Þær heppnu deyja fyrst

Illugi Jök­uls­son fjallar um sjón­varps­s­er­í­una The Last of Us, sem einn af höf­undum Chernobyl stendur að, og rýnir í vís­indin að baki ser­í­unni.

Þær heppnu deyja fyrst

Það er sér­kenni­leg til­viljun að einmitt þegar sú umræða brýst upp á yfir­borðið hvort ekki væri alveg kjörið að taka upp neyslu á hug­breyt­andi sveppum til að bæta geð­heilsu okkar, þá skuli birt­ast úti í hinum stóra heimi gríð­ar­lega vin­sæl sjón­varps­s­ería sem allir eru að horfa á, og fjallar einmitt um mjög svo hug­breyt­andi sveppi og áhrif þeirra á okkur – en því miður er óhætt að segja reyndar að hinir hug­breyt­andi sveppir í sjón­varpi bæti geð fólks ekki agn­ar­ögn.

Ég á vita­skuld við sjón­varps­s­er­í­una The Last of Us sem banda­ríska sjón­varps­fyr­ir­tækið HBO gleður nú mann­kynið með – nú, eða ógleður, því óhætt er að segja að hrollur fari um suma sem á horfa, og vissu­lega var einmitt til þess stofnað af HBO.

Höfundur Chernobyl á nýjum slóðum

The Last of Us er í grunn­inn zombí-sería, eins leið­in­lega og það hljómar. Per­sónu­lega hafa mér alltaf leiðst zombíar. Það er ein­fald­lega of heimsku­legt að horfa upp á þessi hálf­dauðu hræ þeyt­ast um allt upp­full af orku. En ýmsar hug­myndir sem boðið er upp á í þess­ari nýju seríu HBO færa hana skör ofar en venju­legt zombíjukk og því end­ist ég til að horfa á þetta.

Enda vissu­lega ekki aukvisar sem standa að ser­í­unni. Höfundar hennar eru aðal­lega tveir: Neil Druckmann frá tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­inu Naughty Dog, sem skap­aði tölvu­leik­inn sem ser­ían er byggð á, og svo Craig Mazin sem hefur fullt af vin­sælu en kjána­legu efni í bíó – Scary Movie, Hangover – en kom svo öllum í opna skjöldu um árin með hinni frá­bæru seríu Chernobyl þar sem Hildur Guðna­dóttir og fleiri fóru á kostum.

Chernobyl virð­ist ansi fjar­skylt The Last of Us.

Og þó. Aftur stendur mað­ur­inn frammi fyrir hryll­ingi í umhverf­inu. Og hver veit nema skelf­ingin í The Last of Us eigi sér líka orsakir í mann­heimum, ekki síður en kjarn­orku­slysið í Chernobyl?

Hugsa sveppir?

Þótt ég ætli síst af öllu að skemma of mikið fyrir vænt­an­legum sjón­varps­á­horf­endum, þeim sem eiga eftir að sjá ser­í­una þeirra Mazins og Druckmanns, þá er alveg óhætt að fjalla um sjálfan útgangs­punkt­inn, enda kemur hann í ljós á fyrstu mín­útum fyrsta þáttar.

Hann er sá að sveppa­sýk­ing tekur að breið­ast út um heims­byggð­ina með leift­ur­hraða. Menn hafa náð góðum árangri við að þróa bæði lyf og bólu­efni gegn bakt­eríu- og veiru­sýk­ingum en and­spænis sveppum standa þeir ráð­þrota. Eina ráðið gegn þessum mein­sveppi reyn­ist vera að drepa hann bara.

Og það er hægar sagt en gert vegna þess að svepp­ur­inn tekur sér ból­festu inni í mönnum og tekur yfir vilja hans og alla hug­ar­starf­semi. Menn sem sýkj­ast verða nær umsvifa­laust vilja­laus verk­færi svepps­ins. Svepp­ur­inn „hugsar“ eftir það ein­ungis um að vaxa svo og dafna inni í mann­inum að hann geti þroskað gróin sem hann fjölgar sér með. Venju­legir sveppir þeyta gróum sínum út í loftið og af hverju örsmáu grói getur sprottið full­vaxin líf­vera.

Byggt á sönnum atburðum?

Þetta er nú allt fremur kunn­ug­legt úr hryll­ings­mynda­geir­anum. Alls konar kvik­indi hafa gegnum tíð­ina sest að í lík­ama grun­lauss fólks og gert af sér ýmsan óskunda.

Það skemmti­lega við The Last of Us (fyrir utan ýmis­legt óvænt sem kemur í ljós) er að ser­ían er byggð á sönnum atburðum. Það eru nefni­lega til sveppir sem smeygja sér inn í fórn­ar­lömb sín, taka yfir heila­starf­semi þeirra og gera þau að vilja­lausum verk­færum sínum, um leið og þeir nær­ast á innviðum fórn­ar­lambanna.

„Því hvernig haldið þið að sé að finna aðra líf­veru vaxa innan í sér og taka yfir lík­ama sinn smátt og smátt?“

Ef sveppir hefðu raun­veru­lega hug­ar­starf­semi gætum við kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þessi kvik­indi væru bæði grimm og mis­kunn­ar­laus og haldin hinum end­an­lega kvala­losta.

Því hvernig haldið þið að sé að finna aðra líf­veru vaxa innan í sér og taka yfir lík­ama sinn smátt og smátt? Tala nú ekki um þegar svepp­ur­inn fer að „hug­breyta“ í manni heil­anum?

Sá hryll­ings­sveppur sem veldur þessu nefn­ist cordyceps. Sem betur fer fyrir okkur hefur hann ekki (enn þá!) kom­ist upp á lag með að taka yfir manns­lík­ama og hug, heldur ræðst á öllu smærri bráð.

Ekki síst maura.

Tekur yfir hvern vöðva af öðrum

Það merki­lega er samt að svepp­ur­inn tekur í raun­inni ekki bein­línis yfir heila maurs­ins sem hann nær að smita. Hann virð­ist setj­ast að í tauga­kerfi maurs­ins og taka yfir hreyf­ingar dýrs­ins þannig, vöðva fyrir vöðva, kannski með „hug­breyt­andi“ efnum, fremur en að svepp­ur­inn ráð­ist í raun á sjálfan heil­ann.

Þetta er ansi hroll­vekj­andi til­hugsun. Ef við reiknum með að maur­inn hafi vit­und, þá má hann sem sagt fylgj­ast með fullri með­vit­und með því hvernig lík­ami hans er tek­inn yfir.

Hann fer að hreyfa sig í sam­ræmi við annan vilja en sinn eigin. Og hann getur ekk­ert við því gert.

Eftir að svepp­ur­inn hefur í raun tekið stjórn á maurnum, þá ger­ist fyrst ekki neitt. Maurinn „leikur“ að ekk­ert sé að og gengur til vinnu sinnar með öðrum maurum eins og ekk­ert hafi í skorist. Og hinir maur­arnir láta sér það lynda. Þetta er merki­legt vegna þess að maurar eru yfir­leitt mjög næmir á veik­indi félaga sinna og eru fljótir að hrekja brott og út í dauð­ann vinnu­maura sem veikj­ast af bakt­eríu- eða veiru­sýk­ingum. Til­gang­ur­inn er vita­skuld að koma í veg fyrir að þeir smiti út frá sér.

En maur­arnir virð­ast ekki skynja eða ráða við „sveppamaur­inn“ sem nú lifir meðal þeirra undir fölsku flaggi.

Gæti sveppur náð í krakkana í skólann?

Rétt eins og við gætum ímyndað okkur að sér­lega lúmskur sveppazombí af mann­kyni gæti farið í vinn­una á hverjum morgni og sótt krakk­ana í skól­ann meðan svepp­ur­inn sem hefur tekið hann yfir heldur áfram að vaxa og þroskast innra með honum, uns svepp­ur­inn er til­bú­inn til að springa út.

Það er einmitt það sem sveppamaur­inn gerir. Athygl­is­vert er að þegar hann er til­bú­inn, þá ræðst hann ekki til atlögu inni í maura­bú­inu, þar sem hann gæti þó smitað þús­undir maura á einu bretti. Svepp­ur­inn virð­ist gera sér grein fyrir að með því gæti hann vissu­lega drepið allt maura­búið á einu bretti en síðan væri hann þar inni­lok­aður og myndi vesl­ast upp og deyja.

Hann fer allt öðru­vísi og miklu lymsku­legar að. Svepp­ur­inn mar­serar loks út úr maura­bú­inu inni í skrokk maurs­ins, sem nú er alveg vilja­laust verk­færi hans, og finnur sér tré eða trjá­grein og kemur sér fyrir í um það bil þriggja metra hæð. Þar skorðar svepp­ur­inn maur­inn og tekur síðan til við að þróa gró sín.

Étin að innan 

Með því að skorða vesl­ings maur­inn í þriggja metra hæð tryggir svepp­ur­inn að gróin dreif­ist nægi­lega út með vind­inum þegar hann sleppir þeim.

Allt að 30.000 á sek­úndu.

Aðrar sveppa­teg­undir leggj­ast á ýmsar flugna­teg­undir og taka þær yfir. Sumar taka völdin bein­línis með því að dæla hug­breyt­andi efnum inn í litla flugu­heil­ann. Og allt í einu sann­fær­ist flugan um að það sé góð hug­mynd að líma sig á kjaft­inum við lauf­blað í vissri hæð frá jörðu og liggja þar meðan svepp­ur­inn „étur“ inn­yfli hennar og breytir þeim í gró.

Lengst af meðan á þessu gengur eru maur­arnir og flug­urnar lif­andi.

Þau heppnu deyja fyrst.

Hin þurfa að þola þetta lengi.

Nú er það svo að vís­inda­menn full­vissa okkur um að við núver­andi aðstæður sé engin hætta á að sögu­þráður The Last of Us hvað varðar sveppa­sýk­ing­arnar verði að veru­leika. Sveppir dreifi sér ekki með þeim hætti sem sería Mazins og Druckmanns gefur til kynna og eng­inn mein­sveppur gæti þró­ast á skömmum tíma til að taka yfir menn.

Það myndi útheimta þróun sem tæki millj­ónir ára.

Breyta DNA fórnarlambanna?

Það skulum við hugga okkur við þegar við fylgj­umst með bar­áttu Joels og Elliear við grimmd­ar­svepp­ina í The Last of Us. En gæti nátt­úran hugs­an­lega komið okkur á óvart? Hér má til dæmis líta á að sumir vís­inda­menn telja að nokkrar sveppa­teg­und­anna sem taka yfir skor­dýrin sleppi ekki bara hinum víð­kunnu hug­breyt­andi efnum inn í tauga­kerfi dýr­anna til að taka þau yfir.

Heldur geti svepp­irnir bein­línis breytt DNA hinna aumu fórn­ar­lamba og gert þau sér und­ir­gefin þannig. Gert úr þeim eitt­hvað nýtt og skelfi­legt.

Sería Mazins og Druckmanns er ekki búin svo það er ekki ljóst enn hvernig þetta endar. En miðað við það sem komið er, þá hlýtur spurn­ingin að vera þessi – og ég er bara að grín­ast í aðra rönd­ina: Er virki­lega eitt­hvað snið­ugt að við skulum sjálf­viljug ætla að hleypa sveppum inn í innstu helgi­dóma hug­ans?

Og það í „lækn­inga­skyni“!

Eins og segir í klikk­beit­unum: Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ger­ist næst!

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár