Augnablik í eilífðinni

Rússar réð­ust ólög­lega inn í Úkraínu kaldan febr­ú­ar­morgun fyrir rúmu ári síðan og hafa síðan skilið eftir sig slóð dauða og eyði­legg­ingar. Ef stríðið er skoðað í sam­hengi við tím­ann sjálfan, hvar erum við í raun stödd á spjöldum sög­unnar?

Augnablik í eilífðinni
Bohdan Cheshyk und­ir­býr fræga brúð­ars­laufu frá konu úr borg­inni Vinnytsa, sem varð fyrir hræði­legri eld­flauga­árás þann 14 júlí 2022, sem skildi 28 manns eftir í valnum, þar af 3 börn. Konan, sem ætl­aði að gifta sig sama dag, ákvað þrátt fyrir það að láta verða af athöfn­inni og lét taka brúð­ar­mynd­irnar í íbúð hennar sem eyði­lagð­ist í árásinni. Myndir sem urðu strax gíf­ur­lega vin­sælar og urðu tákn­mynd þessa dags í hugum margra í Úkraínu. Mynd: Óskar Hallgrímsson

„Ég þarf að þvo á mér hárið.“ Þetta er það fyrsta sem Mariika, eig­in­kona mín, segir þegar ég vek hana klukkan fimm að morgni 24. febr­úar 2022. Ég hafði sjálfur vaknað örstuttu áður við þung sprengju­hljóð í fjarska, hljóð sem mér fannst eiga fátt skylt við íslenska flug­elda. Ég man það mjög skýrt að þetta var það fyrsta sem mér flaug í hug, þarna nývökn­uðum árla morg­uns á meðan kröft­ugar þrýsti­bylgjur, hver á fætur annarri, börðu á gluggum svefn­her­berg­is­ins.

Innrásin var hafin. Ég hringdi strax í fjöl­skyld­una mína á Íslandi, bjó til hóp­spjall með öllum okkar nán­ustu sem þyrftu að fá upp­lýs­ingar og skrif­aði eft­ir­far­andi: „Hæ. Hér er hafið stríð. Við erum örugg eins og er. Við heyrum í spreng­ingum en þær eru víst allar ætl­aðar hern­að­ar­legum skot­mörkum. VIÐ ERUM ÖRUGG og okkur er sagt að halda okkur heima og við ætlum að gera það á meðan við fylgj­umst með …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár