er skemmst frá að segja, að áhrif VG í þremur ríkisstjórnum eru engin, hvort heldur litið er til væntinga þeirrar Vinstrihreyfingar græns framboðs, sem stofnuð var um síðustu aldamót og er allt annar flokkur en VG dagsins í dag, eða pólitískra áhrifa yfirleitt. Það hefur hvarflað að mér í fullri alvöru, að Steingríms- og flokkseigendaarmur VG hafi aldrei haft í hyggju við stofnum flokksins að byggja upp samtök vinstrisósíalista og róttækra verkalýðssinna; með öðrum orðum, að Steingrímur, Álfheiður og kvennalistafraukurnar sem þau höfðu með sér á vettvang hafi komið til leiks undir fölsku flaggi, - að þeirra auðvirðilega hugsjón hafi ekki náð lengra en að koma sér upp borgaralegum stjórnmálaflokki fyrir sig og sína, einhverskonar einkavæddum, hægrisinnuðum framsóknarflokki, sem væri eftirsóknarverður til ríkisstjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokkinn og auðvaldið við rúllettuborð kapítalismans.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu