Orri Hauksson, forstjóri Símans, fékk samtals 116,4 milljónir króna í laun, kaupauka og mótframlag í lífeyrissjóð á árinu 2022, eða 9,7 milljónir króna á mánuði. Ári áður fékk hann 76,2 milljónir króna í sömu greiðslur, eða tæplega 6,4 milljónir króna. Laun hans hækkuðu því um 53 prósent milli ára. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Símans.
Mestu munar um mikla aukningu á greiðslu kaupauka. Orra fékk 42,6 milljónir króna í slíkan í fyrra sem var næstum fjórum sinnum hærri en kaupaukinn sem hann fékk árið 2021. Til viðbótar fengu framkvæmdastjórar innan Símans, alls fimm einstaklingar og þar af tveir sem störfuðu frá miðju ári, 71 milljón í kaupauka. Það er 48,1 milljón krónum meira en þeir kaupaukar sem greiddir voru út til framkvæmdastjórnar á árinu 2021, sem þá taldi fjóra einstaklinga. Um er að ræða rúmlega þreföldum á kostnaði við kaupauka til framkvæmdastjóra Símans. Alls jókst heildarlaunakostnaður vegna framkvæmdastjórnarinnar, að forstjóra frátöldum, um 43 prósent milli ára.
Til samanburðar má nefna að lágmarkslaun á Íslandi þorra árs í fyrra voru 368 þúsund krónur á mánuði, eða um 4,4 milljónir króna á ári. Mánaðarlaun forstjóra Símans voru því 120 prósent hærri en árslaun þess sem var á lágmarkslaunum hérlendis á síðasta ári.
Hluthafar fá tugi milljarða króna
Síðasta rekstrarár var það besta í sögu Símans. Félagið skilaði 38,3 milljarða króna hagnaði, en hann hafði verið 5,2 milljarðar króna árið 2021. Ástæðan er salan á Mílu, dótturfélagi Símans byggir upp og rekur innviði fjarskipta á landsvísu, til franska sjóðstýringafyrirtækisins Ardian France SA. Kaupverðið var greitt í september 2022, annars vegar með 32,7 milljörðum króna í handbæru fé og hins vegar skuldabréfi upp á 17,5 milljarða króna. Þegar þær skuldir Mílu sem Ardian yfirtók eru taldar með var söluverðið 69,5 milljarðar króna og söluhagnaðurinn bókfærður á 37,8 milljarða króna. Um síðustu áramót var eigið fé Símans 35,3 milljarðar króna.
Í tilkynningu til Kauphallar vegna útgáfu ársreikningsins er haft eftir Orra að þegar samningar um sölu Mílu hafi upphaflega verið gerðir hafi stjórn Símans ákveðið að stjórnendur skyldu kanna hvort félagið gæti nýtt það fé, sem vænta mátti úr sölunni, að hluta eða öllu leyti í arðbærari verkefni en þau sem hluthafar Símans gætu fundið á eigin spýtur. „Í ljós kom að mögulegar fjárfestingar Símans á Íslandi verða ekki af þeirri stærðargráðu að þörf sé á söluverðmæti Mílu. Þá kom í ljós að hluthafar Símans telja almennt ekki að hið skráða rekstrarfélag Síminn hf. eigi að varðveita á eigin bókum háar upphæðir til að leita að verkefnum fyrir Símann utan Íslands [...] Skapist í framtíðinni fjárfestingatækifæri fyrir Símann af slíkri stærðargráðu, að þau útheimti á ný aukna fjármögnun til handa félaginu, mun samtalið snúast við og stjórn og stjórnendur munu þá óska eftir nýju hlutafé frá hluthöfum.“
Því var söluverðmætunum skilað til hluthafa. Í nóvember var hlutafé lækkað og hluthafarnir fengu 31,5 milljarð króna í sinn hlut. Stærsti hluthafinn í Símanum, og sá sem ræður ferðinni í stefnumótun félagsins, er fjárfestingafélagið Stoðir sem á 15,93 prósent hlut. Um fimm milljarðar króna af þessari útgreiðslu fór því til Stoða. Aðrir stórir hluthafar eru stærstu lífeyrissjóðir landsins. Þrír stærstu sjóðirnir: Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóður verzlunarmanna (sem félagsmenn VR greiða meðal annars í) og Gildi (sem félagsmenn Eflingar greiða meðal annars í) eru þar fyrirferðamestir.
Í lok janúar síðastliðins var skuldabréfið upp á 17,5 milljarða króna sem Ardian gaf út vegna sölunnar svo selt til félags á vegum Ardian á 15,7 milljarða króna. Stjórn Símans mun gera tillögu um það á komandi aðalfundi að þeim fjármunum verði einnig skilað að öllu leyti til hluthafa með lækkun á hlutafé.
Gangi þau áform eftir munu hluthafarnir hafa fengið 47,2 milljarða króna í reiðufé frá því í nóvember. Þar af munu 7,5 milljarðar króna rata til Stoða, sem stýrt er af stjórnarformanni Símans, Jóni Sigurðssyni. Auk þess á Orri Hauksson, forstjóri Símans, 0,8 prósent hlut í félaginu. Hann ætti því að fá alls um 390 milljónir króna í sinn hlut vegna útgreiðslna úr félaginu eftir söluna á Mílu samþykki stjórn Símans að færa niður hlutaféð á komandi aðalfundi.
Mikil hækkun á enska boltanum
Fyrir utan söluna á Mílu var hagnaður af áframhaldandi starfsemi Símans tæplega 2,1 milljarðar króna, en hann hafði verið rúmlega 1,7 milljarður króna árið 2021. Inni í þeirri tölu eru fjármunatekjur upp á 748 milljónir króna, sem er 366 milljónum krónum meira en árið áður. Þar skiptir máli að söluandvirði Mílu var ávaxtað á bankareikningi í tæpa tvo mánuði en í haust greindi Síminn frá því að mánaðarlegir vextir af reiðufénu sem fékkst fyrir söluna á Mílu væru 160 milljónir króna.
Velta dróst lítillega saman milli ára og var rétt undir 24 milljörðum króna. Tekjur af farsímaþjónustu hækkuðu um átta prósent milli ára, og skipti mikil aukning vegna reikitekna þar miklu máli, en hana má rekja til stóraukins fjölda ferðamanna sem komu til Íslands í fyrra í samanburði við árið 2021. Þá var umtalsverður vöxtur í tekjum af sjónvarpsþjónustu, sem hækkuðu um 339 milljónir króna milli ára. Í fjárfestakynningu Símans kemur fram að aðallega sé um að ræða tíu prósent tekjuaukningu í Premium þjónustu Símans og því að Síminn Sport, sem sýnir enska boltann, hafi skilað 23 prósent hærri tekjum.
Síminn Sport kostaði 3.500 krónur í lok árs 2021 en verðið fyrir þann sjónvarpspakka var hækkað í 4.500 krónur í byrjun árs í fyrra. Í lok árs 2022 var það komið upp í 4.900 krónur og frá 1. febrúar síðastliðnum var það hækkað í 6.500 krónur. Verðmiðinn á Síminn Sport hefur því hækkað um þrjú þúsund krónur á mánuði frá því í lok árs 2021.
Sjónvarps Símans Premium, efnisveita félagsins sem felur meðal annars í sér aðgengi að enska boltanum, kostar nú 7.500 krónur ef viðkomandi leigir myndlikil frá Símanum á 2.300 krónur á mánuði. Ef ekki bætast 2.300 krónur við og þá kostar Premium pakkinn 9.800 krónur.
Athugasemdir (1)